Minecraft: Vísindi & herkænska - Sumarnámskeið
Minecraft: Vísindi & herkænska
Það eru til 72 mismunandi galdraseiðir í Minecraft. Hvernig ætli þeir séu búnir til?

Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 10 - 14 ára
Um námskeiðið
Í Minecraft er mikilvægt að kunna að verjast óvinum sem geta verið skrímsli eða aðrir leikmenn. Til þess þarf að læra að smíða góð vopn, brynklæði, nota boga, brugga seiði og byggja gildrur.
Á námskeiðinu fá nemendur að taka þátt í sannkölluðu Minecraft ævintýri. Nemendur læra brögð og brellur sem hægt er að nota í bardögum, smíða sér góð vopn og velta fyrir sér efnafræði Minecraft. Námsefnið er tengt við raunvísindi í raunheimum með því markmiði að auka áhuga á eðlis- og efnafræði. Í lok námskeiðsins þurfa nemendur að nota það sem þau hafa lært til þess að fara í ævintýraleiðangur og sigra drekan sem bíður þeirra í lok leiksins.
Hjá Skema er ekki í boði opinber Minecraft® vara og Háskólinn í Reykjavík er ekki tengdur Mojang né Microsoft.
Útinám og hreyfing
Nemendur taka þátt í forritunartengdum ratleik utandyra þar sem þeir leysa þrautir og fylgja vísbendingum sem tengjast kóðun og rökhugsun. Verkefnin fara fram í nærumhverfi Háskólans í Reykjavík og efla samvinnu, sköpun, hreyfingu og heilbrigða skjánotkun. Sumarnámskeiðið er jafnframt umfangsmeira en áður með nýjum og spennandi verkefnum.
Systkinaafsláttur
Við bjóðum 15% systkinaafslátt sem auðveldar fjölskyldum að skrá fleiri en eitt barn á námskeiðin.
Skipulag og verð
Sumarnámskeið
- Lengd: 4-5 dagar, 3 klst. á dag
- Tími: 13:00–16:00 Verð: 19.900kr fyrir 4 dag 24.900kr fyrir 5 daga
Næstu námskeið
Sumarnámskeið
- 22. - 26. júní, frá 13:00 til 16:00
- 13. - 17. júlí, frá13:00 til 16:00
- 04. - 07. ágúst, frá 13:00 til 16:00