Nýnemadagar 2024
Nýnemadagar fara fram dagana 15.-16. ágúst í Háskólanum í Reykjavík. Á nýnemadögum eru nýnemar í grunnnámi við HR boðnir velkomnir með fjölbreyttri dagskrá.
Á nýnemadögunum fá nemendur að kynnast húsakynnum skólans, hitta kennara og samnemendur, starfsfólk deilda og annað starfsfólk HR. Auk þess geta nemendur kynnt sér fjölbreytta stoðþjónustu skólans, til dæmis bókasafnið, nemendaráðgjöf og alþjóðasvið.

Mæting er frjáls á alla viðburðina en við hvetjum nýnema til að mæta á sem flesta þeirra og hita upp fyrir komandi önn.
FIMMTUDAGURINN 15. ÁGÚST
Nemendur eftirfarandi deilda mæta á kynningar klukkan 10:00 og fá gagnlegar upplýsingar um skólaárið framundan:
- Tölvunarfræðideild - Stofa V101 (Nemendur í tölvunarstærðfræði og hugbúnaðarverkfræði fara í stofu M104 klukkan 10:40 með brautarstjóra)
- Byggingafræði - Stofa V102
- Sálfræðideild - Stofa M105
Milli 11:00 og 13:00 verða nemendafélögin í HR í Sólinni að kynna starfsemi sína Við hvetjum þau sem eru á deildakynningum fyrir hádegi að staldra við og spjalla við nemendur og eins þau sem eru á kynningu eftir hádegi að koma fyrr.
Nemendur eftirfarandi deilda mæta á kynningar klukkan 13:00 og fá gagnlegar upplýsingar um skólaárið framundan:
- Verkfræðideild - Stofa V101 og V102
- Viðskipta- og hagfræðideild - Stofa M101
- Lagadeild - Stofa M103
- Íþróttafræðideild - Stofa M105
- Tæknifræði - Stofa M104
FÖSTUDAGURINN 16. ÁGÚST
Opnir fyrirlestrar fyrir alla nýnema grunnnáms frá þjónustuaðilum Háskólans í Reykjavík í M101 og V101
10:00 Alþjóðleg tækifæri í námi í HR
10:20 Hvernig nýti ég mér þjónustu bókasafnsins?
10:40 Hinsegin fræðsla
11:00 Hlutverk náms- og starfsráðgjafar og sálfræðiþjónustunnar í HR
11:20 Wifi, aðgangskort, eduroam og fleiri tækniatriði útskýrð með tækniþjónustu HR
11:40 Hver er munurinn á Myschool og Canvas? Þetta og fleira með kennslusviði HR
11:30-13:30
- Grillveisla í Sólinni
- Nemendafélög HR kynna starfsemi sína - skráðu þig í nemendafélag!
- Hægt verður máta og panta HR peysu
- Boðið verður upp á gönguferðir um skólann með leiðsögn með reglulegu millibili
- Strætó kynnir leiðir og Klappið
- Háskólakórinn kynnir starfsemi sína
- Samtökin '78 bjóða upp á spjall
Sjá einnig ýmsar hagnýtar upplýsingar hér um að hefja nám og Nemendahandbók HR.
Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.