Námið
Rannsóknir
HR
Kennslustefna Háskólans í Reykjavík 

Stefna Háskólans í Reykjavík (HR) er að veita nemendum framúrskarandi menntun sem mætir þörfum framtíðarinnar og skilar víðtækri þekkingu á fagsviði, djúpum skilningi á einstökum þáttum, hugtökum og kenningum, leikni í að beita aðferðum fagsviðs og hæfni til að nýta þekkingu í námi og starfi. Nám við HR felur í sér fjölbreyttar kennslu- og námsmatsaðferðir, raunhæf verkefni, virka þátttöku nemenda, tengsl námsins við atvinnulíf og samfélag og þjálfa nemendur í gagnrýnni hugsun, sköpunarhæfni og sjálfstæðum og heiðarlegum vinnubrögðum. Háskólastofnanir leika lykilhlutverk í að leiða þarfar samfélagsbreytingar. Í HR er sjálfbærni höfð til grundvallar við ákvarðanatöku í kennslu, rannsóknum og rekstri. 

Almennt 

  • Alþjóðlegar og íslenskar kröfur til náms og kennslu  uppfylltar á þeim fagsviðum sem HR hefur viðurkenningu á. 
  • Lögð sé áhersla á kennslu í litlum hópum, virka þátttöku nemenda, raunhæf verkefni og verklega kennslu. 
  • HR leggi sig fram um að bjóða upp á menntun fyrir öll æviskeið 
  • Námsframboð skólans og uppbygging námsleiða séu endurskoðuð reglulega, með það að leiðarljósi að viðhalda og efla styrk námsins, sinna sem best þörfum atvinnulífs og samfélags og tryggja nemendum góða undirstöðu fyrir þátttöku í atvinnulífi eða frekara nám. 
  • Nemendur séu hvattir til að taka ábyrgð á eigin námi, fái tækifæri til að hafa aðkomu í þróun og eflingu náms og námskeiða með setu í ráðum deilda ásamt þróun náms og kennslu HR með setu í námsráði skólans. 

Aðbúnaður náms og kennslu 

  • Kennarar og nemendur noti þar til gerð kennslukerfi, viðbætur þeirra og önnur verkfæri svo auka megi virkni nemenda í námi, efla gæði samskipta nemenda og kennara og bæta endurgjöf. 
  • HR stuðli að því að kennarar fái og noti tækifæri til símenntunar og þjálfunar á sínu fagsviði. 
  • Kennarar sæki sér ráðgjöf til kennsluþróunar um hönnun námskeiða, notkun fjölbreyttra kennsluaðferða, aðferðir við námsmat og notkun kennslu- og prófakerfa. 
     

Gæði náms og kennslu 

  • HR bjóði krefjandi nám þar sem nemendur öðlist traustan fræðilegan bakgrunn, fái markvissa þjálfun og öðlist leikni og hæfni í beitingu þekkingar. 
  • Kennsla við HR byggi á framúrskarandi þekkingu kennara og vel skipulögðum undirbúningi kennslu, sem felur í sér hæfni og leikni kennara til að miðla þekkingu. 
  • Kennarar við HR sýni frumkvæði í uppbyggingu, endurbótum og þróun á kennsluaðferðum, nýsköpun í kennslu og hvetji nemendur til sjálfstæðra og fræðilegra vinnubragða. 
  • Nemendur taki ábyrgð á eigin námi með virkri þátttöku. 
  • Lærdómsviðmið námsleiða og einstakra námskeiða séu endurskoðuð reglulega í því skyni að tryggja að samræmi sé á milli lærdómsviðmiða, kennsluaðferða og námsmats, þannig að reynt sé á þekkingu, hæfni og leikni nemenda. 
  • Kennarar þekki og fylgi handbók kennara sem finna má á leiðbeiningavef kennara og Orion. 
  • Beitt sé fjölbreyttum kennsluháttum en jafnframt að nám  og námsmat taki mið af samfélagslegri þróun og ýti undir gagnrýna hugsun. 
  • Inntökuskilyrði til náms við HR séu í samræmi við áherslur skólans um inntak og gæði menntunar. 
  • Fjöldi nemenda á móti hverjum akademískum starfsmanni sé í samræmi við það sem tíðkast í leiðandi háskólum. 
  • Kennarar og nemendur þekki og virði siðareglur skólans. 

 
Mat á gæðum náms og kennslu 

  • Kennarar HR, starfsfólk og nemendur þekki gæðakerfi náms og kennslu. 
  • Gæði kennslu séu metin reglubundið með fjölbreyttum mælikvörðum á kennslu, kennsluaðferðum og námsmati og niðurstöður nýttar til að viðhalda og auka gæði kennslu. 
  • Tillit sé tekið til árangurs í kennslu, endurmenntunar kennara og nýsköpunar í kennslu við mat á framgangi kennara. 
  • Nám við HR sé reglulega endurskoðað innan viðkomandi deildar og metið af alþjóðlegum matsaðilum. 

Þverfaglegt nám, nýsköpun  og kennsla 

  • Að ýta undir valfrelsi nemenda í námi með því að bjóða upp á þverfaglegar námsleiðir og þverfaglegar áherslur til þess að gera nemendur hæfari til að takast á við fjölbreytt verkefni í samfélagi og atvinnulífi. 
  • Kennarar hljóti stuðning og hvatningu til að vinna í samstarfi við aðra kennara, innan HR sem utan, að þróun þverfaglegra námskeiða ásamt því að skapa nýjar námsleiðir, innan deilda sem utan. 
     

Hagnýting tækni í námi og kennslu  

  • Að HR nýti framfarir í tækni og gervigreind á ábyrgan hátt í kennslu og námsumhverfi. 
  • HR styðji við notkun fjölbreyttra stafrænna lausna í námi og kennslu, á borð við fjarfundabúnað, upptökur á hljóð- og myndböndum, og annarra stafrænna verkfæra. 
  • Að kennurum sé veitt þjálfun og stuðningur við notkun tækni í námi og kennslu svo hægt sé að mæta þörfum nemenda í takt við samfélagslegar breytingar. 
  • Að stuðlað sé að þjálfun nemenda í ábyrgri notkun tækninnar, svo sem kennslu- og prófakerfa og ýmissa viðbóta kennslukerfanna. 
  • Að HR stuðli að þjálfun nemenda og kennara í ábyrgri notkun gervigreindar í námi og kennslu.  

Tengsl náms og kennslu við rannsóknir 

  • Að nemendur hljóti þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum. 
  • Að nemendur fái tækifæri til þátttöku í rannsóknum. 
  • Að kennarar og deildir tengi rannsóknir fræðasviða við kennslu.  

Tengsl náms og kennslu við atvinnulíf og samfélag  

  • Í boði sé verkleg kennsla, starfsnám og verkefnamiðað nám og áhersla lögð á tengingu raunhæfra verkefna úr atvinnulífi og samfélagi við námið. 
  • Kennsla sé styrkt með aðkomu kennara, bæði innlendra og erlendra ásamt öðrum sérfræðingum úr atvinnulífinu.  

Alþjóðlegt umhverfi náms og kennslu 

  • HR starfi markvisst með leiðandi erlendum háskólum og bjóði upp á nám sem stenst alþjóðlegar kröfur. 
  • Nemendur fái tækifæri til að öðlast reynslu og þekkingu á alþjóðlegum vettvangi.  
  • Kennarar og starfsfólk HR hafi tækifæri til að læra og starfa í alþjóðlegu umhverfi. 

Framkvæmd kennslustefnunnar 

Námsráð HR, kennsluþróun og námsráð deilda skulu stuðla að framkvæmd kennslustefnu HR. Árlega tekur kennsluþróun, í samráði við námsráð HR, saman skýrslu þar sem helstu verkefni er snúa að framgangi kennslustefnunnar eru tekin saman. 

Samþykkt í námsráði HR 23. janúar 2012 og í framkvæmdastjórn HR 31. janúar 2012. 
Endurskoðað af námsráði haustið 2024 og uppfærð úgáfa samþykkt í framkvæmdaráði 10.12.2024 

Fara efst