Mannauðsstefna HR
Mannauðsstefna HR
1. LIÐSHEILD
Við leggjum áherslu á:
- starfsgleði og góðan starfsanda,
- sameiginlega hagsmuni HR sem heildar,
- þátttöku starfsmanna í uppbyggingu og mótun HR,
- starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heiðarleika og virðingu,
- að skapa alþjóðlegan vinnustað sem fagnar fjölbreytileika og einkennist af virðingu fyrir einstaklingum og störfum þeirra,
- að skapa jöfn tækifæri til stöðuveitinga og launa og að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kynferðis, aldurs, trúar, þjóðernis, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar, stjórnmálaskoðanar eða annarra ómálefnalegra þátta með vísan til siðareglna og jafnréttisáætlunar,
- að einelti og kynferðisleg áreitni sé ekki liðin,
- að starfsfólk hlakki til að koma í vinnuna.
2. ÁSKORUN OG VÖXTUR
Við leggjum áherslu á að:
- bjóða áhugaverð og krefjandi störf,
- starfsfólk nýti hæfileika sína, þroskist og eflist í starfi sínu og geti þannig tekist á við nýjar áskoranir og aukna ábyrgð,
- frammistaða og hæfni séu höfð að leiðarljósi við stöðuhækkanir og aðra starfsþróun,
- framgangur í akademískar stöður sé veittur samkvæmt faglegu mati og hvetji til rannsóknarvirkni, árangursríkrar kennslu, samstarfs við atvinnulíf og samfélag og framlags til innra starfs,
- veita gott aðgengi að þjálfun, handleiðslu eða námskeiðum sem auka hæfni og afköst í starfi,
- tryggja þjálfun í framsæknum og fjölbreyttum kennsluaðferðum,
- stuðla að alþjóðlegum tengslum og starfsmannaskiptum.
3. HVATNING OG ENDURGJÖF
Við leggjum áherslu á:
- skýr og raunhæf viðmið fyrir frammistöðu í öllum störfum meðal annars með skýrum starfslýsingum,
- að frammistaða sé metin markvisst og reglulega meðal annars í árlegum starfsmannasamtölum,
- að gefa heiðarlega endurgjöf með því að hrósa fyrir vel unnin verk og gefa leiðbeinandi ábendingar um það sem betur má fara.
4. STJÓRNUN
Við leggjum áherslu á:
- að ábyrgð og verkferlar séu skýrir,
- gagnsæi og hreinskiptni,
- virka og aðgengilega upplýsingagjöf,
- gott aðgengi að stjórnendum.
5. JAFNVÆGI OG VELLÍÐAN
Við leggjum áherslu á:
- vellíðan í starfi,
- að starfsmenn upplifi jafnvægi og geti samræmt starfsskyldur og fjölskylduábyrgð,
- stuðning við heilbrigða og holla lífshætti,
- möguleika á sveigjanlegum vinnutíma,
- að vinnuaðstaða og tækjakostur sé í takt við þau verkefni og viðfangsefni sem starfið krefst,
- að gera fjölskyldumeðlimum kleift að kynnast vinnustaðnum og taka þátt í félagsstarfi.
6. LAUN OG KJÖR
Við leggjum áherslu á að:
- bjóða sanngjörn og samkeppnishæf starfskjör,
- laun taki mið af þróun á vinnumarkaði,
- laun og önnur starfskjör taki mið af ábyrgð og frammistöðu,
- starfsmenn njóti stuðnings til að stunda nám við HR.
7. STARFSMANNAVAL
Við leggjum áherslu á að:
- ráða starfsfólk með framúrskarandi hæfni, menntun, reynslu og metnað fyrir hönd HR,
- starfsmannahópurinn sem heild sé fjölbreyttur,
- gæta fagmennsku við ráðningar nýrra starfsmanna,
- ráða starfsfólk í takt við stefnu og þarfir HR bæði til skemmri og lengri tíma,
- standa vel að nýliðafræðslu, þjálfun og aðlögun nýrra starfsmanna.
Samþykkt af framkvæmdastjórn 12. febrúar 2013