Leiðtogar framtíðarinnar
Sófaspjall með frú Höllu Tómasdóttur - Framadagar
Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, býður til sófaspjalls í Háskólanum í Reykjavík í tilefni Framadaga 2026, fimmtudaginn 22. janúar. Dr. Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar, stýrir spjalli og umræðum. Dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, opnar viðburðinn og í lokin gefst gestum tækifæri til að spyrja um hugðarefni sín varðandi leiðtogahugtakið, fyrstu skrefin á vinnumarkaðnum og framtíðarsýn.
Boðið verður upp á kaffi og með því.
Sófaspjallið fer fram í stofu V102 og hefst klukkan 12:00. Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.