Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
30. apríl 2026

Nemendur frá University of Southern Maine í vinningsferð til Íslands

Hópur frá University of Southern Maine heimsótti Háskólann í Reykjavík í vikunni. Í hópnum voru aðstoðarrektor háskólans, starfsmenn, og nemendur. Heimsóknin var hluti af verðlaunaferð bandarísku nemendanna til Íslands á Iceland Innovation Week en þau unnu nýja hugmyndasamkeppni við USM sem haldin var að fyrirmynd slíkra keppna í HR.

Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, aðstoðarrektor rannsókna, nýsköpunar og atvinnulífstengsla við HR, leiddi hópinn í skoðunarferð um bygginguna og rannsóknarsetur HR.

Skoðunarferðin hófst í Hreyfiveikisetrinu þar sem Dr. Paolo Gargiulo, prófessor við verkfræðideild og forstöðumaður heilbrigðistækniseturs HR, tók á móti hópnum. Innan setursins eru meðal annars stundaðar rannsóknir á sjóveiki og líkamsstöðu með svokallaðri BioVRSea-sýndarveruleikatækni þar sem hjartsláttartíðni, heilalínurit og rafgreining eru notuð til að rannsaka þá lífeðlisfræðilegu þætti er búa að baki. Útskýrði Paolo tæknina fyrir gestum og síðan fengu nokkrir hugaðir úr hópnum að prófa.

Paolo er mikilvirkur fræðimaður á sviði heilbrigðisverkfræði og frumkvöðull í þróun og þrívíddaprentun líffæralíkana til nota í klínískum aðgerðum. Var hann sæmdur riddaratign ítalska ríkisins (Knight of the Order of the Star of Italy) fyrir framlag sitt til akademísks og vísindalegs samstarfs milli Ítalíu og Íslands síðastliðið haust.

Þá heimsótti hópurinn fjölbreytt rannsóknasetur Háskólans í Reykjavík. Að skoðunarferð lokinni kynntu nemendur í Taktínni, vinningsliði Vitans 2025, verðlaunahugmynd sína fyrir gestum og loks kynntu nemendur frá UMS sína verðlaunahugmynd er sneri að áskorun í nýsköpun.

Með í för frá HR voru einnig Hrafntinna V. Karlsdóttir, verkefnastjóri atvinnulífstengsla, Rakel Gunnarsdóttir, viðburðastjóri, Guðmundur Kristjánsson, kennari við tæknifræðideild, og Hákon Valur Harldsson, lektor við verkfræðideild.

Við þökkum hópnum frá University of Southern Maine kærlega fyrir ánægjulega heimsókn.

30. apríl 2026
Nýjustu fréttirnar