Námið
Rannsóknir
HR
Verkfræðideild

Rekstrarverkfræði

Námstími
2 ár
Einingar
120 ECTS
Prófgráða
MSc
Lögverndað starfsheiti
Verkfræðingur
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei

Hvað læri ég?

Meistaranám í rekstrarverkfræði er framhald BSc-náms í rekstrarverkfræði. Gert er ráð fyrir að nemandi hafi grunngráðu (BSc) í rekstrarverkfræði. Hafi nemandi annan bakgrunn getur viðkomandi þurft að bæta við námskeiðum úr grunnnámi. Í slíkum tilvikum er ætlast til að nemandi klári þessi námskeið á fyrsta námsári sínu.

Verkfræði er í heildina fimm ára nám. Nemendur öðlast löggilt starfsheiti sem verkfræðingar eftir bæði BSc- og MSc-nám.   

Verkfræðilegar aðferðir í fjármálum

Rekstrarverkfræði veitir nemendum fræðilegan grunn og þjálfun fyrir fjölbreytileg störf í fyrirtækjum svo sem við framleiðslustjórnun, gæðastjórnun og verkefnastjórnun. Í verkfræðinámi læra nemendur að greina flókin og fjölbreytt viðfangsefni og þróa lausnir sem byggja á stærðfræði- og raunvísindaþekkingu. Meistaranám í verkfræði er tveggja ára nám.

Þekking á fjármálafræði og kunnátta í raunvísindum

Í náminu takast nemendur á við krefjandi og raunhæf verkefni þar sem þeir læra að beita stærðfræði og tölvunarfræðilegum aðferðum. Auk góðrar þekkingar á fjármálafræðum þurfa nemendur að hafa skilning á margvíslegum eiginleikum mismunandi kerfa og ferla. Í þessu sambandi er góð undirstöðuþekking á sviði almennrar verkfræði og raunvísinda, aðallega eðlisfræði, mjög mikilvæg.

Lifandi nám

Nemendur í rekstrarverkfræði hljóta fræðilega undirstöðu og þurfa að nota þá þekkingu til að leysa raunveruleg verkefni af ýmsum toga. Með því að glíma við raunhæf verkefni og finna lausnir við vandamálum hljóta nemendur góðan undirbúning fyrir störf að námi loknu.

Hvernig læri ég?

Í framhaldsnámi afla nemendur sér sérfræðiþekkingar og hagnýtrar tækniþekkingar. Nemendur gera einstaklingsmiðaða námsáætlun í samráði við leiðbeinanda, allt eftir áhugasviði. Námið er rannsóknartengt og getur nemandinn valið að nýta sér það til umtalsverðrar sérhæfingar. 

Meistaraverkefni

Valnámskeiðum er ætlað að auka skilning og undirbúa rannsóknarefni nemandans. Meistaraverkefni er 30 einingar, unnið á lokaönn. Hægt er að sækja um að vinna 60 eininga meistaraverkefni og taka þá samsvarandi færri valnámskeið.

Meistaranemar geta sótt um að taka starfsnám á vorönn. Starfsnámið getur verið allt að 12 ECTS.  

Starfsnám

Markmið með starfsnámi er að auka þekkingu nemenda á því sviði sem þeir stunda nám á og búa þá undir störf að námi loknu. Verkfræðideild gengur úr skugga um að nemendur sem fara í starfsnám vinni verkefni sem eru krefjandi, áhugaverð og á þeirra áhugasviði.  

Starfsnámið hefur mælst mjög vel fyrir hjá nemendum og mörg meistaraverkefni hafa orðið til út frá verkefnum í starfsnámi.

Starfsnámið sem er boðið uppá er frábært! Það gefur manni betri sýn á möguleikana í framtíðinni og getur opnað á tækifæri. HR er með góð tengsl við atvinnulífið sem er mikill kostur þar sem möguleikarnir eru endalausir þegar maður er með verkfræðigráðu á bakinu!

Sigríður Júlía Heimisdóttir
MSc í rekstrarverkfræði

Skyldunámskeið fyrir alla

Gagnanám og vitvélar

Eitt skyldunámskeið er fyrir alla meistaranema í verkfræði, sama á hvaða námsleið þeir eru: Gagnanám og vitvélar (e. data mining and machine learning). Þar eru viðfangsefnin meðal annarra tauganet, ákvarðanatré og mynsturgreining. 

Það er mat verkfræðideildar HR að kunnátta á þessu sviði sé nauðsynleg fyrir verkfræðinga dagsins í dag og ekki síst verkfræðinga framtíðarinnar.

Aðferðarfræði rannsókna

Samfélagið þarfnast fólks sem getur hugsað gagnrýnt, greint flóknar aðstæður og miðlað niðurstöðum sínum á áhrifaríkan hátt. Þetta getur falið í sér mörg verkefni, þar á meðal að leita að og meta gildi vísindarita og annars konar skjala.

Aðferðafræði rannsókna undirbýr nemendur fyrir að takast á við upplýsingaöflun, greiningu og skýrslugerð sem krafist er fyrir öll önnur námskeið.

Skiptinám

Að læra við háskóla í öðru landi er ævintýri, getur víkkað sjóndeildarhringinn og jafnvel staðfest fyrir nemendum hverju þeir vilja einbeita sér að í sínu starfi eftir útskrift. Nemendur í MSc námi geta sótt um skiptinám í eina eða tvær annir en alþjóðaskrifstofan veitir frekari upplýsingar um hvert hægt er að fara í skiptinám.

Aðstoðarkennsla

Aðstoðarkennsla er auglýst sérstaklega og geta nemendur í MSc námi eða á 3. ári í BSc námi sótt um. Ýmist er um að ræða kennslu í dæmatímum ásamt yfirferð dæma, yfirferð heimaverkefna eingöngu eða aðstoð við verklegar æfingar.  Nemendur sem hafa sýnt góðan árangur í námi og hafa áhuga á að spreyta sig við aðstoðarkennslu eru hvattir til þess að sækja um.  Nánari upplýsingar hjá skrifstofu verkfræðideildar: vfd@ru.is

Að námi loknu

Markmið rekstrarverkfræðinámsins er að mennta stjórnendur, sérfræðinga og leiðtoga sem geta tekist á við nýsköpunarverkefni, flókin alþjóðleg viðskipti og uppbyggingu nýrra tækifæra í atvinnulífinu.

Starfsréttindi

Verkfræðinám samanstendur af 3ja ára (180 einingar) grunnnámi og tveggja ára (120 einingar) MSc námi. Til að öðlast starfsréttindi og leyfi til að nota lögverndaða starfsheitið verkfræðingur þarf að ljúka MSc-gráðu í samræmi við kröfur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Skipulag náms

Í framhaldsnámi afla nemendur sér sérfræðiþekkingar og hagnýtrar tækniþekkingar. Nemendur gera einstaklingsmiðaða námsáætlun allt eftir áhugasviði í samráði við deildina. Námið er rannsóknartengt og getur nemandinn valið að nýta sér það til umtalsverðrar sérhæfingar.

Valnámskeið

Nemendum er gefinn kostur á að afla sér sérhæfingar á áhugasviði sínu með valfögum. Nemandi í MSc rekstrarverkfræði skal ljúka a.m.k. þrjú af eftirtöldum skilyrtum valnámskeiðum. Önnur valnámskeið geta verið í verkfræði eða tengdum greinum, eða úr öðrum deildum, í samráði við leiðbeinanda og að uppfylltum reglum um meistaranám við verkfræðideild HR.

* Ekki má taka bæði V-784-REK5 og I-707-VGBI vegna skörunar á milli námskeiða

Námskeiðslýsingar eru að finna í kennsluskrá.

Haust
Bestunaraðferðir
T-810-OPTI / 8 ECTS
Hagnýt líkindafræði
T-811-PROB / 8 ECTS
Gagnanám og vitvélar
T-809-DATA / 8 ECTS
Þriggja vikna námskeið
T-100-XXX / 6 ECTS
Vor
Aðferðafræði rannsókna
T-701-REM4 / 8 ECTS
Gerð viðskiptaáætlunar fyrir tæknilega hugmynd – Frumkvöðlafræði og nýsköpun
T-814-INNO / 8 ECTS
Valnámskeið
T-800-VAL / 8 ECTS
Þriggja vikna námskeið
T-100-XXX / 6 ECTS

Ertu með spurningar um námið?

Námstími
2 ár
Einingar
120 ECTS
Prófgráða
MSc
Lögverndað starfsheiti
Verkfræðingur
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei

Aðstaðan

Verkleg kennsla á margvíslegum vettvangi

Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Því er aðstaða til verklegrar kennslu til fyrirmyndar. 

Kennslustofur og lesherbergi

Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Sjá frekari upplýsingar um aðstöðuna í HR.  

Góð þjónusta

Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.

Verslanir og kaffihús

Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.

Af hverju meistaranám í verkfræði í HR?

  • Góður aðgangur að framúrskarandi kennurum og vísindamönnum
  • Virk tengsl við atvinnulífið
  • Meistaraverkefni oft unnin í samstarfi við fyrirtæki og jafnvel hægt að fá styrki til að vinna þau.
  • Öflugt starfsnám sem getur verið allt að 12 ECTS
  • Hægt að fara í skiptinám 
  • Háskólinn í Reykjavík er meðal bestu smærri háskóla heims samkvæmt lista Times Higher Education
  • Allt nám fer fram í Háskólanum í Reykjavík
Fara efst