Haustfrí 2026 – Skapandi Tæknidagar
Skapandi Tæknidagar er verklegt STEAM-námskeið þar sem börn kanna tækni í gegnum leik og sköpun.
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 5 - 12 ára
Um námskeiðið
Skapandi Tæknidagar er skemmtilegt og fræðandi STEAM-námskeið þar sem börn kynnast tækni í gegnum skapandi og verkleg verkefni.
Nemendur byggja og vinna saman í Minecraft, hanna og forrita sína eigin tölvuleiki, vinna með þrívíddartækni (3D), stýra vélmennum og læra hvernig tölvur virka. Hjá yngri hópum verður lögð áhersla á grunnskilning á tölvum og tækni á meðan eldri nemendur einbeita sér meira að sköpun, hönnun og lausnamiðaðri hugsun í forritun, leikjagerð og 3D-hönnun. Allt námsefni er aðlagað að aldri þátttakenda.
Til að stuðla að heilbrigðri tækninotkun bjó Skema-teymið til app þar sem nemendur taka þátt í ratleik utandyra í Öskjuhlíð, þar sem stuðst er við forritunarkóða. Auk þess nýtir Skema Hetjuspilið, kennslufræðilegt hlutverkaspil sem byggir upp orðaforða og félagsfærni í gegnum samvinnu. Spilað er í litlum hópum, 3–5 börn með leiðbeinanda, þar sem börnin leysa áskoranir með jákvæðum samskiptum, sem er ætlað að veita mótvægi við skjá- og útiverkefni Skema í formi leiks.
Nemendum verður skipt í aldurshópa yfir daginn þar sem þeir munu framkvæma hluti með hliðsjón af aldri þeirra og getu!
Skipulag og verð
- Lengd: 2 dagar
- Lengd: 6 klst. á dag (hægt að velja 1 eða 2 daga)
- Tími: 08:30–15:30
- Verð: 15.900 kr. á dag, 28.900 kr. fyrir tvo daga
Hagnýtar upplýsingar
- Systkinaafsláttur: 15% afsláttur fyrir hvert systkini úr sömu fjölskyldu
- Skráning í gegnum Sportabler
- Hafa samband: Starfsfólk Skema — skema@ru.is, 599 6300