Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Vélmennavígið: Sigurvegurum fagnað í HR

17. febrúar, 16:00 - 19:00
Háskólinn í Reykjavík - Stofa M101
Skrá í dagatal

ATH! breytt tímasetning - viðburðinum hefur verið frestað um viku og fer fram þann 17. febrúar

Tvö lið frá Háskólanum í Reykjavík unnu Hönnunarkeppni HÍ á UTmessu þann 7. febrúar. Vinningsliðið er RAM æturnar og RU Robotics sem vann verðlaun fyrir frumlegustu hugmyndina.

Þann 17. febrúar fögnum við okkar fólki og rýnum í frammistöðuna í hinni virtu Hönnunarkeppni HÍ.

Skoðað verða myndbönd af vélmennunum þegar þau fóru í gegnum keppnina og heyrum hvernig okkar nemendum gekk. Einnig verða panel umræður.

🎤 Panelinn: Eftir sýningar á myndböndunum munu keppendur sitja fyrir svörum hjá sérfræðingum HR. Þar verður farið yfir hönnunarferlið og rætt opinskátt um hvað gekk vel og hvað mætti bæta.

Í pallborði sitja: Ásgeir Ásgeirsson, forseti tæknifræðideildar, dr. Ármann Gylfason, forseti verkfræðideildar og Baldur Þorgils, háskólakennari og rafmagnsverkfræðingur.

🍕 Boðið verður upp á pizzur og gos til að næra tækni- og verkfræðingahjartað á meðan rýnt verður í hönnunina.

Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.

Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.

Fara efst