Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Þrívíddarhönnun – Helgarnámskeið

3D Hönnun & Sköpun – Helgarnámskeið!

Helstu upplýsingar
  • Undanfari: Enginn
  • Aldur: 10 - 15 ára
Um námskeiðið

Þetta helgarnámskeið er STEAM-miðað námskeið sem kynnir nemendur fyrir heimi þrívíddarhönnunar og stafrænnar sköpunar í gegnum gagnvirka og verkefnamiðaða þrívíddarhönnunarvinnu.

Nemendur læra grunnatriði þrívíddarhönnunar og þróa færni sína í að hugsa á skapandi hátt, hanna og útfæra eigin hugmyndir. Á námskeiðinu vinna nemendur að því að hanna og móta sína eigin persónu, sem nýtist í leikjagerð eða hreyfimyndagerð. Áhersla er lögð á tengingu vísinda, tækni, verkfræði, lista og stærðfræði (STEAM), ásamt sköpun, lausnamiðaðri hugsun og sjálfstæðri vinnu.

Skipulag og verð
  • Dagar: laugardagur og sunnudagur 
  • Tími: 12:00–15:00 
  • Verð: 15.900 kr. fyrir helgina (6 klukkustundir samtals) 
  • Dagsetningar: 3. og 4. október 2026 
Hagnýtar upplýsingar
  • Systkinaafsláttur: 15% afsláttur fyrir hvert systkini úr sömu fjölskyldu  
  • Hægt er að nýta frístundakort á þetta námskeið  
  • Skráning í gegnum Sportabler — hlekkur á eftir að berast fyrir þetta námskeið  
  • Hafa samband: Starfsfólk Skema — skema@ru.is, 599 6300
Fara efst