Þrívíddarhönnun – Sumarnámskeið
3D Hönnun & Sköpun – Helgarnámskeið!
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 10 - 15 ára
Um námskeiðið
Um námskeiðið
Þetta sumarnámskeið er STEAM-miðað námskeið sem kynnir nemendum heim þrívíddarhönnunar og stafrænnar sköpunar í gegnum gagnvirk og verkefnamiðuð þrívíddarhönnunarverkefni.
Nemendur læra grunnatriði þrívíddarhönnunar og þróa færni sína í að hugsa skapandi, hanna og útfæra eigin hugmyndir. Á námskeiðinu vinna þeir að því að hanna og móta sína eigin persónu, sem nýtist í leikjagerð eða hreyfimyndagerð. Áhersla er lögð á tengingu vísinda, tækni, verkfræði, lista og stærðfræði (STEAM), ásamt sköpun, lausnamiðaðri hugsun og sjálfstæðri vinnu.
Útinám og hreyfing
Nemendur taka þátt í forritunartengdum ratleik utandyra þar sem þeir leysa þrautir og fylgja vísbendingum sem tengjast kóðun og rökhugsun. Verkefnin fara fram í nærumhverfi Háskólans í Reykjavík og efla samvinnu, sköpun, hreyfingu og heilbrigða skjánotkun. Sumarnámskeiðið er jafnframt umfangsmeira en áður með nýjum og spennandi verkefnum.
Systkinaafsláttur
Við bjóðum 15% systkinaafslátt sem auðveldar fjölskyldum að skrá fleiri en eitt barn á námskeiðin.
Skipulag og verð
- Lengd: 4-5 dagar, 3 klst. á dag
- Tími: 13:00–14:00 Verð: 19.900kr fyrir 4 dag 24.900kr fyrir 5 daga
Næstu námskeið
- 29. - 03. júlí, frá 13:00 til 16:00
- 04. - 07. ágúst frá 13:00 til 16:00