Vélmennalið - Haustnámskeið
Liðsheild, hönnun og keppni í vélmennagerð fyrir 11–16 ára
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 11 - 16 ára
Um námskeiðið
Á þessu námskeiði myndar lítill hópur nemenda eitt lið sem hannar, smíðar og forritar eigið vélmenni, eftir sama liðakeppnisfyrirkomulagi og stuðst er við í World Robotics League. Liðið vinnur náið saman að verkefni sem stendur yfir í heilt keppnistímabil, með ríkri áherslu á samvinnu, lausnamiðaða hugsun og íþróttamannsanda.
Liðið:
Hannar og forritar vélmenni til að leysa röð þrauta í vélmennakeppni.
Tekur þátt í nýsköpunarverkefni þar sem raunveruleg viðfangsefni sem tengist þema tímabilsins eru könnuð og leyst.
Byggir upp sterka liðsheild, samskiptafærni og íþróttamannsanda.
Námskeiðinu lýkur með því að liðið keppir í vélmennakeppnum WRL og UTmessunni, þar sem það keppir við önnur lið - þar á meðal fullorðna keppendur - í lifandi keppnisumhverfi.
Námskeiðið hentar áhugasömum og lausnamiðuðum nemendum sem vilja upplifa raunverulega liðsvinnu, takast á við krefjandi verkefni sem stendur yfir heilt keppnistímabil, og vera hluti af keppnisliði í vélmennagerð.
Stundatafla
| Dagsetning | Dagur | |
| 1 | 8. október 2026 | Fimmtudagur |
| 2 | 15. október 2026 | Fimmtudagur |
| 3 | 22. október 2026 | Fimmtudagur |
| 4 | 29. október 2026 | Fimmtudagur |
| 5 | 5. nóvember 2026 | Fimmtudagur |
| 6 | 12. nóvember 2026 | Fimmtudagur |
| 7 | 19. nóvember 2026 | Fimmtudagur |
| 8 | 26. nóvember 2026 | Fimmtudagur |
Hagnýtar upplýsingar
- 8 vikna námskeið, einu sinni í viku (fimmtudag), 120 mínútur í senn
- Tími: 16:30–18:30
- Frá 08. oktober til 03. desember 2026
- Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík
- Liðsstærð: Takmarkað pláss — fámennt lið.