Hagnýtt- gagnavísindi
Hvað læri ég
Námið veitir nemendum grunnþekkingu á aðferðum og verkfærum gagnavísindanna. Þeir fá þjálfun í gagnagreiningu og vélnámi, beita líkindum og tölfræði og gera tilraunir með algrím.
Nemendur læra að leysa stór og flókin vandamál með gögnin að vopni. Þeir fá þjálfun í gagnagreiningu og vélnámi, beita líkindum og tölfræði og gera tilraunir með algrím.
Gögn eru grunnur ákvarðana og þróunar í þjónustu, heilbrigðisvísindum, menntamálum, fjártækni og bankaþjónustu, ferðaþjónustu, þjónustu hins opinbera og endalaust mætti áfram telja. Meistaranám í gagnavísindum við HR er fyrsta meistaranámið hér á landi sem veitir þessa sérfræðiþekkingu.
Hvernig læri ég?
Námið er kennt 12+3 vikur í staðarnámi.
Nánari upplýsingar um námið veitir skrifstofa deildarinnar.

Lára Margrét H Hólmfríðardóttir: Við getum lært svo mikið um heiminn og um okkur sjálf
Að námi loknu
Starfsvettvangur
Gagnavísindateymi eru orðin að veruleika hjá framsæknum fyrirtækjum. Sveitarfélög og hið opinbera hafa líka tekið mikilvæg skref í átt að betri gagnanýtingu. Með gögnum er hægt að afmarka betur kúnnahópa (e. customer segmentation), laga þjónustu að hverjum hópi fyrir sig, vinna enn markvissar og einfalda ferla. Ákvarðanir eru grundvallaðar á gögnum. Þróun í þjónustu reiðir sig á gögn, þar má einnig nefna lykilþróun í heilbrigðisvísindum, menntamálum, fjártækni og bankaþjónustu, ferðaþjónustu, þjónustu hins opinbera og endalaust mætti áfram telja.
Skipulag náms
Nám sem hægt er að taka yfir lengri tíma. Námið er staðnám og kennt á dagvinnutíma.
Nemendur ákveða hvort þeir vinni í MS ritgerð á öðru eða þriðja ári. Einnig geta nemendur skipt MS ritgerð á milli ára.
Athugið að ekki verður tekið inn í námið haustið 2024
Aðstaða
Þjónusta og góður aðbúnaður
Í háskólabyggingu HR er aðstaða til verklegrar kennslu, rannsókna, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.
Ný þekking verður til
HR stendur framarlega á heimsvísu í rannsóknum í gervigreind. Þeir nemendur sem gera verkefni og stunda rannsóknir með vísindamönnum Gervigreindarseturs HR, CADIA, hafa afnot af aðstöðu setursins fyrir tilraunir og sérstaka þróun í margmiðlunartilraunaherbergi sem kallað er Svartholið. Þar eru margskonar tæki sem nýta má í samskiptum fólks og tölva, eins og sýndarveruleikabúnaður (Oculus Rift og HTC Vive), risaskjár (3m x 2m), tölvusjón (Kinect), stefnuvirkir hljóðnemar, tölvustýrð LED-lýsing, hátalarakerfi og hljóðblandari svo að fátt eitt sé nefnt. Hægt er að bóka herbergið vegna verkefnavinnu eða tilrauna.
Þar er líka aðstaða fyrir hópavinnu nemenda og starfsmanna á öllum námsstigum. Þar eru borð (flestum úthlutað á hverri önn, en líka borð sem nemendur geta notað hluta vikunnar), geymsluaðstaða (skúffur, hillur, kassar), grunn tækjabúnaður (skjáir, snúrur osfr.) og svo tússtöflur og afþreyingaraðstaða (sófi og leikjavélar).
Kennslustofur og lesherbergi
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Nemendur í tölvunarfræði læra oft saman á ákveðnu svæði í Sólinni.
Þjónusta
Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.
Verslanir og kaffihús
Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.
Kennarar
Af hverju meistaranám í tölvunarfræði við HR?
- Eftirsótt sérfræðiþekking fyrir framtíðina.
- Fáðu dýpri þekkingu á því sviði sem þú hefur mestan áhuga á.
- Fáðu reynslu í rannsóknum og betri getu til að hugsa út fyrir boxið og leita nýrrar þekkingar - út starfsferilinn.
- Taktu þátt í raunverulegum vísindaverkefnum sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið.
- Njóttu betri starfsmöguleika, hvar sem er í heiminum.
- Nýttu valnámskeið til að móta námið að þínu áhugasviði.
- Fáðu tækifæri til að vinna með mörgum af afkastamestu fræðimönnunum í tölvunarfræði á Íslandi.*
- Fáðu undirbúning fyrir doktorsnám.