Heilræði í pallborðsumræðum um Kraft kvenna
Á vel sóttri málstofu um Kraft kvenna (e. Fuelling Females) í síðustu viku, nýrri fyrirlestraröð um næringu og lífeðlisfræði kvenna í íþróttum og hreyfingu, fóru fram líflegar pallborðsumræður eftir að dr. Christopher Curtis, dósent við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, flutti lykilerindi.
Í pallborðinu sátu Sara Sigmundsdóttir, atvinnukona í CrossFit, Eygló Fanndal Sturludóttir, Evrópumeistari í ólympískum lyftingum og íþróttamaður ársins 2025, Ágústa Edda Björnsdóttir, margfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum, Agnes Þóra Árnadóttir, fyrrverandi knattspyrnukona og næringarfræðingur, og Erla Guðmundsdóttir, íþróttafræðingur, heilsumarkþjálfi og stjórnandi hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum.
Umræðum stýrði Silja Úlfarsdóttir, fyrrverandi afreksíþróttakona og þjálfari.

Ekki gleyma andlegri og félagslegri næringu
Áhersla var lögð á reynslu kvenna og lauk Silja umræðunum á því að spyrja hvaða ráð þær vildu að hver einasta kona vissi varðandi líkama sinn, heilsu eða frammistöðu.
Erla ræddi mikilvægi heildrænnar heilsu.
„Af því að ég er heilsumarkþjálfi spái ég rosalega mikið í heildræna heilsu. Þó að mataræðið okkar væri 100 prósent, ef við erum ekki að sinna andlegu næringunni og félagslegu næringunni þá erum við ekki að ná okkar hámarksgetu, hvorki í lífinu né í íþróttum.
Ekki gleyma að næra ykkur andlega og félagslega líka, ekki bara líkamlega með svefni, mataræði og hreyfingu, heldur öllu öðru líka. Það er ráðið sem ég vil að allar konur viti,“ sagði Erla.

Skiptir ekki máli hvað aðrir gera
„Ég vil hvetja konur til að hlusta á sinn líkama, ekki vera alltaf að bera sig saman við einhverja aðra eða hvernig einhverjir aðrir líta út. Ef konur hugsa um sig sjálfar og hvað þær þurfa að gera til að bæta frammistöðumarkmið sín og huga að langtímaheilsu.
Ef eitthvað er gott fyrir frammistöðu og heilsu þá er það 100 prósent líka gott fyrir fituprósentuna eða Instagram-myndina eða hvað það er. Hugsa um þetta tvennt og sjálfan sig. Það skiptir ekki máli hvað einhver annar er að gera,“ sagði Agnes Þóra.

Þarft að samþykkja þig eins og þú ert
Sara tók í svipaðan streng og Agnes Þóra.
„Þú ert með þér restina af lífinu þínu. Þú þarft að samþykkja þig eins og þú ert. Ég man að ég hataði hvað ég var axlabreið þegar ég var yngri og ég hataði hvað ég fékk vöðva hratt, skammaðist mín.Um leið og ég samþykkti að þetta væri stefnan sem ég ætti að taka þá líður manni svo miklu betur í eigin skinni.
Eins og Agnes talar um, hættið að bera ykkur saman. Ef einhver hefði sagt þetta við mig þegar ég var tólf ára: „Þú ert að fara að verða geggjaður íþróttamaður í framtíðinni og ógeðslega sterk.“ „Ha, ég?“ Ég var alltaf að bera mig saman við það sem mig langaði að vera. Þannig að ég myndi segja samþykki á þínu eigin skinni,“ sagði Sara.

Eygló sagði að lokum að ekkert jafnist á við tilfinninguna að upplifa sig hraustan og sterkan.
„Það er það besta sem ég veit. Ef það þýðir að ég borða aðeins meira er það þess virði. Það er svo gott að upplifa að maður sé með þetta og líði vel. Ég myndi segja að það sé tilfinning sem jafnist ekki á við neitt, að maður geri það sem þarf til þess að upplifa hana,“ sagði Eygló.

Áhugasamir geta horft á málstofuna í heild sinni hér.
Frekari upplýsingar og alla fyrirlestrana má nálgast á síðu Krafts kvenna.
Dagsetning
Deila