Námið
Rannsóknir
HR

Akademískur styrkur

Skýrsla um styrk HR í rannsóknum 

Mat á rannsóknarvirkni allra akademískra starfsmanna skólans, sem var fyrst gert árið 2007, gefur mjög góðar upplýsingar um akademískan styrk skólans og þróun hans. Á hverju ári er gefin út skýrsla um þróun rannsóknarstarfsins innan Háskólans í Reykjavík. Sjá má á innihaldi skýrslunnar að rannsóknarvirkni hefur aukist jafnt og þétt og fjöldi birtinga á ritrýndum vettvangi að sama skapi.

Hvetjandi þættir 

Staða Háskólans í Reykjavík hefur styrkst verulega á aðeins örfáum árum og tekist hefur að byggja upp sterkt og frjótt rannsóknarumhverfi innan háskólans. Skýringa á þessum markverða árangri má án efa rekja til margra þátta og/eða aðgerða í starfsumhverfi hans og eru hér aðeins nefndir nokkrir þeirra.

Alþjóðlegar kröfur 

Samkvæmt rannsóknarstefnu háskólans eiga vísindamenn hans að vera virkir þátttakendur í vísindasamfélaginu og rannsóknir við HR eiga að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til vandaðra vísindarannsókna á alþjóðlegum vettvangi. Vísindamönnum skólans er sett það markmið að öðlast alþjóðlega viðurkenningu fyrir störf sín og mikilvægasti mælikvarðinn á afrakstur rannsóknarstarfs er birtingar á ritrýndum alþjóðlegum vettvangi.

Reglulegt mat

Rannsóknarvirkni allra akademískra starfsmanna skólans er metin af erlendri nefnd sérfræðinga. Helstu viðmið í þessu mati eru m.a.: 

  • Birtingar á ritrýndum vettvangi
  • Önnur rannsóknarstörf svo sem leiðbeiningar rannsóknarnema
  • Þátttaka í alþjóðlegu rannsóknarstarfi
  • Öflun rannsóknarfjár úr samkeppnissjóðum
Rannsóknaráð

Við skólann starfar öflugt rannsóknaráð, sem skipað er einum fulltrúa frá hverri deild auk formanns sem skipaður er af rektor í samráði við forseta deilda. Ráðið mótar stefnu skólans í rannsóknum og veitir ráðgjöf um framkvæmd hennar til rektors og forseta deilda. Ennfremur er ráðið rektor til ráðgjafar í þeim málum sem lúta að rannsóknum en heyra ekki undir einstakar deildir. 

Fjöldi birtinga á ritrýndum vettvangi í nafni skólans

 20122013201420152016  20172018 2019  20202021 2022 
Ritrýndar greinar í vísindatímaritum131132148 174191 180 206197 255  274284 
Þar af ritrýndar greinar í ISI-tímaritum102109111 149170 151178169229 249 260 
Ritrýndar greinar og útdrættir á ráðstefnum / í ráðstefnuritum199222196 219256 257206173 130132 164 
Ritrýndar bækur796710107 5 7
Ritrýndir bókarkaflar202726 23272124  2032  1124 
Aðrar ritrýndar birtingar10 826 364 7
 Samtals ritrýndar birtingar í nafni skólans: 367 396 378429 487 474 447  402 431426  480
Fara efst