Örnám
Viltu bæta við þig þekkingu eða færni á afmörkuðu sviði?
Hvað er örnám?
Örnám er sveigjanlegt námsform sem veitir tækifæri til að bæta við þekkingu eða færni á afmörkuðu sviði – án þess að þurfa að skrá sig í heila prófgráðu.
Það getur verið tilvalið ef:
- auka á sérhæfingu í ákveðnu viðfangsefni
- auka á hæfni í starfi
- aðstæður bjóða ekki upp á að í hefðbundið háskólanám að fullu
Hvernig virkar örnám?
- Örnám samanstendur af stuttum námskeiðum, yfirleitt frá 1 ECTS og upp úr
- Hægt er að taka einstök námskeið eða sameina þau í „pakka“
- Námið uppfyllir allar gæðakröfur sem gerðar eru til náms á háskólastigi
- Skýr hæfniviðmið liggja til grundvallar og lýsa því sem nemandi lærir og öðlast færni í
Þetta er frábært leið fyrir nemendur sem vilja markvissa færni, án þess að stefna að prófgráðu að svo stöddu. Einnig hentar það þeim sem vilja byggja ofan á fyrri reynslu og nám.
Í lok náms
Við lok námskeiðs eða námsleiðar fær nemandi staðfestingu á námslokum, þar sem fram koma meðal annars:
- Heiti námskeiðs eða námsleiðar
- ECTS einingafjöldi
- Hæfniviðmið og námsniðurstöður
Slík staðfesting getur nýst sem hluti af námsferli, við atvinnuleit eða sem grunnur fyrir frekara háskólanám. Örnám getur jafnframt verið metið inn í prófgráðu á sama námsstigi síðar meir.
Fyrir hverja er þetta?
Örnám er í boði bæði á grunn- og framhaldsstigi. Inntökuskilyrði eru þau sömu og gilda fyrir hefðbundið nám á sama stigi innan Háskólans í Reykjavík.
Það hentar fjölbreyttum hópi fólks – bæði þeim sem eru að hefja nám, snúa aftur í skóla eftir hlé eða leita að leiðum til að styrkja faglega hæfni sína.
Örnám í boði
Háskólinn í Reykjavík (HR) býður upp á eftirfarandi örnám:
- Íþróttasálfræði
Námið er á meistarastigi og er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri. Námið er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og samanstendur af þremur 10 eininga námskeiðum í íþróttasálfræði. Nemendur öðlast þekkingu á hvernig hægt er að bæta frammistöðu og velsæld íþróttafólks með aðferðum íþróttasálfræðinnar á mismunandi æviskeiðum sem og í mismunandi umhverfi á heildrænan hátt. Fjallað verður um íþróttasálfræðilegt mat, hönnun íhlutunar, tengsl geðheilbrigðis og frammistöðu svo eitthvað sé nefnt. Boðið er upp á fjarnám fyrir þetta örnám. - Frammistöðugreining í íþróttum
Nemendur taka þrjú 10 eininga námskeið sem fjalla á einn eða annan hátt um frammistöðugreiningu sem verður sífellt mikilvægari þáttur í íþróttunum. Nemendur læra að greina frammistöðu með myndbandagreiningaforritum og íþróttagreiningartækjum (t.d. GPS vesti). Einnig er nemendum kennt að gera forspá líkön með gagnavinnsluforritum eins og R og Matlab. Þetta er nám fyrir öll sem hafa áhuga á að hagnýta tækni og gagnavísindi til þess bæta frammistöðu íþróttafólks.
Þessi námskeið eru þau sömu og kennd eru í meistaranáminu í íþróttavísindum með áherslu á frammistöðugreiningu, sem gerir nemendum kleift að fá þau metin upp í MSc gráðu síðar meir. Boðið er upp á fjarnám fyrir þetta örnám.
Þessi námskeið eru þau sömu og kennd eru í meistaranáminu í íþróttavísindum með áherslu á frammistöðugreiningu, sem gerir nemendum kleift að fá þau metin upp í MSc gráðu síðar meir.
- Rekstrarfræði
Örnám í rekstrarfræði er stutt og hagnýtt rekstrar- og viðskiptanám, sérstaklega sniðið að einstaklingum á vinnumarkaði. Einstaklingar með iðnmenntun, starfsreynslu og þekkingu á rekstri fyrirtækja eru eftirsóttir í atvinnulífinu. - Upplýsingatækni í mannvirkjagerð
Upplýsingalíkön mannvirkja (BIM – Building Information Model) gera aðilum í byggingariðnaði mögulegt að nýta möguleika upplýsingatækni á sviði hönnunar, framkvæmda og reksturs með úrbætur og gæði að leiðarljósi. Í þessu hagnýta námi öðlast nemendur reynslu, þekkingu og færni í að leysa flókin og þverfagleg vandamál í mannvirkjagerð og stjórna verkefnum með stafrænum lausnum og BIM (Building Information Model).