Jólahelgar – Helgarnámskeið
STEAM-helgarnámskeið á aðventunni
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 5 - 11 ára
Um námskeiðið
Jólahelgar Skema eru STEAM-helgarnámskeið þar sem börn forrita, smíða og skapa verkefni með jólaþema. Tilvalið á meðan foreldrar sinna jólainnkaupum.
Hver dagur er eitt heilt verkefni svo börnin fari heim með eitthvað tilbúið báða dagana. Báðar helgarnar eru með sömu dagskrá þannig að fjölskyldur velja þá helgi sem hentar þeim best.
Nemendum er skipt í þrjá aldurshópa og öll verkefni eru aðlöguð að aldri og getu:
| S.T.E.A.M Könnuðir | 5–6 ára · kl. 10:00–12:00 |
| S.T.E.A.M Hugsuðir | 7–8 ára · kl. 13:00–16:00 |
| S.T.E.A.M Skaparar | 9–11 ára · kl. 13:00–16:00 |
Skipulag og verð
- Dagar: Könnuðir (5–6 ára): kl. 10:00–12:00 laugardag og sunnudag, alls 4 klst.
- Hugsuðir og Skaparar (7–11 ára): kl. 13:00–16:00 laugardag og sunnudag, alls 6 klst.
- Verð: 10.900 kr. fyrir helgina (5–6 ára), 15.900 kr. fyrir helgina (7–11 ára)
- Dagsetningar: 5. – 6. desember eða 12. – 13. desember 2026
Hagnýtar upplýsingar
- Systkinaafsláttur: 15% afsláttur fyrir hvert systkini úr sömu fjölskyldu
- Hægt er að nýta frístundakort á þetta námskeið
- Skráning í gegnum Sportabler — hlekkur á eftir að berast fyrir þetta námskeið
- Hafa samband: Starfsfólk Skema — skema@ru.is, 599 6300