Ótal spennandi tækifæri fyrir nemendur innan NeurotechEU háskólanetsins
Stefán Magni Stefánsson stundar nám í viðskiptafræði með tölvunarfræði við HR. Hann sótti nýverið European Student Assembly í Strasbourg fyrir hönd skólans í gegnum NeurotechEU háskólanetið.
Á þinginu eru leiddir saman nemendur frá fjölmörgum löndum og háskólum til að ræða ákveðin málefni og koma með tillögur að stefnumótun. Nemendur koma með sína þekkingu, sýn og reynslu að borðinu og vinna saman að hugmyndum um hvað mætti bæta eða gera öðruvísi.
Ég var í hópi sem vann með hringrásarhagkerfið. Við vorum fjögur í teymi og unnum að tveimur tillögum sem voru síðan samþykktar. Það var mjög skemmtilegt og lærdómsríkt að fá að vinna með fólki sem kemur úr allt öðrum aðstæðum og er með annan bakgrunn en maður sjálfur.
Segir Stefán Magni og bætir við að það hafi staðið upp úr í ferðinni að hitta og kynnast fólkinu í raunheimum sem hann hafði unnið með á netinu undanfarna mánuði.
Það stendur upp úr hjá mér að hitta þetta ótrúlega klára og skemmtilega fólk, fara út að borða, tala saman og á endanum geta kallað mörg þeirra góða vini mína. Eins var gaman að sjá hvað við erum öll á raun á svipuðum stað þó fólk sé komið lengra í námi. Allir eru bara að reyna sitt besta, vilja gera eitthvað áhugavert og njóta lífsins.
Segir Stefán Magni og segir NeurotechEU vissulega opna á tengingar við aðra háskóla og tækifæri sem hann mun fylgjast vel með hér eftir. Margt sé í boði sem nýtist nemendum við HR, jafnt í grunn-, meistara- eða doktorsnámi. Í raun megi segja að eftir þátttökuna í European Student Assembly sé framtíðin nú meira óskrifað blað.
Í raun er ég ekki með jafn skýra mynd af framtíðinni núna og áður. Það er smá óþægilegt en um leið spennandi því ég sá að það eru fleiri möguleikar í boði en ég hélt. Ég ætlaði að klára námið, vinna á einhverjum stað, þar sem viðskipti og tækni mætast, og mögulega halda áfram að byggja upp mín eigin verkefni samhliða því. En núna finnst mér eins og sá stígur sem ég var á hafi í raun horfið og ég geti valið um að fara í miklu fleiri áttir.
Segir Stefán Magni sem hefur ætíð haft mikinn áhuga á hagfræði og rekstri og svo hafi tölvunarfræðin verið skemmtileg viðbót. Honum hefur þótt námið skemmtilegt og standa upp úr að námsefnið sé hagnýtt og tengt við raunverulegar aðstæðu. Það henti honum vel því hann viljil skilja af hverju eitthvað skipti máli og hvernig megi nota það í framkvæmd.
.
Dagsetning
Deila