Námið
Rannsóknir
HR
Tæknifræðideild

Byggingar-
tæknifræði

Námstími
3,5 ár
Einingar
210 ECTS
Prófgráða
BSc
Lögverndað starfsheiti
Tæknifræðingur
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei

Hvað læri ég?

Í tæknifræði er lögð áhersla á að byggja upp verkvit, fræðilega fagþekkingu og tengsl við atvinnulífið. Námið er tilvalið fyrir þau sem vilja geta hafið starfsferil sinn strax að loknu BSc–námi. Þau sem útskrifast með lokapróf í tæknifræði hljóta lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur.  

Byggingartæknifræðingar taka þátt í mótun umhverfis okkar með hönnun, framkvæmdum og rekstri mannvirkja. Þar að auki fást nemendur við verkefni tengd umhverfis- og skipulagsmálum: umhverfismati framkvæmda og þróun á umhverfisvænum lausnum fyrir byggingariðnaðinn.

Byggingartæknifræði spannar flest af því sem snýr að uppbyggingu samfélagsins og innviðum þess. Sem dæmi má nefna mannvirkjagerð, umhverfis- og skipulagsmál, vega- og gatnagerð, lagnir og veitur og stjórnun framkvæmda. BSc-nám í byggingartæknifræði er 210 ECTS einingar og tekur þrjú og hálft ár.

Þekking og færni

Í lærdómsviðmiðum má sjá hvaða þekkingu, leikni og hæfni nemendur eiga að búa yfir að námi loknu.

Hvernig læri ég?

Hagnýtt nám og tenging við atvinnulífið

Uppbygging námsins tekur mið af þörfum atvinnulífsins, með áherslu á hagnýta tækniþekkingu sem nýtist vel frá fyrsta degi í starfi. Nemendur vinna raunhæf og krefjandi verkefni þar sem farið er í gegnum öll stig verkferlisins, frá frumhönnun og greiningu, að hönnun og teikningu, auk undirbúnings framkvæmda með gerð útboðsgagna, verk- og kostnaðaráætlana.

Sérhæfing

Á fyrstu misserum námsins eru kennd skyldunámskeið og tekist á við hinn fræðilega grunn sem nauðsynlegur er til að tryggja þá grunnþekkingu sem þarf við lausn tæknifræðilegra verkefna.

Á síðari stigum byggja nemendur upp faglega sérhæfingu á þeim grunni. Sérhæfingarsviðin eru: Burðarvirki, innviðir og umhverfi, lagnir og loftræsing og framkvæmdastjórnun. Sérhæfing fæst með starfsnámi á 5. önn (12 ECTS), tveimur valnámskeiðum á 6. önn (12 ECTS) og með vali á viðfangsefni í lokaverkefni á 7. önn (24 ECTS). Samtals er val 48 ECTS einingar.

Leiðbeint val fyrir sérhæfingu:

Lifandi nám

Nemendur í byggingartæknifræði við HR fá ótal tækifæri til þess að leysa raunveruleg vandamál, allt frá hugmyndastigi að hönnun og smíði, ásamt því að öðlast sterkan og breiðan fræðilegan grunn. Nemendur eru hvattir til að taka þátt í hönnunarverkefnum og/eða hönnunarnámskeiðum til að kynnast raunverulegum og aðkallandi hagnýtum verkefnum.

Í náminu vinna nemendur hagnýt, raunhæf verkefni á hverri önn þar sem markmiðið er að undirbúa þá fyrir atvinnulífið. Á fyrsta námsári standa nemendur frammi fyrir raunhæfu verkefni sem þarf að takast á við og skoða frá mörgum hliðum. Námskeiðið heitir Inngangur að tæknifræði. Sjá nánar í flipa um þriggja vikna námskeið.

Viðamikið lokaverkefni

Nemendur ljúka lokaverkefni á sjöundu og síðustu önn námsins. Lokaverkefnið byggist á sérhæfingu hvers og eins og það má vinna í samvinnu við fyrirtæki eða í tengslum við rannsóknarverkefni starfsmanna.

Starfsnámið veitir forskot

Nemendur í byggingartæknifræði taka 12 ECTS í starfsnámi. Tæknifræðideild er með samninga við um 40 fyrirtæki og stofnanir. Margir nemendur hafa fengið tilboð um starf til lengri eða skemmri tíma í kjölfar starfsnáms og lokaverkefna sem unnin eru í samstarfi við fyrirtæki.

Með því að ljúka starfsnámi auka nemendur þekkingu sína á sínu fagsviði. Nemendur búa sig jafnframt undir störf að námi loknu.

Ávinningur af starfsnámi er margvíslegur. Markmið með starfsnámi er meðal annars að:

  • Efla tengsl nemenda við atvinnulífið.
  • Auka innsýn og skilning nemenda á viðfangsefnum viðkomandi fagsviðs.
  • Að nemendur öðlist reynslu af því að vinna að úrlausn raunhæfra viðfangsefna á vettvangi, undir leiðsögn leiðbeinenda úr atvinnulífinu.
  • Að nemendur beiti aðferðum tæknifræðinnar við lausn hagnýtra verkefna.
  • Að nemendur geti unnið sjálfstætt og borið ábyrgð á eigin þekkingarleit og faglegum áherslum.
  • Að nemendur tileinki sér sjálfstæð og markviss vinnubrögð við úrlausn raunhæfra hönnunar-, greiningar- og/eða rannsóknarverkefna á fagsviðinu.

Dæmi um fyrirtæki þar sem tæknifræðingar starfa og nemendur hafa farið í starfsnám:

  • Orka náttúrunnar
  • Mannvit
  • HB Grandi
  • HS Orka
  • Jáverk
  • Orkuveita Reykjavíkur
  • Ístak
  • VSÓ Ráðgjöf
  • Landsvirkjun
  • Össur
  • Marel
  • Síminn
  • Trefjar
  • VSB verkfræðistofa
  • Verkís
  • VHE vélaverkstæði
  • Efla
  • Landsnet
  • Norðurorka
  • Alcoa
  • Stálsmiðjan Framtak
  • Elkem
Skiptinám

Nemendur geta sótt um að fara í skiptinám við erlendan háskóla. Skiptinám er tilvalið tækifæri fyrir upprennandi tæknifræðinga til að kynnast námi og störfum í öðrum löndum, og það er jafnvel hægt að nýta skiptinám til að öðlast meiri sérhæfingu á áhugasviði. Nemendur í BSc-námi þurfa að vera með 7 eða yfir í meðaleinkunn og búnir með 60 einingar þegar farið er í skiptinámið. Alþjóðaskrifstofa veitir frekari upplýsingar um hvert hægt er að fara í skiptinám.

CDIO-samstarfsnetið

Tæknifræðideild er aðili að samstarfsneti um að þróa og bæta kennslu í tæknifræði, CDIO (Conceive, Design, Implement, Operate). Í dag eru um 100 háskólar frá öllum heimshornum þátttakendur og vinna skólarnir kerfisbundið að því að þróa námsbrautir í tæknifræði og verkfræði með áherslu á þarfir atvinnulífsins.

Í tæknifræði við HR er færni í hugmyndavinnu, verkefnastjórnun, samskiptum og kynningum þjálfuð í ýmsum námskeiðum gegnum allt námið.

Í CDIO-aðferðafræðinni er lögð áhersla á samráð háskóla og atvinnulífs og fagfélaga. Mótun námsbrauta í anda CDIO á að tryggja að nemendur fái lausnamiðaða tæknilega færni sem vinnuveitendur sækjast eftir, án þess að slegið sé af fræðilegum kröfum.

Tölvur í náminu

Nauðsynlegt að hafa góða tölvu í tæknifræðináminu. Mörg forrit sem eru notuð eru eingöngu til fyrir Windows stýrikerfi en ef nemendur eiga eða kjósa frekar notast við Apple tölvur er mikilvægt að þær séu nógu öflugar til að keyra forritin í virtual umhverfi. Þar sem er unnið mikið með teikningar er gott skjákort einnig eitthvað til að huga að. Sem dæmi má nefna að AutoCAD hefur gefið út viðmið fyrir forritin frá þeim sem hér má finna.

Ert þú með spurningar um námið?

Ása Þöll Ragnarsdóttir
Verkefnastjóri tæknifræði og upplýsingatækni í mannvirkjagerð

Að námi loknu

Lögverndað starfsheiti

Byggingartæknifræðingar eru frá útskrift tilbúnir til að takast á við raunveruleg verkefni í sínu fagi. Þau sem ljúka lokaprófi í tæknifræði (BSc) hljóta staðfestingu viðkomandi ráðuneytis og lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur (enska: Certified Engineer).

Þau sem ljúka BSc-námi í tæknifræði, eru með sveinsbréf og hafa lokið tilskildum starfstíma geta jafnframt sótt um meistarabréf í tilsvarandi iðngrein, en HR ber ekki ábyrgð á að gefa út slík leyfi.

Fjölbreyttur starfsvettvangur

Byggingartæknifræðingar fást við meðal annars hönnun, framkvæmdastjórnun og rekstur. Einnig umsýslu fasteigna, störf í fagtengdri stjórnsýslu á vegum ríkis og sveitarfélaga og stjórnun og eftirlit í verktaka- og framleiðslufyrirtækjum. Byggingartæknifræðingar fást einnig við umhverfismál, svo sem umhverfismat framkvæmda, endurvinnslu og förgun úrgangs og þróun á umhverfisvænum lausnum fyrir byggingariðnaðinn.

Frekara nám

Tæknifræðinám veitir góða undirstöðu fyrir framhaldsnám í verkfræði á tengdum sviðum innanlands sem erlendis. 

Iðnfræði metin

Útskrifaðir iðnfræðingar geta fengið hluta af námi sínu metið inn í tæknifræðinám tæknifræðideildar. Til að hefja nám tæknifræði þarf iðnfræðingur eftir atvikum að bæta við sig einni önn í Háskólagrunni. Uppfylli viðkomandi lágmarkseinkunn fæst eftirfarandi metið:

  • Byggingariðnfræðingar fá að lágmarki 43 ECTS einingar metnar inn í byggingartæknifræði
  • Rafmagnsiðnfræðingar fá að lágmarki 30 ECTS einingar metnar inn í rafmagnstæknifræði og 18-24 ECTS einingar metnar inn í iðnaðar- og orkutæknifræði.
  • Véliðnfræðingar fá að lágmarki 35 ECTS einingar metnar inn í orku- og véltæknifræði og 18-24 ECTS einingar metnar inn í iðnaðar- og orkutæknifræði.

Skipulag náms

Nám í BSc Byggingartæknifræði er 210 ECTS einingar, sem skiptast í skyldunámskeið, valnámskeið, starfsnám og lokaverkefni.

Í náminu eru annir brotnar upp í tvo hluta. Fjögur námskeið eru kennd í 12 vikur og síðan er prófað úr þeim. Að prófum loknum taka við þriggja vikna námskeið þar sem námsefnið er sett í hagnýtt samhengi með verkefnavinnu, hópavinnu og/eða samstarfi við fyrirtæki.

Öll námskeið fyrstu annar í tæknifræði verða kennd samtímis skv. 15 vikna skipulagi. Nemendur á öðrum önnum fylgja hefðbundnu 12+3 skipulagi.

Haust
Stærðfræði I
AT STÆ1004 / 8 ECTS
Forritun í Matlab
AT MTL1002 / 4 ECTS
Eðlisfræði
AT EÐL1003 / 6 ECTS
Stöðu- og burðarþolsfræði
BT BUR1013 / 6 ECTS
Inngangur að tæknifræði – Tölvustudd hönnun
AT TÆK1002 / 5 ECTS
Hugmyndavinna
AT HUG1001 / 1 ECTS
Vor
Stærðfræði II
AT STÆ2003 / 6 ECTS
Þolgreining burðarvirkja
BT BUR2014 / 8 ECTS
Byggingareðlisfræði
BT BEÐ1003 / 6 ECTS
Tölfræði
AT TÖL1013 / 4 ECTS
Umhverfi og vistvæn byggð
BT UVB1003 / 6 ECTS

Þriggja vikna námskeið

Í náminu eru annir brotnar upp í tvo hluta. Fjögur námskeið eru kennd í 12 vikur og síðan er prófað úr þeim. Að prófum loknum taka við þriggja vikna námskeið þar sem námsefnið er sett í hagnýtt samhengi með verkefnavinnu, hópavinnu og/eða samstarfi við fyrirtæki.

Raunveruleg verkefni

Nemendur taka þátt í spennandi hönnunarverkefnum strax á fyrsta ári. Stærri verkefni eins og lokaverkefni, eru oftast unnin í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir.

Á fyrsta námsári standa nemendur frammi fyrir raunhæfu verkefni sem þarf að takast á við og skoða frá mörgum hliðum. Námskeiðið heitir Inngangur að tæknifræði. Nemendur vinna í hópum við að útfæra lausnir og leysa þau fjölmörgu vandamál sem upp gætu komið. Nemendur kynna svo niðurstöður sínar fyrir leiðbeinendum og öðrum nemendum. Viðfangsefni nemenda hafa meðal annars verið:

  • Endurbætur á húsnæði Veraldarvina á Brú í Hrútafirði
  • Færanlegar hraðhleðslustöðvar fyrir Bræðsluna
  • Hönnun nýs þjóðarleikvangs
  • Að koma fram með nýstárlegar hugmyndir að brú yfir Fossvoginn
  • Gerð aðgerðaráætlunar vegna eldgoss í nágrenni Reykjavíkur
  • Gerð aðgerðaráætlunar vegna bólusóttarfaraldurs
Námstími
3,5 ár
Einingar
210 ECTS
Prófgráða
BSc
Lögverndað starfsheiti
Tæknifræðingur
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei
Ása Þöll Ragnarsdóttir
Verkefnastjóri tæknifræði og upplýsingatækni í mannvirkjagerð

Aðstaða

Þjónusta og góður aðbúnaður

Öll kennsla fer fram í háskólabyggingu HR. Þar er lesaðstaða og bókasafn, aðstaða til verklegrar kennslu, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.

Verkleg kennsla

Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Því er aðstaða til verklegrar kennslu til fyrirmyndar.

Byggingastofa

Í náminu hafa nemendur aðgang að byggingastofu sem er mikilvægur þáttur í byggingatæknifræðináminu því þar er bilið brúað milli þess fræðilega og þess hagnýta.

Kennslustofur og lesaðstaða

Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn.

Góð þjónusta

Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.

Verslanir og kaffihús

Í HR er Krambúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.

Kennarar

Sérfræðiþekking og reynsla

Nemendur í byggingartæknifræði njóta leiðsagnar öflugra vísindamanna á fagsviðinu, tæknimanna og hönnuða innan háskólann og fjölda stundakennara með sérfræðiþekkingu úr atvinnulífinu. Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur og í góðum tengslum við atvinnulífið. 

Aldís Ingimarsdóttir

Háskólakennari og fagstjóri byggingarsviðs

Sérsvið:
Jarðtækni, lagnahönnun, hönnun veitna, vega- og gatnagerð. Einnig er sérhæfing á sviði umferðaröryggis.  

Eyþór Rafn Þórhallsson

Dósent

Sérsvið:
Burðarþolshönnun, jarðskjálftahönnun mannvirkja, hönnun vatnsaflsvirkjana, verkefnisstjórnun og kerfishugsun í byggingarverkfræði.

Guðbrandur Steinþórsson

Dósent - emeritus

Sérsvið:
Byggingaverkfræði, burðarþol

Jóhann Albert Harðarson

Háskólakennari

Sérsvið:
Byggingarverkfræði, burðarþol, hönnun trévirkja og efnisfræði steinsteypu.

Ólafur H. Wallevik

Prófessor

Sérsvið:
Rheology of Fresh Concrete, High Performance Concrete, High Strength Concrete, Self-Compacting Concrete and Microstructures.

Viggó Magnússon

Háskólakennari, umsjónamaður byggingarfræði

Undirbúningur

Til að hefja nám í tæknifræði þurfa umsækjendur að hafa lokið stúdentsprófi, prófi úr Háskólagrunni HR, 4. stigs vélstjórnarprófi, sveinsprófi eða staðist lokapróf frá framhaldsskóla á 3. hæfniþrepi. Nauðsynlegt er að uppfylla einingafjölda og hæfniþrep sem talin eru upp hér fyrir neðan. Námsefni og kennsla á fyrsta ári í tæknifræði er miðuð við að nemendur hafi eftirfarandi undirbúning. Hægt er að lesa meira um hæfniþrep á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis. 

Vantar þig grunninn?

Háskólagrunnur HR er undirbúningur fyrir háskólanám. Þegar nemendur sækja um velja þau háskólagrunn miðað við það háskólanám sem stefnt er að í framhaldinu. Einnig geta þau sem hafa lokið stúdentsprófi bætt við sig einingum í stærðfræði og raungreinum í viðbótarnámi við stúdentspróf.

20 einingar, þar af 15 einingar á 3. hæfniþrepi. Miðað er við áfanga af náttúrufræði- eða náttúruvísindabraut.

Stöðupróf í stærðfræði og eðlisfræði

Til að koma til móts við umsækjendur sem uppfylla ekki inntökuskilyrði í tæknifræði er boðið upp á stöðupróf í stærðfræði og eðlisfræði. 

Stöðuprófin eru ætluð fyrir:

  • Þau sem telja sig hafa nægilegan grunn án þess að hafa lokið tilskyldum framhaldsskólaeiningum
  • Þau sem uppfylla inngönguviðmið en vilja rifja upp námsefnið og sjá hvar þau standa áður en nám hefst

Prófin munu fara fram um miðjan/lok júní í húsnæði HR við Nauthólsvík. Ekki verður að svo stöddu boðið upp á fjarpróf. 

Athugið að ef sótt er um inntöku með stöðuprófi í stærðfræði og eðlisfræði, þarf samt sem áður að uppfylla kröfur um einingafjölda í íslensku og ensku.

Umsækjendur þreyta eitt stöðupróf. Prófið fer fram í júní og í því er kannaður grunnur í algebru auk annars efnis: Almenn brot, einfaldar jöfnur, prósentureikningur, rauntalnalínan, þáttun, mengi, föll, hornaföll, deildun, heildun, vigrar.

A HLUTIB HLUTI
Mælieiningar Grunnhugtök í rafmagnsfræði
Vigrar Segulmagn og segulsvið
Hraði og hröðun Segulkraftar
Hreyfing í tveimur víddum Span
Kraftar Bylgjur
Orka Ljós
Skriðþungi 
Vökvar 
Varmi og varmaflutningur 

Framkvæmd:

Framkvæmd
  1. Umsækjendur skrá sig með því að senda póst á Ásu Þöll, verkefnastjóra í tæknifræði; asatr@ru.is
  2. Umsækjendur fá sendan hlekk inn á skráningarsíðu þar sem þau greiða fyrir stöðuprófið.
  3. Skráning er staðfest og umsækjendur fá aðgang að undirbúningsefni.
  4. Upplýsingar um prófstað og próftíma eru sendar áður en prófið fer fram í júní.

Þau sem standast nauðsynleg stöðupróf með einkunn 6 eða hærra er velkomið að hefja nám í tæknifræði. Þau sem ekki standast nauðsynleg stöðupróf geta hafið nám í Háskólagrunni til frekari undirbúnings. Að loknu námi í Háskólagrunni geta þau sótt í nám í tæknifræði.
Til þess að fá nánari upplýsingar og/eða skrá sig í stöðupróf sendið póst á asatr@ru.is


Við HR er hægt að ljúka viðbótarnámi við stúdentspróf ef einstaklinga vantar undirbúning í raungreinum.

Af hverju tæknifræði í HR?

  • Löggilt starfsheiti sem tæknifræðingur
  • Nemendur sem eru með sveinspróf hljóta meistarabréf í tilsvarandi iðngrein
  • Góð aðstaða til bóklegs og verklegs náms
  • Öflugt starfsnám
  • Traust undirstaða
  • Hagnýt og raunhæf verkefni
Fara efst