Allir opnunartímar
Staðsetning
Háskólinn í Reykjavík er við Nauthólsvík. Sjá staðsetningu á korti.
Opnunartími
Háskólabyggingin
Aðalinngangar skólans eru ólæstir á eftirfarandi tímum.
- Virkir dagar: 7:30 - 19:00
- Helgar: 8:00 - 17:00
Á öðrum tímum er hægt að komast inn á PIN númeri.
Almennur afgreiðslutími
- Afgreiðslutími þjónustuborðs - mánudaga - föstudaga frá kl. 08:00 - 16:00
- Afgreiðslutími deildarskrifstofa - mánudaga - föstudaga frá kl. 08:00-16:00
- Ath: Nemendur geta nálgast staðfestingar, greiðslukvittanir og vottorð á rafrænu formi í Canvas undir Portal - Documents
Fyrrum nemendur geta nálgast gögn í gegnum slóðina portal.ru.is/external Nánari upplýsingar fást hjá nemendaskrá.
- Sími: 599 6200
- Netfang: nemendaskra@ru.is
Sumaropnun
- Frá 4. júní – 11. júlí verður þjónustuborðið opið frá 09:00-16:00
- Þjónustuborðið verður lokað frá 14. júlí - 5. ágúst.
Skólagjöld
Upplýsingar um skólagjöld eru á vef HR. Sé frekari aðstoðar óskað varðandi greiðslu skólagjalda vinsamlega hafið samband við innheimtudeild með tölvupósti á netfangið innheimta@ru.is.
Bókasafn- og upplýsingaþjónusta
- Bókasafn HR er í Úranus
- Sími: 599 6234
- Netfang: bokasafn@ru.is
Afgreiðslutími bókasafns
Almennur afgreiðslutími
- Mánudaga - föstudaga frá kl. 8:00 - 16:00
- Afgreiðsla safnsins er lokuð um helgar
Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafar veita upplýsingar um námið við HR og aðstoða einstaklinga við að ná árangri í námi, átta sig á áhuga sínum og styrkleikum. Hægt er að bóka tíma hjá náms- og starfsráðgjöfum HR alla virka daga. Náms- og starfsráðgjöf HR er við afgreiðsluna á 1. hæð í Sólinni.
Sálfræðiþjónusta
Nemendur sem hafa áhuga á að nýta sér sálfræðiþjónustu geta sent tölvupóst til: salfraedithjonusta@ru.is eða leitað til náms- og starfsráðgjafar HR sem mun vísa þeim sem taldir eru þurfa eða vilja fá sálfræðiþjónustu í viðtal hjá sálfræðingi.
Tilkynningagátt um ósæmilega hegðun
Hverskonar einelti, kynbundin eða kynferðisleg áreitni er ekki liðin við Háskólann í Reykjavík (sjá siðareglur HR ) og við slíkum tilfellum er brugðist samkvæmt viðbragðsáætlun þar sem m.a. er tilgreint að nemendur sem telja sig hafa orðið fyrir eða orðið vitni að ósæmilegri hegðun á borð við einelti, kynbundna eða kynferðislega áreitni geti tilkynnt það til deildaforseta, forstöðumanns eða rektors.
Önnur þjónusta
Í HR eru þrjár búðir sem selja mat og drykk. Nánari upplýsingar um búðirnar er hægt að finna á vefsíðum þeirra.
- Málið selur heitan og kaldan morgun- og hádegismat. Þar er einnig hægt að fá ávexti, snarl og nammi.
- Háskólabúðin selur matvörur, snarl og allskyns gagnlegar vörur.
- Kaffitár bíður upp á ilmandi kaffibolla og sérvalið meðlæti.