Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

MakeCode Arcade – Sumarnámskeið

MakeCode Arcade – Leikjaþróun (7–10 ára) 

Helstu upplýsingar
  • Undanfari:  Enginn
  • Aldur: 7 - 10 ára

Um námskeiðið

Þetta sumarnámskeið er STEAM-miðað námskeið þar sem nemendur kynnast grunnatriðum leikjagerðar og forritunar í gegnum MakeCode Arcade.

Nemendur vinna með myndræna (block-based) forritun til að hanna og þróa sína eigin leiki. Þeir læra hvernig á að búa til persónur, stýringar og reglur, og hvernig leikur er byggður upp frá hugmynd að spilandi útgáfu.

Áhersla er lögð á sköpun, rökhugsun og lausnamiðaða hugsun í gegnum skemmtileg og verkefnamiðuð verkefni sem henta aldri nemenda.

Útinám og hreyfing
Nemendur taka þátt í forritunartengdum ratleik utandyra þar sem þeir leysa þrautir og fylgja vísbendingum sem tengjast kóðun og rökhugsun. Verkefnin fara fram í nærumhverfi Háskólans í Reykjavík og efla samvinnu, sköpun, hreyfingu og heilbrigða skjánotkun. Sumarnámskeiðið er jafnframt umfangsmeira en áður með nýjum og spennandi verkefnum.

Systkinaafsláttur
Við bjóðum 15% systkinaafslátt sem auðveldar fjölskyldum að skrá fleiri en eitt barn á námskeiðin.

Skipulag og verð

Sumarnámskeið

  • Lengd: 4-5 dagar, 3 klst. á dag
  • Tími: 13:00–16:00 Verð: 19.900kr fyrir 4 dag 24.900kr fyrir 5 daga
Næstu námskeið
Sumarnámskeið
  • 06. - 10. júlí, frá 13:00 til 16:00
  • 04. - 07. ágúst, frá 13:00 til 16:00
Fara efst