Minecraft: Rafrásir - Sumarnámskeið
Minecraft: Rafrásir
Vissir þú að í Minecraft er hægt að byggja tölvu úr rafrásum?
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 9 - 13 ára
Um námskeiðið
Vissir þú að í Minecraft er hægt að byggja tölvu úr rafrásum?
Í Minecraft má nota rafmagn til þess að búa til hvað sem manni dettur í hug. Þá þarf að nota redstone, sem finnst djúpt í hellum, til þess að smíða rafrásir. Það er til dæmis hægt að búa til sjálfvirkt gróðurhús sem sér um að rækta korn og baka brauð, rússíbana eða jafnvel spiladós sem spilar lög!
Á námskeiðinu fá nemendur að kynnast rafmagnsfræði í Minecraft. Farið verður yfir helstu rökrásir og rafmagnsfræðihugtök og þau tengd við raunveruleikann. Nemendur læra að sjálfvirknivæða sína Minecraft heima með því að beita rökhugsun og sköpun.
Hjá Skema er ekki í boði opinber Minecraft® vara og Háskólinn í Reykjavík er ekki tengdur Mojang né Microsoft.
Útinám og hreyfing
Nemendur taka þátt í forritunartengdum ratleik utandyra þar sem þeir leysa þrautir og fylgja vísbendingum sem tengjast kóðun og rökhugsun. Verkefnin fara fram í nærumhverfi Háskólans í Reykjavík og efla samvinnu, sköpun, hreyfingu og heilbrigða skjánotkun. Sumarnámskeiðið er jafnframt umfangsmeira en áður með nýjum og spennandi verkefnum.
Systkinaafsláttur
Við bjóðum 15% systkinaafslátt sem auðveldar fjölskyldum að skrá fleiri en eitt barn á námskeiðin.
Skipulag og verð
- Lengd: 4-5 dagar, 3 klst. á dag
- Tími: 13:00–16:00 Verð: 19.900kr fyrir 4 dag 24.900kr fyrir 5 daga
Næstu námskeið
- 15 - 19 júní, frá 13:00 til 16:00
- 06. - 10. júlí, frá 13:00 til 16:00
- 27. - 31. júlí, frá 13:00 til 16:00
- 10. - 14. ágúst, frá 13:00 til 16:00