Áfangi í upplýsingaöryggi: Háskólinn í Reykjavík hlýtur ISO 27001 vottun
Upplýsingatæknisvið Háskólans í Reykjavík hefur hlotið vottun samkvæmt ISO/IEC 27001:2022, sem er alþjóðlegur staðall fyrir stjórnun upplýsingaöryggis.
Vottunin er staðfest af óháðum úttektaraðila og byggir á reglulegum úttektum. Hún markar því ekki lokapunkt, heldur skuldbindingu háskólans um stöðugar umbætur í síbreytilegu umhverfi upplýsingaöryggis.
„Við erum stolt af þessum áfanga og þökkum öllu því starfsfólki sem lagði sitt af mörkum til þess að hann yrði að veruleika,“ segir Sæmundur Friðjónsson, forstöðumaður upplýsingatæknisviðs HR.
Hvað felst í vottuninni?
Vottunin staðfestir að upplýsingatæknisvið HR vinnur með kerfisbundnum og öguðum hætti að því að:
- greina og stýra áhættu áður en hún verður að vandamáli
- vernda trúnað, heilindi og aðgengi að upplýsingum
- bregðast við öryggisógnum af öryggi og yfirvegun
- bæta verkferla jafnt og þétt í takt við þróun upplýsingaöryggis
Jafnframt stuðlar vottunin að auknu rekstraröryggi gagnvart öryggisógnum og styrkir traust nemenda, starfsfólks, samstarfsaðila og annarra hagaðila á meðferð upplýsinga innan háskólans.
Dagsetning
Deila