Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Háskólinn í Reykjavík er virkur þátttakandi í alþjóða rannsóknarsamfélaginu. Matsnefnd skipuð erlendum sérfræðingum gerir úttekt á rannsóknum allra akademískra starfsmanna annað hvert ár. Að auki er rannsóknarstarf skólans metið af Gæðaráði íslenskra háskóla fimmta hvert ár.

Erlenda matsnefndin er sérstaklega beðin um að hafa í huga, að við allan alþjóðlegan samanburð á rannsóknarvirkni innan einstakra vísindasviða/-greina og áhrifum (e. impact) skal taka mið af;

  • Birtingum
  • Tilvitnunum
  • Rannsóknarvinnu
  • Leiðbeiningu doktorsnema/nýdoktora
  • Öflun rannsóknarstyrkja
  • Setu í ritstjórnum
  • Ritrýni
  • Þátttöku í alþjóðlegum verkefnum
  • Skipulagningu vísindaráðstefna
  • Mati á doktorsritgerðum, o.fl.  

Stigakerfi

Erlenda matsnefndin raðar akademískum starfsmönnum í eftirfarandi fimm flokka, þ.e. gefur rannsóknarstig á kvarðanum 0-4:

  • 0. Engin eða lítil sem engin rannsóknarvirkni (e. None or insignificant research activity).
  • 1. Lítil en ekki ómarkverð rannsóknarvirkni (e. Little but nontrivial research activity).
  • 2. Framlag til alþjóðlega rannsóknarsamfélagsins eða ef viðeigandi til íslenska rannsóknarsamfélagsins (e. Contributes to the international research community or domestic where appropriate).
  • 3. All nokkur og virk þátttaka í alþjóðlega rannsóknarsamfélaginu eða ef viðeigandi í íslenska rannsóknarsamfélaginu, með greinilegu framlagi og áhrifum (e. Considerable and active participant in the international research community or domestic where appropriate, with a clear contribution and impact).
  • 4. Veruleg og virk þátttaka í alþjóðlega rannsóknarsamfélaginu eða ef viðeigandi í íslenska rannsóknarsamfélaginu, með talsverðu framlagi og áhrifum (e. Significant and active participant in the international research community or domestic where appropriate, with a substantial contribution and impact).
Fara efst