Námið
Rannsóknir
HR
Verkfræðideild

Orku-
verkfræði

Námstími
3 ár
Einingar
180 ECTS
Prófgráða
BSc
Lögverndað starfsheiti
Verkfræðingur, eftir BSc & MSc
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei

Hvað læri ég?

Vinnsla orku er afar mikilvæg grunnstarfsemi í samfélaginu. Daglegt líf okkar veltur á því að hrein, ódýr og áreiðanleg orka sé fyrir hendi. 

Viðfangsefni orkuverkfræðinga er umbreyting orku úr einni mynd í aðra á þann hátt að það nýtist okkur. Til dæmis má nefna hvernig hreyfiorku vindsins er umbreytt í raforku í vindhverfli, hvernig megi nýta raforku sem best til að framleiða kísilflögur eða hvernig skynsamlegast sé að haga vinnslu jarðhita til að tryggja sjálfbæran rekstur auðlindarinnar. Orkuverkfræði fjallar um það hvernig einstakir hlutar orkukerfis eru byggðir upp, hvaða kröfur þarf að gera til þeirra og ekki síst hvernig þeir vinna saman sem ein heild á sem bestan og hagkvæmastan hátt. 

Fimm ára nám

Verkfræði er í heildina fimm ára nám, 300 ECTS einingar. Nemendur öðlast löggilt starfsheiti sem verkfræðingar eftir bæði BSc- og MSc-nám.

Alþjóðlegt nám á Íslandi

Fjöldi erlendra nemenda er í framhaldsnámi í orkuverkfræði við Háskólann í Reykjavík sem kennt er í samvinnu við Iceland School of Energy . Nemendur á lokaári BSc og í meistaranámi fá tækifæri til að kynnast og vinna með nemendum og kennurum frá ólíkum löndum með fjölbreytt viðhorf og reynslu. Nemendur sem útskrifast úr orkuverkfræði frá HR hafa því breiðara tengslanet á alþjóðavísu en venjan er á Íslandi.

Hvernig læri ég?

Undirstöðunámskeið

Á öllum námsleiðum í verkfræði eru fyrstu annir námsins helgaðar undirstöðunámskeiðum sem nýtast verkfræðingum alla starfsævina.  Að námskeiðunum loknum hafa nemendur góða þekkingu á:

  • Stærðfræði
  • Eðlisfræði
  • Forritun
  • Verkefnastjórnun
  • Sjálfbærni
Sérhæfð námskeið 

Eftir fyrsta árið er námið sífellt meira sniðið að hverri og einni námsleið. Sérhæfð námskeið námsleiðarinnar byggja undir meiri sérhæfingu 

Sérhæfð námskeið í orkuverkfræði eru t.d: 

  • Stöðu- og burðarþolsfræði
  • Greining rása
  • Aflfræði
  • Mælikerfi
  • Straumfræði
  • Varmafræði
  • Efnafræði
  • Rafmagnsvélar
  • Efnisfræði
  • Varmaflutningsfræði
Verkfræði X 

Á sjöttu önn BSc-náms ljúka allir nemendur í verkfræði viðamiklu lokanámskeiði. Í námskeiðinu vinna nemendur verkefni í hópum þar sem að unnið er frá hugmynd að lokaafurð. Viðfangsefnin eru ýmist sérsniðin vekefni fyrir mismunandi námsleiðir eða unnið þvert á þær. Námskeiðið er góður undirbúningur fyrir atvinnulífið.

Áhersla á sjálfbærni 

Málefni sjálfbærni og umhverfis eru sífellt mikilvægari í okkar umhverfi. Í verkfræðináminu er brugðist við þessu í þremur skyldunámskeiðum. Á fyrstu önn fara allir verkfræðinemar í námskeið um orkunýtingu og í námskeiðinu Inngangur að verkfræði er áhersla á sjálfbærni og umhverfi. Á fimmtu önn er svo sérstakt námskeið um sjálfbærni. Auk þessa eru umhverfismál tengd við umfjöllunarefni annarra námskeiða. 

Val 

Nemendur geta valið sér námskeið eftir áhugasviði t.d. starfsnám, námskeið úr öðrum námsleiðum verkfræðinnar eða úr öðrum deildum HR. 

12+3 kerfið

Í náminu eru annirnar brotnar upp í tvo hluta. Fjögur námskeið eru kennd í 12 vikur og síðan er prófað úr þeim. Að prófum loknum taka við þriggja vikna námskeið við þar sem námsefnið er sett í hagnýtt samhengi með verkefnavinnu, hópavinnu og/eða samstarfi við fyrirtæki.

Starfsnám 

Nemendur geta sótt um 6 ECTS starfsnám á síðasta ári BSc-námsins. Líkt er eftir atvinnuleit þar sem nemendur senda inn ferilskrá og kynningarbréf og fyrirtækin velja úr hópi umsækjenda og boða í viðtöl. 

Markmið með starfsnámi er m.a. að efla tengsl nemenda tækni- og verkfræðideildar HR við atvinnulífið, auka innsýn og skilning nemenda á viðfangsefnum síns fagsviðs og undirbúa þá undir störf að loknu námi með úrlausn raunhæfra viðfangsefna á vettvangi.

Skiptinám 

Skiptinám: Nemendur geta sótt um að fara í skiptinám við erlendan háskóla. Nemendur í BSc-námi þurfa að vera með 7 eða hærra í meðaleinkunn og að hafa lokið 60 einingum þegar þeir fara í skiptinámið. Alþjóðaskrifstofa veitir frekari upplýsingar um hvert hægt er að fara í skiptinám. 

Í HR fá verkfræðinemar ótal tækifæri til þess að leysa raunveruleg vandamál og læra á hönnunarferlið allt frá hugmynd, hönnun og smíði að virkni.

Klúbbastarf 

Nemendur geta tekið þátt í alls konar starfi sem tengist verkfræðinni t.d. verið í Formúlu-liði skólans (RU Racing), róbótaklúbbnum eða tekið þátt í nýsköpunar- eða stjórnunarkeppnum.

Að námi loknu

Viðfangsefni orkuverkfræðinga er til dæmis að finna betri orkugjafa og að nýta þá orku betur sem til er.

Nemandi sem sérhæfir sig innan orkuverkfræði getur unnið að margvíslegum verkefnum hjá fyrirtækjum á sviði jarðvarma eða raforkukerfa á Íslandi eins og Orkuveitu Reykjavíkur, Landsneti, Landsvirkjun, Orkubúi Vestfjarða og RARIK, eða hjá þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem koma að hönnun, vinnu við uppsetningu eða viðhaldi jarðvarmavirkjana og raforkukerfisins.

Orkuverkfræðingar eru einnig eftirsóttir hjá hinum stærri notendum raforku eins og álverunum. Þeir sinna auk þess fjölbreyttum tækni- og stjórnunarstörfum innan fyrirtækja sem leysa margþætt verkefni allt frá róbótafræði og tölvuþjónustu til samskipta- og upplýsingatækni. 

Verkfræðingar frá HR

BSc- og MSc-gráða í verkfræði frá HR tryggir nemendum góðan undirbúning til að taka næsta skref í átt að framtíðarmarkmiðum sínum. Hvort heldur sem þau eru frekara nám, stofnun fyrirtækis eða starf hér heima eða erlendis. 

Við útskrift eiga nemendur að vera færir um samstarf og hafa tamið sér góð og öguð vinnubrögð, sem samræmast bestu og nýjustu aðferðum hverju sinni, ásamt fræðilegri þekkingu og hæfni á sínu sviði.

Starfsréttindi

Til að öðlast starfsréttindi og leyfi til að nota lögverndaða starfsheitið verkfræðingur þarf að ljúka MSc-gráðu í samræmi við kröfur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Ertu með spurningar um námið?

Skipulag náms

Í þriggja ára grunnnámi til BSc-gráðu kynnast nemendur undirstöðugreinum í orkuverkfræði. Til að öðlast sérhæfingu og starfsréttindi sem verkfræðingur þarf að BSc-námi loknu að ljúka tveggja ára MSc-námi. 

Verkfræði, BSc og MSc, er 5 ára námsleið (alls 300 einingar) sem uppfyllir skilyrði fyrir lögverndaða starfsheitið verkfræðingur.

Haust
Stærðfræði I
T-101-STA1 / 6 ECTS
Eðlisfræði I
T-102-EDL1 / 6 ECTS
Línuleg algebra
T-211-LINA / 6 ECTS
Hugmyndavinna
T-100-HUGM / 1 ECTS
Orka
T-102-ORKA / 4 ECTS
Forritun í Matlab
T-101-MATL / 2 ECTS
Inngangur að verkfræði
T-102-VERK / 5 ECTS
Vor
Stærðfræði II
T-201-STA2 / 6 ECTS
Eðlisfræði II
T-202-EDL2 / 6 ECTS
Forritun fyrir verkfræðinema
T-201-FOR1 / 6 ECTS
Stöðu og burðarþolsfræði
T-106-BURD / 6 ECTS

Þriggja vikna námskeið

Inngangur að verkfræði
Nýsköpun og stofnun fyrirtækja
Mælikerfi
Verkefnastjórnun
Verkfræði X
Námstími
3 ár
Einingar
180 ECTS
Prófgráða
BSc
Lögverndað starfsheiti
Verkfræðingur, eftir BSc & MSc
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei

Aðstaða

Verkleg kennsla á margvíslegum vettvangi

Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Því er aðstaða til verklegrar kennslu til fyrirmyndar. 

Kennslustofur og lesherbergi

Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Sjá frekari upplýsingar um aðstöðuna í HR.  

Góð þjónusta

Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.

Verslanir og kaffihús

Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.

Af hverju orkuverkfræði í HR?

  • Kennt er í 12 vikur og svo tekur við þriggja vikna hagnýtur áfangi. 
  • Markviss verkefnavinna með raunverulegum viðfangsefnum.
  • Líkt eftir atvinnulífinu: nemendur ljúka hinu viðamikla verkfræði X námskeiði.
  • Frábær aðstaða fyrir verklegt og bóklegt nám. 
  • Góður stuðningur í námi frá hjá náms- og starfsráðgjöfum, starfsfólki bókasafns, skrifstofum deilda og kennurum.  
  • Allar námsleiðir eru í boði sem samfellt fimm ára nám (BSc & MSc).
  • Nemendur hljóta þekkingu í raungreinum og þjálfun í aðferðafræði og vinnubrögðum sem gagnast til framtíðar.
  • Möguleiki á starfsnámi.
  • Nemendur geta sótt um leigu á herbergi eða íbúð í Háskólagörðum HR sem eru við rætur Öskjuhlíðar.
  • Allt nám undir einu þaki.
Fara efst