Stærð- og eðlisfræði í iðn- og tæknifræðideild
Stærðfræði
Umsækjendur þreyta eitt próf sem verður haldið í húsnæði HR.
- Þau sem ná ekki stöðuprófinu geta hafið nám við HR í Háskólagrunni sem hefst í byrjun ágúst og geta svo hafið nám í tæknifræði ári síðar.
- Þau sem ná stöðuprófinu geta hafið nám í ágúst.
Eðlisfræði
Nemendur sem hyggja á nám í byggingartæknifræði taka A-hluta prófsins, en þau sem hyggja á nám í rafmagns- eða vél- og orkutæknifræði taka bæði A og B-hluta.
Undirbúningur - Stærðfræði
Til að aðstoða þig við undirbúning fyrir stöðupróf í stærðfræði höfum við tekið saman kennslugögn annars vegar af tveimur vefjum og hinsvegar dæmasafn. Farið er í svipað efni á þessum tveimur vefum og ráðleggum við þér að kynna þér báða vefina og reikna svo í gegnum dæmasafnið.
- Dæmasafn
Hér má finna dæmasafn sem þið eruð hvött til að nota til æfinga. Dæmasafnið er tekið saman af stærðfræðikennara iðn- og tæknifræðideildar og stöðuprófin eru byggð á þessu efni. - Dæmasafn
- Dæmasafn - Lausnir
- Rasmus - kennsluefni fyrir framhaldsskóla
Kennsluefnið hjá þeim er flokkað í hópa og er stígandi í þyngd efnisins í hverjum hóp fyrir sig. Til dæmis ef valið er veldareikningur eru þrjár misþungar kynningar. Í hverri kynningu fyrir sig er kennsluefnið kynnt og sýnidæmi svo sett fram. Stutt krossapróf er síðan eftir hverja kynningu.
- Rafræn kennslubók
Kennsluefnið er tekið saman af Háskóla Íslands og endurspeglar hvaða kunnáttu krafist er af nemendum í upphafi náms. Við birtum það hér með leyfi HÍ (CC-BY-NC-SA leyfi). Efnið er flokkaskipt. Notuð eru myndbönd til að kynna efnið. Settar eru fram reiknireglur og sýnd sýnidæmi. Þar er einnig vísað í þann hluta dæmasafnins sem efnið er tekið fyrir.
Flokkun á efni af vef Rasmus og Háskóla Íslands
Undirbúningur - Eðlisfræði
Nemendur sem hyggja á nám í byggingartæknifræði taka A-hluta prófsins, en þau sem hyggja á nám í rafmagns- eða vél- og orkutæknifræði taka A og B-hluta.
Hægt að nýta efni úr rafrænni kennslubók til undirbúnings til viðbótar með námsefnið hér að neðan.
Nánari upplýsingar varðandi stöðuprófin veitir