Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
12. febrúar 2026

Tvö lið HR-inga báru sigur úr bítum í Hönnunarkeppni HÍ

Liðið RAM ætur hreppti fyrsta sætið í Hönnunarkeppni HÍ sem fram fór á UTmessunni í Hörpu um síðastliðna helgi. Liðið skipa þeir Skírnir Eiríksson, nemandi í vélaverkfræði og Valgarð Ernir Emilsson, nemandi í hugbúnaðarverkfræði.

Þeir félagar voru að vonum ánægðir með árangurinn og afrakstur mikillar vinnu sem lá að baki;

RAM æturnar Skírnir Eiríksson og Valgarð Ernir Emilsson

Það var gríðarlega gaman að taka þátt í þessari keppni og gefandi að sjá þessa u.þ.b. 40 klukkutíma vinnu sem við settum í róbótann okkar verða að veruleika. Það hefði verið skemmtilegra að ná atrennu þar sem ekkert klikkaði en ófullkomna atrennan í fyrstu umferð dugði til sigurs og við erum ótrúlega ánægðir með að þetta gekk svona vel.

Segja þeir félagar Skírnir og Valgarð Ernir.

Einnig hlutu viðurkenningu fyrir frumlegustu hönnunina lið RU Robotics með þau Chloe Alex Schaff, doktorsnema í tölvunarfræði, Ingólfur Daníel Árnason og Norbert Maksymilian Kania, Andri Benedikt Egilsson og Páll Hlíðar Svavarsson, nemendur í rafmagnstæknifræði, innanborðs.

Chloe, sem var að taka þátt í slíkri keppni í fyrsta sinn, segir keppnina hafa verið vel heppnaða og gaman að taka þátt. Hún sé ánægð með árangurinn, hópurinn hafi hannað klóka lausn og það hafi verið gaman að byggja flott, lítið vélmenni!

Við óskum okkar ágætu nemendum innilega til hamingu með árangurinn en honum verður fagnar með sérstökum viðburði þann 17. febrúar.

12. febrúar 2026
Nýjustu fréttirnar