Kraftur kvenna e.Fuelling Females
Ný fyrirlestraröð um næringu og lífeðlisfræði kvenna í íþróttum og hreyfingu
Háskólinn í Reykjavík, í samstarfi við ÍSÍ og UMFÍ, býður til málstofu þar sem ný fyrirlestraröð, Kraftur kvenna e(.Fuelling Females), verður formlega kynnt.
Málstofan verður í stofu V101, fimmtudaginn 20. ágúst frá 16:00 - 17:30. Boðið verður upp á létta veitingar eftir og er skráning því nauðsynleg.
Markmið verkefnisins er að efla konur í hreyfingu og íþróttum með því að miðla gagnreyndri og hagnýtri þekkingu um næringu, heilsu og lífeðlisfræði kvenna.
Viðburðurinn er ætlaður öllum sem hafa áhuga á hreyfingu og heilsu – hvort sem um er að ræða íþróttakonur, þjálfara, fagfólk eða konur sem stunda hreyfingu sér til heilsubótar.
Dagskrá | 16:00–17:30
Kynning á Fuelling Females og opnun vefsíðu verkefnisins
Christofer Curtis, íþróttanæringarfræðingur og dósent við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík.
Fræðsluerindi: Næring íþróttakvenna
Christofer Curtis fjallar um næringu íþróttakvenna og hvernig rétt næring getur stutt við heilsu, vellíðan og frammistöðu.
Pallborðsumræður: Næring kvenna á hreyfingu – hvað getum við lært af reynsluboltum?
Silja Úlfarsdóttir stýrir pallborðsumræðum þar sem reynsla úr afreksíþróttum, næringarfræði, þjálfun og almennri heilsurækt verður í forgrunni.
Í pallborði sitja:
- Sara Sigmundsdóttir – atvinnukona í CrossFit
- Eygló Fanndal – Íþróttamaður ársins
- Ágústa Edda Björnsdóttir – margfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum
- Agnes Þóra Árnadóttir – fyrrverandi knattspyrnukona og næringarfræðingur
- Erla Guðmundsdóttir – íþróttafræðingur, heilsumarkþjálfi og stjórnandi hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum
17:30 | Skál fyrir Fuelling Females
Að málstofunni lokinni verður skálað fyrir verkefninu. Boðið verður upp á létta drykki og veitingar og gestum gefst tækifæri til að hittast, spjalla og ræða efni málstofunnar.
Skráning er nauðsynleg.
Skráning fer fram hér
Staðsetning
Háskólinn í Reykjavík
Stofa V101
Verkefnið er styrkt af íþróttasjóði

Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.