Hugsaðu öðruvísi, kóðaðu öðruvísi - Haustnámskeið
Stafræn sköpun : Forritun fyrir börn með taugafjölbreytileika
Hugsaðu öðruvísi, kóðaðu öðruvísi - Stafræn sköpun : Forritun fyrir börn með taugafjölbreytileika
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 10 - 15 ára
Um námskeiðið
Námskeiðið er kennt á ensku.
Þetta námskeið verður í boði fyrir nemendur utan höfuðborgarsvæðisins í fjarnámi.
Aðgengilegt námskeið þar sem taugafjölbreytt ungmenni fá að kynnast forritun, sköpun og lausnamiðaðri hugsun í stuðningsríku og inngildandi námsumhverfi. Með verklegum verkefnum og forritun sem hentar byrjendum byggja þátttakendur upp sjálfstraust, stafræna færni og hæfni til að tjá sig á sínum eigin hraða.
Nemendur læra grunnatriði forritunar og stafrænnar sköpunar í stuðningsríku og inngildandi námsumhverfi sem er sérhannað fyrir taugafjölbreytt ungmenni. Á námskeiðinu þróa þau með sér færni í skapandi hugsun, lausn vandamála og að útfæra eigin hugmyndir með verklegum forritunarverkefnum. Þátttakendur kanna hvernig nota megi tækni til þess að búa til leiki, hreyfimyndir og stafræna upplifun, um leið og þeir byggja upp sjálfstraust og vinna á sínum eigin hraða.
Foreldrar eru almennt ekki viðstaddir á námskeiðinu en er velkomið að bíða fyrir utan kennslustofuna og hitta á okkur í nestis- og leikjapásum. Við hvetjum foreldra til að hafa samband ef þörf er á að gera undanþágu.
Kynntu þér kennarann
Dr. Pragya Verma er nýdoktor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, þar sem hún vinnur að því að bæta þátttöku og námsupplifun taugafjölbreyttra nemenda. Pragya er með bakgrunn í tölvunarfræði, hugfræði og heilavísindum ásamt uppeldis- og menntunarfræðum, og beinist rannsóknarvinna hennar að samspili tækni, taugafjölbreytileika og menntunar.
Pragya hefur víðtæka reynslu af vinnu með einhverfum nemendum og kenndi áður námskeiðið Forritun fyrir einhverft ungt fólk við Háskólann í Reykjavík. Á þessu námskeiði nýtir hún rannsóknarþekkingu sína og nemendamiðaða kennsluaðferð til þess að skapa stuðningsríkt, hvetjandi og inngildandi umhverfi fyrir taugafjölbreytt ungmenni á aldrinum 10–15 ára.
Skipulag og verð
- 11 vikna námskeið, einu sinni í viku (þriðjudaga), 120 mínútur í senn
- Frá 22. september til 1. desember 2026
- Tími: 15:30–17:30
- Hugbúnaður sem er notaður: Scratch eða Flowlab
- Forritunarmál notað: Python
- Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík
Stundatafla
| Dagsetning | Dagur | |
| 1 | 22. september 2026 | Þriðjudagur |
| 2 | 29. september 2026 | Þriðjudagur |
| 3 | 6. október 2026 | Þriðjudagur |
| 4 | 13. október 2026 | Þriðjudagur |
| 5 | 20. október 2026 | Þriðjudagur |
| 6 | 27. október 2026 | Þriðjudagur |
| 7 | 3. nóvember 2026 | Þriðjudagur |
| 8 | 10. nóvember 2026 | Þriðjudagur |
| 9 | 17. nóvember 2026 | Þriðjudagur |
| 10 | 24. nóvember 2026 | Þriðjudagur |
| 11 | 1. desember 2026 | Þriðjudagur |
Hagnýtar upplýsingar
- Verð: 62.000 kr. (allt 11 vikna námskeiðið)
- Skráning í gegnum Sportabler - hlekkur á eftir að berast fyrir þetta námskeið
- Hægt er að nýta Frístundastyrk.
- Við bjóðum 15% systkinaafslátt.
- Hafa samband: Starfsfólk Skema - skema@ru.is, 599 6300