Minecraft: Hönnun & landafræði - Sumarnámskeið
Minecraft: Hönnun & landafræði - Sumarfrí
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 7 - 10 ára
Um námskeiðið
Um námskeiðið
Á námskeiðinu fá nemendur tækifæri til að skapa og hanna heilu landsvæðin í Minecraft. Nemendur fá að vinna á Íslandi í Minecraft sem er nákvæm eftirlíking af Íslandi.
Það þarf að huga að ýmsu við hönnun landsvæða og því er nauðsynlegt að halda hugarflugsfundi, skipulagsfundi, vinna í teymum og skipta með sér verkum. Nemendur fá að kynnast ýmsum byggingarstílum, listformum og brellum sem hægt er að nota í Minecraft.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa einhverja reynslu af Minecraft spilun og langar að kafa dýpra í hönnunarhluta leiksins. Til þess að taka fullan þátt á námskeiðinu er nauðsynlegt að nemendur hafi keyptan aðgang að Java útgáfu leikjarins (minecraft.net) og kunni notendanafn sitt og lykilorð.
ATH: Á Minecraft námskeiðum Skema er spilað á einkaserver sem aðeins nemendur og þjálfarar Skema fá aðgang að. Þjálfarar hafa umsjón með samskiptum á servernum og stjórna því hverjir fá að tengjast servernum, engir utanaðkomandi aðilar fá aðgang að serverum Skema.
Þessi síða er ekki að bjóða opinbera Minecraft® vöru. Háskólinn í Reykjavík er ekki tengdur Mojang né Microsoft.
Útinám og hreyfing
Nemendur taka þátt í forritunartengdum ratleik utandyra þar sem þeir leysa þrautir og fylgja vísbendingum sem tengjast kóðun og rökhugsun. Verkefnin fara fram í nærumhverfi Háskólans í Reykjavík og efla samvinnu, sköpun, hreyfingu og heilbrigða skjánotkun. Sumarnámskeiðið er jafnframt umfangsmeira en áður með nýjum og spennandi verkefnum.
Systkinaafsláttur
Við bjóðum 15% systkinaafslátt sem auðveldar fjölskyldum að skrá fleiri en eitt barn á námskeiðin.
Skipulag og verð
- Lengd: 4-5 dagar, 3 klst. á dag
- Tími: 13:00–14:00 Verð: 24.900kr fyrir 5 daga
Næstu námskeið
- 22 - 26 júní, frá 13:00 til 16:00
- 20. - 24. júlí, frá 13:00 til 16:00