Aðstaða til rannsókna
Við Háskólann í Reykjavík er að finna háþróaða rannsóknaraðstöðu sem þjónar framsæknu og fjölbreyttu rannsóknaumhverfi skólans. Aðstöðunni er ætlað að styðja við öflugt vísindastarf og nýsköpun á öllum fræðasviðum HR. Nemendur, bæði í grunn- og framhaldsnámi, hafa aðgang að þessari aðstöðu meðan á námi þeirra stendur.
Rannsóknaraðstaða HR er að mestu leyti rekin innan rannsóknasetra skólans, sem eru starfrækt í öllum deildum. Á vefsíðum setranna má finna ítarlegar upplýsingar um rannsóknarinnviði, tækjabúnað og samstarfsaðila hvers seturs.
Starfsfólk rannsóknarþjónustu, bókasafns og upplýsingatæknisviðs veitir fræðafólki og nemendum ráðgjöf og aðstoð við rannsóknir og gagnavinnslu.
Svefnrannsóknir
Við Svefnrannsóknarsetur HR eru m.a. gerðar rannsóknir á svefnmynstrum, svefntruflunum og tengslum svefns við heilsu og líðan.
Nánari upplýsingar
Umsjónarmaður: Erna Sif Arnardóttir
Heilbrigðisrannsóknir
Heilbrigðistæknisetur HR leggur áherslu á rannsóknir á læknatækni, lífeðlisfræði, myndgreiningu og taugavísindum.
Nánari upplýsingar
Umsjónarmaður: Paolo Gargiulo
Töluleg líkanagerð, bestun og tölvustudd hönnun
Rannsóknir setursins snúa m.a. að hagrænni líkanagerð, rafsegulhermun, bestun reiknirita og hönnun hátæknikerfa.
Nánari upplýsingar
Umsjónarmaður: Slawomir Koziel
Gervigreind
Gervigreindarsetur HR sinnir m.a. rannsóknum á málvinnslu, tölvusjón, hermun mannlegrar hegðunar og samskiptum manns og vélar.
Nánari upplýsingar
Umsjónarmaður: Hannes Högni Vilhjálmsson
Íþróttafræði
Við setrið eru rannsakaðir þættir eins og lífeðlisleg áhrif hreyfingar, hreyfing barna og ungmenna, og mælingar á afkastagetu íþróttafólks.
Nánari upplýsingar
Umsjónarmaður: Jose Miguel Saavedra Garcia
Til viðbótar við ofangreind setur er fjölbreytt rannsóknaraðstaða starfrækt í öðrum rannsóknahópum og á rannsóknarstofum HR. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðum rannsóknasetra skólans.