Háskólagarðar HR
Húsnæði fyrir nemendur HR við Nauthólsveg 83 - 87, við rætur Öskjuhlíðar
148
Nýjar íbúðir
400
Heildarfjöldi íbúða
þegar framkvæmdum lýkur
Haustið 2028
Áætluð verklok
Búðu í göngufæri við Háskólann í Reykjavík sem og miðbæ Reykjavíkur. Háskólagarðar HR standa við rætur Öskjuhlíðar, örfáum mínútum frá háskólabyggingunni. Í boði eru 252 íbúðir fyrir nemendur — allt frá einstaklingsherbergjum til fjölskylduíbúða.
Framkvæmdir standa yfir á byggingarreitum við Nauthólsveg 85 og 87. Samhliða er unnið að innviðum fyrir Borgarlínu meðfram Nauthólsvegi. Aðgengi að Háskólagörðum og bílastæðum við HR er óskert. Fullbyggðir garðar við Nauthólsveg 83–85 eru í fullum rekstri og framkvæmdirnar hafa ekki áhrif á leigu þar.
Fleiri íbúðir eru á leiðinni. Lokafasi garðanna rís nú við Nauthólsveg 85 og 87 og haustið 2028 verða íbúðirnar um 400 talsins.
Hvað er verið að byggja?
Nauthólsvegur 87 bætist við þegar byggða garða við Nauthólsveg 83–85, ásamt einu húsi til viðbótar á reit 85D. Um er að ræða þriggja til fjögurra hæða fjölbýlishús auk kjallara.
| Byggingarreitur | Heimilisfang | Fjöldi íbúða | Hæðir |
|---|---|---|---|
| 85D | Nauthólsvegur 85 | 18 | 3–4 auk kjallara |
| 87 A–C | Nauthólsvegur 87 | 112 | 3–4 auk kjallara |
| 87D | Nauthólsvegur 87 | 18 | 3–4 auk kjallara |
| Samtals | 148 |
Nauthólsvegur 85 og 87 er staðsettur við vesturjaðar Öskjuhlíðar í Reykjavík þar sem verið er að reisa nýjasta áfanga Háskólagarða Háskólans í Reykjavík (HR). Byggingin hýsir glæsilegar íbúðir fyrir nemendur skólans.

Tímalína framkvæmda
Eftir undirbúning og hönnunarfasa var stórt skref stigið í mars þegar undirritaður var verksamningur við Jáverk ehf um byggingu á 148 nýjum stúdentaíbúðum á byggingarreitum A, B, C og D á Nauthólsvegi 87 og einnig stakt hús á byggingarreit D á Nauthólsvegi 85.
Íbúðirnar eru í eigu HR en Byggingafélag námsmanna (BN) sér um umsóknarferlið, samningagerð og daglegan rekstur líkt og með eldri áfanga skólans. Sjá nánar á heimasíðu BN.
Stúdentaíbúðir — Háskólinn í Reykjavík
- Mars 2026 — Verksamningur undirritaður við Jáverk ehf. um byggingu 148 íbúða.
- Haust 2028 — Áætluð verklok, fyrir upphaf haustannar.
Hvað þýðir þetta fyrir mig?
- Háskólinn í Reykjavík á íbúðirnar og ber ábyrgð á uppbyggingunni.
- Nánari upplýsingar og reglur um úthlutun eru á vef HR.
- Byggingafélag námsmanna (BN) annast umsóknarferli, samningagerð og daglegan rekstur, líkt og með eldri áfanga. BN sér um móttöku og afgreiðslu umsókna. Sótt er um á vef þeirra bn.is.
- Jáverk ehf. er verktaki byggingarframkvæmda.
- Kanon arkitektar hönnuðu byggingarnar.
- Borgarlínan ber ábyrgð á innviðaframkvæmdum við Nauthólsveg. Fyrirspurnir um þær sendist á borgarlinan@borgarlinan.is.
- Samgöngur að og frá HR - Borgarlínan.is
Íbúðir
Háskólagarðar HR bjóða til leigu samtals 252 íbúðir í tveimur íbúðakjörnum við Nauthólsveg 83-85. Lokafasi Háskólagarða HR rís nú við Nauthólsveg 85 og 87. Þegar framkvæmdum lýkur haustið 2028 verða stúdentaíbúðir HR á svæðinu um 400 talsins.
Íbúðirnar eru allar með sér inngangi og stigagöngum úti. Í kjallara eru þvottahús, geymslur, vagna- og hjólageymslur. Í íbúðagarðinum eru hjólaskýli, aðstaða til íþróttaiðkunar (teygjubekkir), kolagrill, setbekkir og opin svæði. Aðeins tekur nokkrar mínútur að labba yfir í Háskólann í Reykjavík en jafnframt er stutt niður í miðbæ Reykjavíkur.
Í boði eru eftirfarandi kostir fyrir nemendur:
Einstaklingsherbergi
- Stærð herbergja: 26 - 27 m2
- Lýsing: Herbergið er með litlum eldhúskrók með áhöldum og sér baðherbergi. Aðgangur er að stóru sameiginlegu eldhúsi, mat- og samkomusal og svölum.
- Hvað fylgir: Með herberginu fylgir rúm sem er 120x200 að stærð, skrifborð, stóll og gluggatjöld. Með einstaklingsherbergjum fylgir aðgangur að sameiginlegu, fullbúnu eldhúsi með öllum búnaði sem til þarf í eldhús, leirtau, potta og pönnur. Á hverri hæð eru 12 herbergi. Þá fylgja geymsluskápar fyrir einstaklingsherbergin sem eru staðsettir í kjallara. Öllum íbúðum fylgir þráðlaust net á vegum HR.
- Mánaðarleiga: Upplýsingar um verð er að finna á vef BN. Verð eru vísitölutengd. Innifalið í leigunni er hússjóður, hiti, og rafmagn.
Einstaklingsíbúðir
- Stærð íbúða: 34 - 41 m2
- Lýsing: Í íbúðinni er eitt svefnherbergi, stofa með eldhúskróki, sér baðherbergi og svalir. Öllum íbúðum fylgir ísskápur og þráðlaust net á vegum HR.
- Mánaðarleiga: Upplýsingar um verð er að finna á vef BN. Verð eru vísitölutengd. Innifalið í leigunni er hússjóður, hiti, og rafmagn.
Paraíbúðir
- Stærð íbúða: 38 - 60 m2
- Lýsing: Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, stofa með eldhúskrók, sér baðherbergi og svalir. Öllum íbúðum fylgir ísskápur og þráðlaust net á vegum HR.
- Mánaðarleiga: Upplýsingar um verð er að finna á vef BN. Verð eru vísitölutengd. Innifalið í leigunni er hússjóður, hiti, og rafmagn.
Fjölskylduíbúðir
- Stærð íbúða: 62 - 77 m2
- Lýsing: Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, stofa með eldhúskrók, sér baðherbergi og svalir. Öllum íbúðum fylgir ísskápur og þráðlaust net á vegum HR.
- Mánaðarleiga: Upplýsingar um verð er að finna á vef BN. Verð eru vísitölutengd. Innifalið í leigunni er hússjóður, hiti, og rafmagn.














