Hagfræði og samfélagið
Í tilefni þess að áratugur er frá því að kennsla til BSc gráðu í hagfræði hófst við Háskólann í Reykjavík heldur viðskipta- og hagfræðideild HR ráðstefnu þann 26. ágúst.
Tveir lykilfyrirlesarar munu halda erindi. Lawrence F. Katz, Elisabeth Allison prófessor í hagfræði við Harvard háskóla mun fjalla um uppbyggingu hverfa með sterka framtíðarmöguleika og
Claudia Goldin, Henry Lee prófessor í hagfræði við Harvard háskóla og Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði 2023 mun fjalla um aukið sjálfstæði kvenna og minnkandi fæðingartíðni.
Frítt er á ráðstefnuna en skráning er nauðsynleg þar sem takmarkaður fjöldi sæta er í boði.
Dagskrá
- 10:00 - Kaffi
- 10:30 - Opnun
Dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, og dr. Stefan Wendt, deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar - 10:45 - Creating High-Opportunity Neighbourhoods
Lawrence F. Katz, Elisabeth Allison prófessor í hagfræði við Harvard háskóla. - 12:00 - Léttur hádegisverður
- 13:00 - The Rise of Female Autonomy and the Decline of Fertility
Claudia Goldin, Samuel W. Morris University prófessor í hagfræði við Harvard háskóla Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði 2023. - 14:30 - Pallborðsumræður
Claudia Goldin, Samuel W. Morris University prófessor í hagfræði við Harvard háskóla
Lawrence F. Katz, Elisabeth Allison prófessor í hagfræði við Harvard háskóla
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi forstöðumaður Lýðræðis- og mannréttindastofnunar (Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu), utanríkisráðherra og borgarstjóri.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur og formaður stéttarfélagasamtakanna BSRB
Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
Katrín Ólafsdóttir, dósent við viðskipta- og hagfræðideild stýrir umræðum - 15:30 - Lokaorð
- 15:40 - Móttaka
Claudia Goldin

Lawrence F. Katz

Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.