Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
9. apríl 2026

Þátttaka skilar nemendum miklvægri reynslu og þekkingu á viðskiptum á verðbréfamörkuðum

Lið HR keppti nýverið í Rotman International Trading Competition (RITC) sem er stærsta alþjóðlega háskólakeppnin í fjármálaviðskiptum. Í liðinu voru fjórir nemendur í verkfræðideild og viðskipta- og hagfræðideild þau Auðunn Fannar Hafþórsson, Birgir Bragi Gunnþórsson, Bríet Ófeigsdóttir og Nína Ann M Guðmundsdóttir.

Um nokkurra ára skeið hefur verið haldið úti hagnýtu valnámskeiði innan viðskipta- og hagfræðideildar HR um verðbréfaviðskipti í tengslum við Rotman Interacive Trader (RITC). Í lok hvers námskeið eru valdir nemendur til að taka þátt í keppninni.

Með hópnum í för var Sævarður Einarsson, kennari við viðskipta- og hagfræðideild, sem kennir áfangann. Hann segir mikinn áhuga hafa verið fyrir námskeiðinu en það hefur verið fullsetið síðustu ár og jafnvel aðeins rúmlega það en þeir nemendur sem hafa fyrstu einkunn ganga fyrir í laus pláss í námskeiðið. 

Þátttaka í keppninni skilar nemendum mjög góðri reynslu og þekkingu á viðskiptum á verðbréfamörkuðum. Verkefnin eru raunhæf og krefjandi og gefa nemendum góða innsýn í það hvað skiptir máli þegar teknar eru viðskiptaákvarðanir. Undirbúningur fyrir keppnina felst í að þjálfa þau í hópavinnu við krefjandi aðstæður og ávinningurinn af vinnunni er betri líkur á góðum árangri í keppninni sjálfri. Í keppninni fá þau svo að upplifa að heimsækja stóran, erlendan háskóla og hitta nemendur úr öðrum háskólum víðsvegar að úr heiminum.

Segir Sævarður en fulltrúar frá 37 háskólum um allan heim, þar á meðal frá mörgum af virtustu viðskiptaskólum heims, tóku þátt í keppninni í ár.

9. apríl 2026
Nýjustu fréttirnar