Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Starfsnám - Sumarstarf í markaðsdeild Bónus - frábært tækifæri

Vinagarður er sjálfstætt starfandi leikskóli sem er rekinn af KFUM og KFUK á Íslandi. Leikskólinn var stofnaður árið 1975 og er staðsettur í Laugardalnum í Reykjavík. Í skólanum eru um 80 börn. Starf leikskólans tekur mið af aðalnámskrá leikskóla en auk þess er gengið út frá forsendum kristinnar trúar og menntastefnu Reykjavíkurborgar. 

Við óskum eftir að ráða áhugasama og drífandi kennara og leiðbeinendur til starfa í Vinagarði . Við leitum að einstaklingum sem hafa ánægju af samskiptum við aðra, búa yfir hugmyndaauðgi, ásamt metnaði til að hlúa að skapandi og uppbyggilegu umhverfi fyrir börn í anda stefnu leikskólans. 

Við vinnum mikið með náttúruna og útinám, vináttu og tengsl. Í skólanum er frábær hópur kennara og reyndra leiðbeinenda sem starfa saman í kærleika og starfsgleði. Hjá okkur er 36 klst. vinnuvika og samkeppnishæf laun. Máltíðir eru fríar og lokað milli jóla og nýárs. 

Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur Hulda B. Jónasdóttir, s. 869 2791, huldabj@kfum.is og Hildur B. Svavarsdóttir s. 664 8473, hildur@kfum.is

  • Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur Hulda B. Jónasdóttir, s. 869 2791, huldabj@kfum.is
  • Hildur B. Svavarsdóttir s. 664 8473, hildur@kfum.is