Python: Grunnur - Sumarnámskeið
Vissir þú að Youtube var meðal annars forritað í Python?
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 12 - 15 ára
Um námskeiðið
Python er forritunartungumál sem hentar einstaklega vel fyrir byrjendur í forritun. Það er fjölbreytt, læsilegt og einfalt. Það er mikið notað í vefforritun, gagnasöfnum, gervigreind og af vísindamönnum.
Á námskeiðinu læra nemendur undirstöðuatriði forritunar með Python. Farið verður yfir grunnskipanir og grunnhugtök Python kóða. Nemendur vinna stutt verkefni sem einblína á ákveðna þætti Python forritunartungumálsins.
Útinám og hreyfing
Nemendur taka þátt í forritunartengdum ratleik utandyra þar sem þeir leysa þrautir og fylgja vísbendingum sem tengjast kóðun og rökhugsun. Verkefnin fara fram í nærumhverfi Háskólans í Reykjavík og efla samvinnu, sköpun, hreyfingu og heilbrigða skjánotkun. Sumarnámskeiðið er jafnframt umfangsmeira en áður með nýjum og spennandi verkefnum.
Systkinaafsláttur
Við bjóðum 15% systkinaafslátt sem auðveldar fjölskyldum að skrá fleiri en eitt barn á námskeiðin.
Skipulag og verð
- Lengd: 5 dagar, 3 klst. á dag
- Tími: 13:00–16:00 Verð: 19.900kr fyrir 4 dag 24.900kr fyrir 5 daga
Næstu námskeið
- 22. - 26. júní, frá 13:00 til 16:00
- 13. - 17. júlí, frá 13:00 til 16:00