Raforku-verkfræði
Hvað læri ég?
Flutningur og framleiðsla raforku er afar mikilvægt viðfangsefni fyrir íslenskt samfélag. Daglegt líf okkar og rekstur fyrirtækja veltur á því að flutningur raforku sé öruggur og framleiðsla rafmagns stöðug. Raforkukerfi taka örum breytingum og það er nauðsynlegt að rafmagnsverkfræðingar framtíðarinnar séu vel í stakk búnir til að takast á við þær.
Framleiðsla og flutningur orku
Raforkuverkfræði fjallar um uppbyggingu og rekstur raforkukerfa og framleiðslu raforku. Einnig fæst greinin við flutning orkunnar og hvernig hægt er að uppfylla kröfur um samfellda en breytilega raforkunotkun árið um kring. Raforkuverkfræði fjallar líka um það hvernig einstakir kerfishlutar eru byggðir upp, hvaða kröfur þarf að gera til þeirra og ekki síst hvernig þeir vinna saman sem ein heild á sem bestan og hagkvæmastan hátt.
Fimm ára nám
Verkfræði er í heildina fimm ára nám, 300 ECTS einingar. Nemendur öðlast löggilt starfsheiti sem verkfræðingar eftir bæði BSc- og MSc-nám.
Alþjóðlegt nám á Íslandi
Fjöldi erlendra nemenda er í framhaldsnámi í raforkuverkfræði og raforkuvísindum við Háskólann í Reykjavík sem kennt er í samvinnu við Iceland School of Energy . Nemendur á lokaári BSc og í meistaranámi fá tækifæri til að kynnast og vinna með nemendum og kennurum frá ólíkum löndum með fjölbreytt viðhorf og reynslu. Nemendur sem útskrifast úr raforkuverkfræði frá HR hafa því breiðara tengslanet á alþjóðavísu en venjan er á Íslandi.
Hvernig læri ég?

Undirstöðunámskeið
Á öllum námsleiðum í verkfræði eru fyrstu annir námsins helgaðar undirstöðunámskeiðum sem nýtast verkfræðingum alla starfsævina. Að námskeiðunum loknum hafa nemendur góða þekkingu á:
- Stærðfræði
- Eðlisfræði
- Forritun
- Verkefnastjórnun
- Sjálfbærni
Sérhæfð námskeið
Eftir fyrsta árið er námið sífellt meira sniðið að hverri og einni námsleið. Sérhæfð námskeið námsleiðarinnar byggja undir meiri sérhæfingu
Sérhæfð námskeið í raforkuverkfræði eru t.d:
- Efnafræði
- Greining rása
- Rafsegulfræði og hálfleiðarar
- Mælikerfi
- Hönnun rása
- Merki og kerfi
- Rafmagnsvélar
- Reglunarfræði
- Rafeindatækni
- Hermun raforkukerfa
Verkfræði X
Á sjöttu önn BSc-náms ljúka allir nemendur í verkfræði viðamiklu lokanámskeiði. Í námskeiðinu vinna nemendur verkefni í hópum þar sem að unnið er frá hugmynd að lokaafurð. Viðfangsefnin eru ýmist sérsniðin vekefni fyrir mismunandi námsleiðir eða unnið þvert á þær. Námskeiðið er góður undirbúningur fyrir atvinnulífið.
Áhersla á sjálfbærni
Málefni sjálfbærni og umhverfis eru sífellt mikilvægari í okkar umhverfi. Í verkfræðináminu er brugðist við þessu í þremur skyldunámskeiðum. Á fyrstu önn fara allir verkfræðinemar í námskeið um orkunýtingu og í námskeiðinu Inngangur að verkfræði er áhersla á sjálfbærni og umhverfi. Á fimmtu önn er svo sérstakt námskeið um sjálfbærni. Auk þessa eru umhverfismál tengd við umfjöllunarefni annarra námskeiða.
Val
Nemendur geta valið sér námskeið eftir áhugasviði t.d. starfsnám, námskeið úr öðrum námsleiðum verkfræðinnar eða úr öðrum deildum HR.
12+3 kerfið
Í náminu eru annirnar brotnar upp í tvo hluta. Fjögur námskeið eru kennd í 12 vikur og síðan er prófað úr þeim. Að prófum loknum taka við þriggja vikna námskeið við þar sem námsefnið er sett í hagnýtt samhengi með verkefnavinnu, hópavinnu og/eða samstarfi við fyrirtæki.
Starfsnám
Nemendur geta sótt um 6 ECTS starfsnám á síðasta ári BSc-námsins. Líkt er eftir atvinnuleit þar sem nemendur senda inn ferilskrá og kynningarbréf og fyrirtækin velja úr hópi umsækjenda og boða í viðtöl.
Markmið með starfsnámi er m.a. að efla tengsl nemenda tækni- og verkfræðideildar HR við atvinnulífið, auka innsýn og skilning nemenda á viðfangsefnum síns fagsviðs og undirbúa þá undir störf að loknu námi með úrlausn raunhæfra viðfangsefna á vettvangi.
Skiptinám
Nemendur geta sótt um að fara í skiptinám við erlendan háskóla. Nemendur í BSc-námi þurfa að vera með 7 eða hærra í meðaleinkunn og að hafa lokið 60 einingum þegar þeir fara í skiptinámið. Alþjóðaskrifstofa veitir frekari upplýsingar um hvert hægt er að fara í skiptinám.
Klúbbastarf
Nemendur geta tekið þátt í alls konar starfi sem tengist verkfræðinni t.d. verið í Formúlu-liði skólans (RU Racing), róbótaklúbbnum eða tekið þátt í nýsköpunar- eða stjórnunarkeppnum.
Í HR fá verkfræðinemar ótal tækifæri til þess að leysa raunveruleg vandamál og læra á hönnunarferlið allt frá hugmynd, hönnun og smíði að virkni.
Ertu með spurningar um námið?
Að námi loknu
Starfsvettvangur
Nemandi sem sérhæfir sig sem raforkuverkfræðingur getur unnið að margvíslegum verkefnum hjá fyrirtækjum sem reka raforkukerfi á Íslandi eins og Orkuveitu Reykjavíkur, Landsneti, Landsvirkjun, Orkubúi Vestfjarða og RARIK, eða hjá þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem koma að hönnun, vinnu við uppsetningu eða viðhaldi raforkukerfisins.
Raforkuverkfræðingar eru einnig eftirsóttir hjá hinum stærri notendum raforku eins og álverunum þar sem mörg úrlausnarefni snúa að raforkukerfum sem þessir notendur reka sjálfir.
Þeir sinna auk þess fjölbreyttum tækni- og stjórnunarstörfum innan fyrirtækja sem leysa margþætt verkefni allt frá róbótafræði og tölvuþjónustu til samskipta- og upplýsingatækni.
Starfsréttindi
Til að öðlast starfsréttindi og leyfi til að nota lögverndaða starfsheitið verkfræðingur þarf að ljúka MSc-gráðu í samræmi við kröfur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Skipulag náms
Í þriggja ára grunnnámi til BSc-gráðu kynnast nemendur undirstöðugreinum í raforkuverkfræði. Til að öðlast sérhæfingu og starfsréttindi sem verkfræðingur þarf að BSc-námi loknu að ljúka tveggja ára MSc-námi. Verkfræði, BSc og MSc, er 5 ára námsleið (alls 300 einingar) sem uppfyllir skilyrði fyrir lögverndaða starfsheitið verkfræðingur.
Þriggja vikna námskeið
Aðstaða
Nemendur í raforkuverkfræði hafa aðgang að orkutæknistofu og rafeindatæknistofu. Auk þess hafa þeir aðgang að efnafræðistofu og í sumum tilvikum aðstöðu í kjallara háskólabyggingarinnar fyrir stærri verkefni.
Orkutæknistofa
Nemendur í námskeiðum á borð við varmafræði, varmaflutningsfræði, straumfræði og tengdum greinum sækja verklegan hluta námsins í þessa stofu og framkvæma tilraunir er tengjast þeim viðfangsefnum. Orkutæknistofan býður upp á góða aðstöðu fyrir rannsóknarverkefni og lokaverkefni nemenda í grunnnámi og meistaranámi í verkfræði og tæknifræði. RU Racing lið Háskólans í Reykjavík hefur aðsetur í stofunni.
Rafeindatæknistofa
Í stofunni er unnið að verkefnum og tilraunum á sviði rafeindatækni, rafmagnsfræði, raforku, stýringum og sjálfvirkni. Stofan býður jafnframt upp á aðsetur fyrir nemendur sem vinna að stærri verkefnum eða lokaverkefnum í grunnnámi eða meistaranámi. Þar er fjöldinn allur af tækjum og mælitækjum, á borð við sveiflusjár, örtölvur, AD-breytur, iðnaðarróbóta o.s.frv. Mikið safn er af íhlutum fyrir rásavinnu og góð aðstaða til að setja saman rásir.
Kennarar
Af hverju verkfræði í HR?
- Kennt er í 12 vikur og svo tekur við þriggja vikna hagnýtur áfangi.
- Markviss verkefnavinna með raunverulegum viðfangsefnum.
- Líkt eftir atvinnulífinu: nemendur ljúka hinu viðamikla verkfræði X námskeiði.
- Frábær aðstaða fyrir verklegt og bóklegt nám.
- Góður stuðningur í námi frá hjá náms- og starfsráðgjöfum, starfsfólki bókasafns, skrifstofum deilda og kennurum.
- Allar námsleiðir eru í boði sem samfellt fimm ára nám (BSc & MSc).
- Nemendur hljóta þekkingu í raungreinum og þjálfun í aðferðafræði og vinnubrögðum sem gagnast til framtíðar.
- Möguleiki á starfsnámi
- Nemendur geta sótt um leigu á herbergi eða íbúð í Háskólagörðum HR sem eru við rætur Öskjuhlíðar.
- Allt nám undir einu þaki.