Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Þegar krísa skellur á - Málstofa um almannatengsl og lög í krísustjórnun á samfélagsmiðlum

16. september, 12:00 - 13:00
Háskólinn í Reykjavík - Stofa M208
Skrá í dagatal

Fimmtudaginn 16. september verður haldin málstofa í stofu M208 í HR um almannatengsl og lög í krísustjórnun. Andrés Jónsson almannatengill og Halldóra Þorsteinsdóttir lektor við lagadeild HR fjalla um viðbrögð í krísum og hvernig lagaumhverfið horfir við slíkum aðstæðum, m.a. út frá tjáningarfrelsi og æruvernd. Opni háskólinn stendur fyrir málstofunni í samstarfi við viðskiptadeild HR. 

https://vimeo.com/604020002

  • Halldóra Þorsteinsdóttir er héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjaness og lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Kennslugreinar hennar hafa einkum verið: Fjölmiðlaréttur, sakamálaréttarfar, neytendaréttur og kröfuréttur.
  • Andrés Jónsson er stofnandi og eigandi Góðra samskipta og kennari í námskeiði Opna háskólans um stafræna markaðssetningu. 
  • Fundarstjóri: Valdimar Sigurðsson, prófessor og kennari í námslínu um stafræna markaðssetningu hjá Opna háskólanum.
Um fyrirlesara
Halldóra Þorsteinsdóttir héraðsdómari og lektor við HR, Andres Jónsson eigandi Góðra samskipta og kennari hjá Opna háskólanum

Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.

Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.

Fara efst