Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

AI and Society

You, Data, and Sovereign Decision-Making
13. mars, 08:30 - 15:00
Háskólinn í Reykjavík
Skrá í dagatal

Etir því sem gervigreindarkerfi þróast verða spurningar um yfirráð, eignarhald og sjálfstæði ákvörðunartöku æ mikilvægari. Hvað verður um okkar ákvarðanir þegar algóritmi spáir fyrir um næstu skref okkar?

Á ráðstefnunni verða flutt fjöldi áhugaverðra erinda, t.a.m. um hvað gerist í heilanum þegar við notum gervigreind, ábyrgð og lýðræðislega þátttöku á tímum gervigreindar, hugverkarétt og gervigreind og margt fleira.

Ráðstefnan er haldin í samstarfi milli Háskólans í Reykjavík, Opna háskólans, CADIA, rannsóknarmiðstöðvar HR á sviði gervigreindar, gagnavísinda og snjallkerfa og EDIH Iceland, Evrópska stafræna nýsköpunarsetursins sem styður fyrirtæki og stofnanir í stafrænni umbreytingu og innleiðingu gervigreindar.

Í lok ráðstefnunnar fer fram vinnustofa opin öllum ráðstefnugestum.

Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.

Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.

Fara efst