Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Vélmennalið - Haustnámskeið

Liðsheild, hönnun og keppni í vélmennagerð fyrir 11–16 ára

Helstu upplýsingar
  • Undanfari: Enginn
  • Aldur: 11 - 16 ára
Um námskeiðið

Á þessu námskeiði myndar lítill hópur nemenda eitt lið sem hannar, smíðar og forritar eigið vélmenni, eftir sama liðakeppnisfyrirkomulagi og stuðst er við í World Robotics League. Liðið vinnur náið saman að verkefni sem stendur yfir í heilt keppnistímabil, með ríkri áherslu á samvinnu, lausnamiðaða hugsun og íþróttamannsanda.

Liðið:

Hannar og forritar vélmenni til að leysa röð þrauta í vélmennakeppni.

Tekur þátt í nýsköpunarverkefni þar sem raunveruleg viðfangsefni sem tengist þema tímabilsins eru könnuð og leyst.

Byggir upp sterka liðsheild, samskiptafærni og íþróttamannsanda.

Námskeiðinu lýkur með því að liðið keppir í vélmennakeppnum UTmessunni, þar sem það keppir við önnur lið - þar á meðal fullorðna keppendur - í lifandi keppnisumhverfi.

Námskeiðið hentar áhugasömum og lausnamiðuðum nemendum sem vilja upplifa raunverulega liðsvinnu, takast á við krefjandi verkefni sem stendur yfir heilt keppnistímabil, og vera hluti af keppnisliði í vélmennagerð.

Stundatafla
Dagsetning Dagur 
1 17. október 2026 laugurdagur 
 24. október 2026 enginn tími
2 31. október 2026 laugurdagur 
3 7. nóvember 2026 laugurdagur 
4 14. nóvember 2026 laugurdagur  
5 21. nóvember 2026 laugurdagur 
6 28. nóvember 2026 laugurdagur 
7 05. desember 2026 laugurdagur 
8 12. desember 2026 laugurdagur 

Hagnýtar upplýsingar
  • 8 vikna námskeið, einu sinni í viku  (laugurdag), 120 mínútur í senn 
  • Tími: 10:00–12:00
  • Frá 17. oktober til 12. desember 2026 
  • Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík 
  • Liðsstærð: Takmarkað pláss — fámennt lið. 
Fara efst