Taktíkin er sigurvegari Torgsins 2026
Taktíkin er sigurvegari Torgsins 2026
Átta lið skipuð nemendum úr Háskólanum í Reykjavík tóku þátt í Torginu, hugmyndasamkeppni Reita og HR, sem fór fram í annað sinn dagana 7. til 10. október. Liðið Taktíkin bar sigur úr býtum og tók við verðlaunum í Sólinni laugardaginn 10. október. Í liðinu voru þau Berglind Hrönn Úlfarsdóttir og Brynhildur Lilja Kristinsdóttir, laganemar, og Matthías Jens Ármann og Eiður Áki Arnarsson, hagfræðinemar.

Taktíkin hlýtur í verðlaun skipulagða ferð til Kaupmannahafnar með fulltrúum Reita og HR. Um er að ræða vettvangsferð þar sem sigurvegurunum gefst tækifæri til að kynnast fagfólki úr fasteignabransanum og fasteignaþróun, efla tengslanet sitt og kynna verkefni sitt fyrir samstarfsaðilum Reita í Kaupmannahöfn.
Í Torginu takast liðin á við raunverulega áskorun á sviði fasteigna og þróunar hjá Reitum. Verkefnið í ár sneri að framtíð skrifstofuhúsnæðis og hvernig meginþróun atvinnulífs, samfélags og tækni mun hafa áhrif á það til lengri tíma litið.
„Nemendur sýndu mikinn metnað við að leysa krefjandi verkefni sem lagt var fyrir þá í ár. Það var sönn ánægja að sjá hvernig nemendur nálguðust raunverulegt viðfangsefni úr rekstri Reita og hugmyndir þeirra hafa varpað ljósi á ýmsa áhugaverða anga sem snúa að skrifstofu framtíðarinnar. Það sannaði sig annað árið í röð að Torgið skapar einstakt tækifæri fyrir nemendur til þess að efla sig og tengjast atvinnulífinu og einstaka innsýn fyrir Reiti til framtíðar,“ sagði Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, að keppni lokinni.
Fermetri vann fyrir frumlegustu hugmynd og Mangó fyrir bestu kynningu
Setningarathöfn var haldin 7. október í húsnæði Travel Connect við Suðurlandsbraut 34 en í samstarfi við Reiti hefur Travel Connect gjörbreytt húsnæðinu í glæsilegar skrifstofur þar sem finna má úrvals aðstöðu fyrir starfsfólk útbúna hlýlegum matsal, fjölbreyttri fundaraðstöðu, næðisrýmum, búningsaðstöðu, afslöppunar- og afþreyingarrými fyrir starfsfólk, leikkróki fyrir börn og mörgu fleiru. Kvöldið áður höfðu liðin fengið áskorunina senda og við setningarathöfnina fengu þau nánari útlistun á áskoruninni. Þar gátu þau einnig spurt Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild HR og höfund verkefnisins, nánar út í áskorunina.
Að laugardagsmorgni skiluðu liðin átta inn úrlausnum sínum. Þau héldu svo kynningu á verkefnum sínum fyrir dómnefnd á tilskyldum tíma og stóð Taktíkin sem áður segir uppi sem sigurvegari.
Einnig voru veitt önnur verðlaun, fyrir frumlegustu hugmyndina og bestu kynninguna. Liðið Fermetri hlaut verðlaun fyrir frumlegustu hugmyndina og liðið Mangó fyrir bestu kynninguna.

Liðið Fermetri var skipað þeim Sindra Steini Sigurðssyni og Aroni Inga Björnssyni, byggingartæknifræðinemum, og Jóel Frey Jóhannssyni, orku- og véltæknifræðinema.

Liðið Mangó var skipað þeim Alexander Loga Jónssyni og Ingólfi Ísaki Kristinssyni, fjármálaverkfræðinemum, og Fannari Snævari Haukssyni, Guðbjörgu Gísladóttur og Helga Hrafni Bergmann, viðskiptafræðinemum.
Dómnefndina í ár skipuðu:
- Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita
- Svana Huld Linnet, framkvæmdastjóri viðskiptavinasviðs Reita
- Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania
- Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, aðstoðarrektor rannsókna, nýsköpunar og atvinnulífstengsla í HR
- Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild HR og höfundur verkefnisins
Um Torgið
Í maí 2025 skrifuðu HR og Reitir fasteignafélag undir þriggja ára rammasamning. Samstarfið felur í sér árlega hugmyndasamkeppni fyrir nemendur HR þar sem þeir fá tækifæri til að takast á við raunveruleg verkefni úr starfsemi Reita.
Markmið Torgsins er að skapa vettvang fyrir nýsköpun, skapandi hugsun og samstarf þvert á deildir HR, um leið og nemendur fá verðmæta og hagnýta reynslu af því að vinna með raunveruleg viðfangsefni úr atvinnulífinu. Allir nemendur í HR sem eru í fullu námi geta tekið þátt í Torginu.
Torgið var haldið í fyrsta sinn haustið 2025 þar sem liðið Funi, skipað þeim Emilíu Nótt Davíðsdóttur og Karitas Líf Ríkarðsdóttur, bar sigur úr býtum. Þær fóru í vettvangsferð til Kaupmannahafnar í janúar sl. sem lesa má nánar um hér.
Svipmyndir frá keppninni


















Dagsetning
Deila