Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
Tæknifræðideild

Hönnunar -
og vörutæknifræði

Námstími
3 ár
Einingar
210 ECTS
Prófgráða
BSc
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei

Hvað læri ég?

Í tæknifræði er lögð áhersla á að byggja upp verkvit, fræðilega fagþekkingu og tengsl við atvinnulífið. Námið er tilvalið fyrir þau sem vilja geta hafið starfsferil sinn strax að loknu BSc–námi. Þau sem útskrifast með lokapróf í tæknifræði hljóta lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur.   

Í námi í hönnunar- og vörutæknifræði læra nemendur að tengja saman skapandi hugsun og hagnýta afurð. Þar mætast tækni, notendamiðuð hönnun og vöruþróun, og varan eða afurðin er miðpunkturinn. Námið hentar þeim sem hafa brennandi áhuga á nýsköpun og vilja læra að nota aðferðarfræði hönnunar og vöruþróunar til að skapa lausnir sem bæta líf fólks og samfélags.​  

Í náminu vinna nemendur með hugmyndir, öðlast hæfni í að greina viðfangsefni, og rannsaka og skilja þarfir notenda. Þeir læra um stig vöruþróunar, allt frá hugmynd, hönnun og smíði frumgerða, og til sannprófana og framleiðslu þar sem beiting gagnrýnnar hugsunar er lykilatriði og sjálfbærni er höfð að leiðarljósi.   

 Námið er fullgilt tæknifræðinám sem byggir á fræðilegum grunni, tæknilegum undirstöðum í hönnun og vöruþróun, og hagnýtum verkefnum þar sem sköpunarkraftur og rökhugsun koma saman.​  

Dæmi um námskeið eru hönnunarsaga, hönnunarhugsun, hugræn sálfræði og skynjunarsálfræði og vöruþróun.

Þekking og færni

Í lærdómsviðmiðum má sjá hvaða þekkingu, leikni og hæfni nemendur eiga að búa yfir að námi loknu.

Hvernig læri ég?

Hagnýtt nám og tenging við atvinnulífið

Nám í hönnunar- og vörutæknifræði BSc á sér sterkar fyrirmyndir erlendis, t.d. í Skandinavíu en engin sambærileg námslína er kennd í grunnnámi á Íslandi. 

Námið nýtir grunn í tæknifræði sem er sérstaklega áhugverð nálgun þar sem það byggir á sterkum tæknilegum grunni í raungreinum og tæknilegum undirstöðum tæknifræðinnar. Þannig tengir námið saman tæknivöruhönnun og vöruþróun þar sem sjálf varan er miðpunkturinn.  

Lögð er áhersla á teymisvinnu, virkt samstarf við atvinnulíf og starfsnám. Nemendur læra að hlusta, tengja og miðla hugmyndum og þróa þær áfram í samvinnu við hagaðila og sérfræðinga. Þannig fá þeir reynslu af raunverulegum verkefnum í nýsköpun og vöruþróun, læra að taka ábyrgð og sýna frumkvæði. 

Námið tengir saman tæknihönnun og vöruþróun þar sem varan er viðfangsefnið.  

Tækniþátturinn er úr raungreinum og tæknilegum undirstöðum úr rafmagns- og véltæknifræði. Í þessum hluta eru einnig námskeið úr verkfræði (efnafræði) og tölvunarfræði (forritun). Þetta er forsenda fyrir því að námslínan fáist metin sem tæknifræðinám hjá VFÍ. Námskeið tengd vöruhönnun og vöruþróun eru ný.  

Á fyrsta ári er áhersla á raungreinar, tæknilegar undirstöður og vöruhönnun, og einnig innsýn í hugræna þætti og skynjun úr námskeiði í sálfræðideild. Fyrsta ári lýkur með hagnýtu verkefni (3v) með áherslu á vöruhönnun. 

Á öðru ári er áframhaldandi áhersla á hönnun og einnig á þátt vöruþróunar, þar sem nemendur kynnast aðferðarfræði vöruþróunar. Öðru ári lýkur með hönnunarverkefni (3v) þar sem áherslan er á vöruþróun, allt frá hugmynd og að lágmarksvöru (MVP). 

Á 5. önn hafa nemendur kost á að sækja skiptinám í samstarfi við skóla í Danmörku, Svíþjóð og í Finnlandi, og mögulega víðar. Fyrir erlenda nemendur sem hafa hug á skiptinámi og íslenska nemendur sem ekki komast frá í skiptinám er boðið upp á tvö námskeið innan námslínunnar sem kenndir eru á ensku og stórt 18 eininga hönnunar- og þróunarverkefni sem unnið er í hópum og í samstarfi við fyrirtæki og er einnig kennt á ensku.  

Íslenskir nemendur geta nýtt 5. önn í sérhæfingu (minor) þar sem hægt að leggja áherslu á sérsvið, t.d. hugbúnaðarvörur með vali á  námskeiðum í tölvunarfræði. Í raun geta nemendur sett saman sína eigin námsáætlun á önninni. 

Á 6. önn er starfsnám og sérhæfðari námskeið tengd tæknilegum útfærslum og hönnun. Á 3v tímabili 6. annar taka nemendur námskeiðið nýsköpun- og stofnun fyrirtækja í viðskipta- og hagfræðideild.  

Á 7. önn er áherslan á stórt lokaverkefni sem er einstaklingsverkefni þar sem nemendur velja sér viðfangsefni sem tengir saman alla þrjá meginþætti námsins: tæknihönnun og vöruþróun. Í verkefninu þurfa nemendur að sýna fram á þá þekkinguleikni og hæfni sem þeir hafa öðlast í náminu og vinna að lausn þar sem útkoman er áþreifanleg. Verkefnið getur verið sjálfskapað eða hagnýtt verkefni unnið í tengslum við fyrirtæki. 

Starfsnámið veitir forskot

Tæknifræðideild er með samninga við um 40 fyrirtæki og stofnanir. Margir nemendur hafa fengið tilboð um starf til lengri eða skemmri tíma í kjölfar starfsnáms og lokaverkefna sem unnin eru í samstarfi við fyrirtæki.

Með því að ljúka starfsnámi auka nemendur þekkingu sína á sínu fagsviði. Nemendur búa sig jafnframt undir störf að námi loknu.

Ávinningur af starfsnámi er margvíslegur. Markmið með starfsnámi er meðal annars að:

  • Efla tengsl nemenda við atvinnulífið.
  • Auka innsýn og skilning nemenda á viðfangsefnum viðkomandi fagsviðs.
  • Að nemendur öðlist reynslu af því að vinna að úrlausn raunhæfra viðfangsefna á vettvangi, undir leiðsögn leiðbeinenda úr atvinnulífinu.
  • Að nemendur beiti aðferðum tæknifræðinnar við lausn hagnýtra verkefna.
  • Að nemendur geti unnið sjálfstætt og borið ábyrgð á eigin þekkingarleit og faglegum áherslum.
  • Að nemendur tileinki sér sjálfstæð og markviss vinnubrögð við úrlausn raunhæfra hönnunar-, greiningar- og/eða rannsóknarverkefna á fagsviðinu.
Skiptinám

Á 5. önn hafa nemendur kost á að sækja skiptinám í samstarfi við skóla í Danmörku, Svíþjóð og í Finnlandi, og mögulega víðar. Fyrir erlenda nemendur sem hafa hug á skiptinámi og íslenska nemendur sem ekki komast frá í skiptinám er boðið upp á tvö námskeið innan námslínunnar sem kenndir eru á ensku og stórt 18 eininga hönnunar- og þróunarverkefni sem unnið er í hópum og í samstarfi við fyrirtæki og er einnig kennt á ensku. Nemendur í BSc-námi þurfa að vera með 7 eða yfir í meðaleinkunn og búnir með 60 einingar þegar farið er í skiptinámið. Alþjóðaskrifstofa veitir frekari upplýsingar um hvert hægt er að fara í skiptinám.

CDIO-samstarfsnetið

Tæknifræðideild er aðili að samstarfsneti um að þróa og bæta kennslu í tæknifræði, CDIO (Conceive, Design, Implement, Operate). Í dag eru um 100 háskólar frá öllum heimshornum þátttakendur og vinna skólarnir kerfisbundið að því að þróa námsbrautir í tæknifræði og verkfræði með áherslu á þarfir atvinnulífsins.

Í tæknifræði við HR er færni í hugmyndavinnu, verkefnastjórnun, samskiptum og kynningum þjálfuð í ýmsum námskeiðum gegnum allt námið.

Í CDIO-aðferðafræðinni er lögð áhersla á samráð háskóla og atvinnulífs og fagfélaga. Mótun námsbrauta í anda CDIO á að tryggja að nemendur fái lausnamiðaða tæknilega færni sem vinnuveitendur sækjast eftir, án þess að slegið sé af fræðilegum kröfum.

Tölvur í náminu

Nauðsynlegt að hafa góða tölvu í tæknifræðináminu. Mörg forrit sem eru notuð eru eingöngu til fyrir Windows stýrikerfi en ef nemendur eiga eða kjósa frekar notast við Apple tölvur er mikilvægt að þær séu nógu öflugar til að keyra forritin í virtual umhverfi. Þar sem er unnið mikið með teikningar er gott skjákort einnig eitthvað til að huga að. Sem dæmi má nefna að AutoCAD hefur gefið út viðmið fyrir forritin frá þeim sem hér má finna.

Ert þú með spurningar um námið?

Ása Þöll Ragnarsdóttir
Verkefnastjóri tæknifræði og upplýsingatækni í mannvirkjagerð

Að námi loknu

Lögverndað starfsheiti

Hönnunar- og vörutæknifræðingar eru frá útskrift tilbúnir til að takast á við raunveruleg verkefni í sínu fagi. Þau sem ljúka lokaprófi í tæknifræði (BSc) hljóta staðfestingu viðkomandi ráðuneytis og lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur (enska: Certified Engineer).

Fjölbreyttur starfsvettvangur

Nemendur eru vel undirbúnir fyrir fjölbreytt störf þar sem hæfni til að sjá heildarmynd, vinna í teymum og breyta hugmyndum í raunverulegar lausnir eru í hávegum höfð.  

Frekara nám

Að námi loknu hafa nemendur sterkan grunn til að halda áfram í framhaldsnám. Þeir geta þá valið leiðir bæði í skapandi greinum og í raungreinanámi.

Skipulag náms

Námið tengir saman tæknihönnun og vöruþróun þar sem varan er viðfangsefnið.  

Á fyrsta ári er áhersla á raungreinar, tæknilegar undirstöður og vöruhönnun, og einnig innsýn í hugræna þætti og skynjun úr námskeiði í sálfræðideild. Fyrsta ári lýkur með hagnýtu verkefni með áherslu á vöruhönnun. 

Á öðru ári er áframhaldandi áhersla á hönnun og einnig á þátt vöruþróunar, þar sem nemendur kynnast aðferðarfræði vöruþróunar. Öðru ári lýkur með hönnunarverkefni þar sem áherslan er á vöruþróun, allt frá hugmynd og að lágmarksvöru (MVP). 

Á 5. önn hafa nemendur kost á að sækja skiptinám í samstarfi við skóla í Danmörku, Svíþjóð og í Finnlandi, og mögulega víðar. Þeim nemendum sem ekki hafa tök á að komast frá í skiptinám er boðið upp á námskeið í samstarfi við fyrirtæki.  

Nemendur geta nýtt 5. önn í sérhæfingu (minor) þar sem hægt að leggja áherslu á sérsvið, t.d. hugbúnaðarvörur með vali á  námskeiðum í tölvunarfræði. 

Á 6. önn er starfsnám og sérhæfðari námskeið tengd tæknilegum útfærslum og hönnun. Á þriggja vikna tímabili 6. annar taka nemendur námskeið í nýsköpun- og stofnun fyrirtækja í viðskipta- og hagfræðideild.  

Á 7. önn er áherslan á stórt lokaverkefni sem er einstaklingsverkefni þar sem nemendur velja sér viðfangsefni sem tengir saman alla þrjá meginþætti námsins: tæknihönnun og vöruþróun. Í verkefninu þurfa nemendur að sýna fram á þá þekkinguleikni og hæfni sem þeir hafa öðlast í náminu og vinna að lausn þar sem útkoman er áþreifanleg. Verkefnið getur verið sjálfskapað eða hagnýtt verkefni unnið í tengslum við fyrirtæki. 

Þriggja vikna námskeið

Í náminu eru annir brotnar upp í tvo hluta. Fjögur námskeið eru kennd í 12 vikur og síðan er prófað úr þeim. Að prófum loknum taka við þriggja vikna námskeið þar sem námsefnið er sett í hagnýtt samhengi með verkefnavinnu, hópavinnu og/eða samstarfi við fyrirtæki.

Raunveruleg verkefni

Nemendur taka þátt í spennandi hönnunarverkefnum strax á fyrsta ári. Stærri verkefni eins og lokaverkefni, eru oftast unnin í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir.

Námstími
3 ár
Einingar
210 ECTS
Prófgráða
BSc
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei
Ása Þöll Ragnarsdóttir
Verkefnastjóri tæknifræði og upplýsingatækni í mannvirkjagerð

Kennarar

Sérfræðiþekking og reynsla

Nemendur í hönnunar- og vörutæknifræði njóta leiðsagnar öflugra vísindamanna á fagsviðinu, tæknimanna og hönnuða innan háskólann og fjölda stundakennara með sérfræðiþekkingu úr atvinnulífinu. Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur og í góðum tengslum við atvinnulífið. 

Fagráð í hönnunar og vörutæknifræði 

Tæknifræðideild hefur skipað fagráð fyrir nám í hönnunar- og vörutæknifræði. Fagráðinu er ætlað að aðstoða við uppbyggingu námsins, rýna námsáætlanir og skapa tengingu við sterk fyrirtæki á sviði vöruhönnunar og vöruþróunar.  

Í fagráði sitja: 

Þórdís Reynisdóttir, MSc – Innovation Program Manager, JBT - Marel 

Þórdís býr yfir víðtækri reynslu af nýsköpunarstjórnun, hugbúnaðarþróun og innleiðingu Agile vinnukerfa í tæknidrifnu umhverfi. Hún hefur sérhæft sig í Scaled Agile Framework (SAFe) og leitt umfangsmiklar breytingar þar sem mörg þróunarteymi vinna saman að sameiginlegri stefnu og tæknitengingum. Í starfi sínu sem Innovation Program Manager hjá JBT Marel stýrir hún „Agile Release Train“ með tíu teymum í hugbúnaðarþróun og leggur áherslu á gagnsæi, samvinnu og tengingu í þróunarvinnu. 

Fyrri störf hennar innan Marel ná yfir Operational Excellence, Software Excellence og Innovation Management, þar sem hún m.a. innleiddi SAFe í fyrsta sinn í fyrirtækinu, mótaði vinnukerfi og ferla, stýrði breytingastjórnun og leiddi tæknilega vörustjórnun til að tryggja samræmda þróun milli ólíkra tæknihópa. Hún hefur einnig unnið sem Agile Coach og Scrum Master fyrir bæði vélhönnunar- og hugbúnaðarteymi. 

Eftir nám vann hún að vöruþróun innan fiskiðnaðarseturs Marel, auk þess að skrifa lokaverkefni um notkun Scrum í vélrænum vörþróunarferlum. Reynsla hennar myndar sterkan grunn í að tengja saman tækni, breytingastjórnun og samhæfða teymisvinnu í flóknum þróunarumhverfum. 

ÞR er vélarverkfræðingur frá HÍ með meistaragráðu í vöruþróun frá Chalmers University (SE). Hún er einnig ljósmyndari og starfar við það samhliða starfi hennar hjá Marel. 

Kristín Birna Birnisdóttir, BSc – Sustainability Engineer, Össur hf. 

Kristín Birna lauk BSc námi í Design and Innovation Engineering frá DTU í Kaupmannahöfn árið 2022 og starfar nú sem sjálfbærniverkfræðingur hjá Össur. Hún hefur brennandi áhuga á sjálfbærni, hringrásarkerfinu og þróun lausna sem styðja við ábyrga framtíð. Hún sameinar tæknilega þekkingu og skapandi hugsun í starfi sínu, þar sem hún vinnur að því að gera vörur fyrirtækisins umhverfisvænni sem er þáttur í  framtíðarstefnu fyrirtækisins. 

Verkefni Kristínar eru á sviði lífsferilsgreininga (LCA) og stefnumótunar um sjálfbæra hönnun þar sem hún greinir áhrif vörunnar yfir lífsferil hennar og leggur til úrbætur sem

styðja við minnkun kolefnisspors, betri nýtingu hráefna og aðlögun að hringrásar-hagkerfinu. Hún nýtir skapandi nálgun og hönnunarfræðilega hugsun til að finna nýjar leiðir, ásamt því að vinna náið með þróunarteymum að innleiðingu sjálfbærra lausna í vöruþróun, framleiðslu og hönnunarferlum. 

Aðkoma Kristínar Birnu er sérstaklega áhugverð þar sem hún lauk nýverið námi sem er sterk fyrirmynd hönnunar- og vörutæknifræði.  

Aðstaða

Þjónusta og góður aðbúnaður

Öll kennsla fer fram í háskólabyggingu HR. Þar er lesaðstaða og bókasafn, aðstaða til verklegrar kennslu, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.

Verkleg kennsla

Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Því er aðstaða til verklegrar kennslu til fyrirmyndar.

Byggingastofa

Í náminu hafa nemendur aðgang að byggingastofu sem er mikilvægur þáttur í byggingatæknifræðináminu því þar er bilið brúað milli þess fræðilega og þess hagnýta.

Kennslustofur og lesaðstaða

Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn.

Góð þjónusta

Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.

Verslanir og kaffihús

Í HR er Krambúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.

Undirbúningur

Til að hefja nám í tæknifræði þurfa umsækjendur að hafa lokið stúdentsprófi, prófi úr Háskólagrunni HR, 4. stigs vélstjórnarprófi, sveinsprófi eða staðist lokapróf frá framhaldsskóla á 3. hæfniþrepi. Nauðsynlegt er að uppfylla einingafjölda og hæfniþrep sem talin eru upp hér fyrir neðan. Námsefni og kennsla á fyrsta ári í tæknifræði er miðuð við að nemendur hafi eftirfarandi undirbúning. Hægt er að lesa meira um hæfniþrep á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis. 

Vantar þig grunninn?

Háskólagrunnur HR er undirbúningur fyrir háskólanám. Þegar nemendur sækja um velja þau háskólagrunn miðað við það háskólanám sem stefnt er að í framhaldinu. Einnig geta þau sem hafa lokið stúdentsprófi bætt við sig einingum í stærðfræði og raungreinum í viðbótarnámi við stúdentspróf.

20 einingar, þar af 15 einingar á 3. hæfniþrepi. Miðað er við áfanga af náttúrufræði- eða náttúruvísindabraut.

Stöðupróf í stærðfræði og eðlisfræði

Til að koma til móts við umsækjendur sem uppfylla ekki inntökuskilyrði í tæknifræði er boðið upp á stöðupróf í stærðfræði og eðlisfræði. 

Stöðuprófin eru ætluð fyrir:

  • Þau sem telja sig hafa nægilegan grunn án þess að hafa lokið tilskyldum framhaldsskólaeiningum
  • Þau sem uppfylla inngönguviðmið en vilja rifja upp námsefnið og sjá hvar þau standa áður en nám hefst

Prófin munu fara fram um miðjan/lok júní í húsnæði HR við Nauthólsvík. Ekki verður að svo stöddu boðið upp á fjarpróf. 

Athugið að ef sótt er um inntöku með stöðuprófi í stærðfræði og eðlisfræði, þarf samt sem áður að uppfylla kröfur um einingafjölda í íslensku og ensku.

Umsækjendur þreyta eitt stöðupróf. Prófið fer fram í júní og í því er kannaður grunnur í algebru auk annars efnis: Almenn brot, einfaldar jöfnur, prósentureikningur, rauntalnalínan, þáttun, mengi, föll, hornaföll, deildun, heildun, vigrar.

A HLUTIB HLUTI
Mælieiningar Grunnhugtök í rafmagnsfræði
Vigrar Segulmagn og segulsvið
Hraði og hröðun Segulkraftar
Hreyfing í tveimur víddum Span
Kraftar Bylgjur
Orka Ljós
Skriðþungi 
Vökvar 
Varmi og varmaflutningur 

Framkvæmd:

Framkvæmd
  1. Umsækjendur skrá sig með því að senda póst á Ásu Þöll, verkefnastjóra í tæknifræði; asatr@ru.is
  2. Umsækjendur fá sendan hlekk inn á skráningarsíðu þar sem þau greiða fyrir stöðuprófið.
  3. Skráning er staðfest og umsækjendur fá aðgang að undirbúningsefni.
  4. Upplýsingar um prófstað og próftíma eru sendar áður en prófið fer fram í júní.

Þau sem standast nauðsynleg stöðupróf með einkunn 6 eða hærra er velkomið að hefja nám í tæknifræði. Þau sem ekki standast nauðsynleg stöðupróf geta hafið nám í Háskólagrunni til frekari undirbúnings. Að loknu námi í Háskólagrunni geta þau sótt í nám í tæknifræði.
Til þess að fá nánari upplýsingar og/eða skrá sig í stöðupróf sendið póst á asatr@ru.is


Við HR er hægt að ljúka viðbótarnámi við stúdentspróf ef einstaklinga vantar undirbúning í raungreinum.

Af hverju nám í hönnunar- og vörutæknifræði í HR?

  • Löggilt starfsheiti sem tæknifræðingur
  • Nemendur sem eru með sveinspróf hljóta meistarabréf í tilsvarandi iðngrein
  • Góð aðstaða til bóklegs og verklegs náms
  • Öflugt starfsnám
  • Traust undirstaða
  • Hagnýt og raunhæf verkefni
Fara efst