Námið
Rannsóknir
HR

18. september 2025

Vel heppnaður fundur um framtíðaruppbyggingu tæknifræðináms á Norðausturlandi

Afar vel heppnaður Súpufundur atvinnulífsins fór fram í DriftEA við Ráðhústorg á Akureyri á þriðjudaginn var, þar sem rætt var um framtíð tæknináms á Norðausturlandi. Um 60 manns mættu á fundinn og skapaðist líflegt samtal um leiðir til að efla námið og hvernig styðja megi við framtíðaruppbyggingu greinarinnar.

Það voru Háskólinn á Akureyri og Háskólinn í Reykjavík sem, í samstarfi við Akureyrarbæ og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), stóðu að fundinum.

Dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, Ásgeir Ásgeirsson, deildarforseti tæknifræðideildar HR, Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor HA og Ólafur Jónsson, verkefnisstjóri við HA.

Ásgeir Ásgeirsson, deildarforseti tæknifræðideildar HR, og Ólafur Jónsson, verkefnisstjóri við Háskólann á Akureyri, kynntu námið og Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor HA, og Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, leiddu umræðu um framtíð og þróun námsins.

Fundurinn er hluti af áframhaldandi vinnu sem hófst á fyrirtækjaþingi sem Akureyrarbær og SSNE stóðu fyrir í Hofi í febrúar síðastliðnum. Þar kom skýrt fram vilji þátttakenda til að hittast oftar, efla tengsl og bera saman bækur sínar. Súpufundurinn var svar við þeirri áskorun og liður í áframhaldandi samráði og samstarfi í þágu öflugs atvinnulífs á svæðinu.

Nám í iðnaðar- og orkutæknifræði er kennt í staðarnámi við Háskólann á Akureyri og er tæknifræðinám við Háskólann í Reykjavík. Í HA hlýða nemendur á fyrirlestra í beinu streymi á sama tíma og kennsla fer fram í HR. Aðstoðarkennari sér um dæmatíma og aðstoðar nemendur í HA og verkefnafulltrúi í HA heldur utan um nemendur og námið.

Nemendur ljúka lokaverkefni á sjöundu og síðustu önn námsins. Lokaverkefnið byggist á sérhæfingu hvers og eins og það má vinna í samvinnu við fyrirtæki t.d. á Norðurlandi.

Nýjustu fréttirnar
Sjá allar fréttir