Minecraft fyrir stelpur - Helgarnámskeið
Minecraft fyrir stelpur- Helgarnámskeið
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 8 - 11 ára
Um námskeiðið
Á þessu helgarnámskeiði fá stelpur að skapa, byggja og forrita saman í Minecraft Education í hvetjandi og öruggu umhverfi. Námskeiðið er eingöngu fyrir stelpur og markmiðið er að veita þeim rými til að prófa sig áfram, vinna saman og öðlast sjálfstraust í tækni og sköpun.
Fyrri daginn hanna stelpurnar og byggja sinn eigin heim í sameiningu. Þær skipuleggja, teikna upp hugmyndir og láta þær verða að veruleika. Seinni daginn kynnast þær Code Builder, forritunarumhverfi Minecraft Education, og nota einfalda kubbaforritun til að gæða heiminn lífi. Námskeiðinu lýkur á því að stelpurnar kynna verkin sín fyrir hópnum.
Hjá Skema er opinber Minecraft® vara ekki í boði og Háskólinn í Reykjavík er hvorki tengdur Mojang né Microsoft.
Skipulag og verð
- Dagar: laugardagur og sunnudagur
- Tími: 13:00–16:00
- Verð: 15.900 kr. fyrir helgina (6 klukkustundir samtals)
- Dagsetningar: 31. október og 1. nóvember 2026
Hagnýtar upplýsingar
- Systkinaafsláttur: 15% afsláttur fyrir hvert systkini úr sömu fjölskyldu
- Skráning í gegnum Sportabler
- Hafa samband: Starfsfólk Skema — skema@ru.is, 599 6300