Nýnemadagar HR í vikunni
Nýnemadagar fara fram dagana 13. - 14. ágúst í Háskólanum í Reykjavík. Á nýnemadögum eru nýnemar í grunnnámi við HR boðnir velkomnir með fjölbreyttri dagskrá. Í ár eru nýnemar rúmlega 900 talsins.

Á nýnemadögum kynna allar deildir HR, nemendafélög skólans og nemendaþjónusta HR starfsemi sína. Boðið verður upp á reglulegar gönguferðir um skólann með leiðsögn og nýnemadögum verður svo lokað með heljarinnar grillveislu í Sólinni.
Nemendur fá að kynnast húsakynnum skólans, hitta kennara og samnemendur, starfsfólk deilda og annað starfsfólk HR. Auk þess geta nemendur kynnt sér fjölbreytta stoðþjónustu skólans, þar á meðal bókasafnið, nemendaráðgjöf og alþjóðasvið.

Mæting er frjáls á alla viðburði báða dagana en nýnemar eru eindregið hvattir til að mæta á sem flesta þeirra til þess að hita upp fyrir komandi önn.
Hvað er farið yfir á nýnemadögum HR?
Á nýnemadögum munu nemendur fá grunnupplýsingar hjá kennurum, deildarforsetum og starfsfólki þeirra deilda sem nemendur eru að hefja nám hjá. Vandlega verður farið yfir hverju megi búast við þegar kemur að náminu sjálfu. Þá verður einnig fræðsla um allt annað; háskólanám í hnotskurn, hvernig nemendur geta fengið sem mest út úr náminu, upplýsingar um upplýsingatæknisvið HR, skiptinám, náms- og starfsráðgjöf og innri vef nemenda (Canvas). Nemendafélögin munu kynna sig og stoðþjónustur verða með upplýsingabása.

Sjá einnig ýmsar hagnýtar upplýsingar um að hefja nám og Nemendahandbók HR.
Starfsfólk þjónustuborðs HR í Sólinni tekur vel á móti öllum nýnemum og hvetur þá til að leita til sín með hvaða spurningar sem er, sérstaklega fyrstu dagana þegar allt er nýtt og framandi.
Dagsetning
Deila