S.T.E.A.M Könnuðir - Haustnámskeið
Leikandi kynning á S.T.E.A.M fyrir 5–6 ára
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 5 - 6 ára
Um námskeiðið
Á námskeiðinu kynnast börn tækni í gegnum skapandi og verkleg verkefni. STEAM stendur fyrir vísindi (Science), tækni (Technology), verkfræði (Engineering), listir (Arts) og stærðfræði (Mathematics). Námskeiðið er sniðið að þroskastigi yngstu nemendanna, með áherslu á sköpun, forvitni, samvinnu og lausnamiðaða hugsun í gegnum skemmtilegt og hagnýtt nám.
Könnuðir (5–6 ára): Yngstu nemendurnir leggja áherslu á leikbundið nám og fyrstu skref í stafrænum hæfileikum. Með leikjum, sögugerð og myndrænum forritunarverkfærum kynnast þau rökhugsun og grunnatriðum forritunar á aðgengilegan og skemmtilegan hátt. Nemendur fá kynningu á grunnatriðum forritunar með byrjendavænum, myndrænum forritunarverkfærum, ásamt notkun á litlum vélmennatækjum eins og Sphero og Code&Go.
Foreldrar eru almennt ekki með á námskeiðinu en er velkomið að tylla sér fyrir utan kennslustofuna og hitta á okkur í nestis- og leikjapásum. Við hvetjum foreldra til að hafa samband ef nauðsynlegt er að gera undanþágu.
Skipulag og verð
- 11 vikna námskeið, einu sinni í viku (laugardaga), 75 mínútur í senn
- Tími: 11:15–12:30
- Frá 19. september til 28. nóvember 2026
- Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík
Stundatafla
| Dagsetning | Dagur | |
| 1 | 19. september 2026 | Laugardagur |
| 2 | 26. september 2026 | Laugardagur |
| 3 | 3. október 2026 | Laugardagur |
| 4 | 10. október 2026 | Laugardagur |
| 5 | 17. október 2026 | Laugardagur |
| 6 | 24. október 2026 | Laugardagur |
| 7 | 31. október 2026 | Laugardagur |
| 8 | 7. nóvember 2026 | Laugardagur |
| 9 | 14. nóvember 2026 | Laugardagur |
Hagnýtar upplýsingar
- Verð: 35.000 kr. (allt 11 vikna námskeiðið)
- Systkinaafsláttur: 15% afsláttur fyrir hvert systkini úr sömu fjölskyldu
- Hægt er að nýta frístundakort á þetta námskeið
- Skráning í gegnum Sportabler — hlekkur á eftir að berast fyrir þetta námskeið
- Hafa samband: Starfsfólk Skema — skema@ru.is, 599 6300