Vélaverkfræði
Hvað læri ég?
Meistaranám í vélaverkfræði er framhald BSc-náms í vélaverkfræði. Gert er ráð fyrir að nemandi hafi grunngráðu (BSc) í vélaverkfræði. Hafi nemandi annan bakgrunn getur viðkomandi þurft að bæta við námskeiðum úr grunnnámi. Í slíkum tilvikum er ætlast til að nemandi klári þessi námskeið á fyrsta námsári sínu.
Við lausn nútíma vandamála þarf að samtvinna djúpa tækniþekkingu og skapandi hugsun. Þekking vélaverkfræðinga nýtist á afar breiðu sviði, allt frá því að vinna við þróun vélmenna að hönnun virkjana.
Vísindi og margbreytileg viðfangsefni
Nám í vélaverkfræði samþættir sterkan grunn í vísindum, stærðfræði og upplýsingatækni með verkfræðilegum viðfangsefnum. Þessi viðfangsefni eru til dæmis vélahönnun og líftímagreining, greining burðarvirkja, stýritækni og sjálfvirkni kerfa, straumfræði og orkuferli. Vélaverkfræðingar fást við margt í umhverfi okkar eins og í varma-, vatnsafls- eða vindorkuverum, öllum farartækjum og í framleiðsluferlum og iðnaði. Verkfræðinám samanstendur af þriggja ára BSc-námi og tveggja ára MSc-námi.
Lifandi nám
Nemendur í vélaverkfræði við HR fá ótal tækifæri til þess að leysa raunveruleg vandamál, allt frá hugmyndastigi að hönnun og smíði, ásamt því að öðlast sterkan og breiðan fræðilegan bakgrunn. Þeir eru hvattir til að taka þátt í hönnunarverkefnum og/eða hönnunarnámskeiðum, skoða kosti starfsnáms til að kynnast raunverulegum og aðkallandi hagnýtum verkefnum. Þeir eru einnig hvattir til að taka þátt í þeim fjölbreyttu rannsóknarverkefnum sem starfsmenn háskólans á sviði vélaverkfræði eða tengdra greina standa að.
Verkfræði er í heildina fimm ára nám. Nemendur öðlast löggilt starfsheiti sem verkfræðingar eftir bæði BSc- og MSc-nám.
Hvernig læri ég?
Í framhaldsnámi afla nemendur sér sérfræðiþekkingar og hagnýtrar tækniþekkingar. Nemendur gera einstaklingsmiðaða námsáætlun í samráði við leiðbeinanda, allt eftir áhugasviði. Námið er rannsóknartengt og getur nemandinn valið að nýta sér það til umtalsverðrar sérhæfingar.
Meistaraverkefni
Valnámskeiðum er ætlað að auka skilning og undirbúa rannsóknarefni nemandans. Meistaraverkefni er 30 einingar, unnið á lokaönn. Hægt er að sækja um að vinna 60 eininga meistaraverkefni og taka þá samsvarandi færri valnámskeið.
Meistaranemar geta sótt um að taka starfsnám á vorönn. Starfsnámið getur verið allt að 12 ECTS.
Starfsnám
Verkfræðideild gengur úr skugga um að nemendur sem fara í starfsnám vinni verkefni sem eru krefjandi, áhugaverð og á þeirra áhugasviði. Verkefniseigandi innan fyrirtækis er tengiliður nemandans, og um leið er leiðbeinandi við verkfræðideild í samskiptum við nemandann. Mörg meistaraverkefni hafa orðið til út frá verkefnum í starfsnámi.
Skyldunámskeið fyrir alla:
Gagnanám og vitvélar
Einn skyldukúrs er fyrir alla meistaranema í verkfræði, sama á hvaða námsleið þeir eru: Gagnanám og vitvélar (e. data mining and machine learning). Þar eru viðfangsefnin meðal annarra tauganet, ákvarðanatré og mynsturgreining. Það er mat verkfræðideildar HR að kunnátta á þessu sviði sé nauðsynleg fyrir verkfræðinga dagsins í dag og ekki síst verkfræðinga framtíðarinnar.
Aðferðafræði rannsókna
Samfélagið þarfnast fólks sem getur hugsað gagnrýnt, greint flóknar aðstæður og miðlað niðurstöðum sínum á áhrifaríkan hátt. Þetta getur falið í sér mörg verkefni, þar á meðal að leita að og meta gildi vísindarita og annars konar skjala. Aðferðafræði rannsókna undirbýr nemendur fyrir að takast á við upplýsingaöflun, greiningu og skýrslugerð sem krafist er fyrir öll önnur námskeið.
Skiptinám
Að læra við háskóla í öðru landi er ævintýri, getur víkkað sjóndeildarhringinn og jafnvel staðfest fyrir nemendum hverju þeir vilja einbeita sér að í sínu starfi eftir útskrift. Nemendur í MSc námi geta sótt um skiptinám í eina eða tvær annir en alþjóðaskrifstofan veitir frekari upplýsingar um hvert hægt er að fara í skiptinám.
Aðstoðarkennsla
Aðstoðarkennsla er auglýst sérstaklega og geta nemendur í MSc námi eða á 3. ári í BSc námi sótt um. Ýmist er um að ræða kennslu í dæmatímum ásamt yfirferð dæma, yfirferð heimaverkefna eingöngu eða aðstoð við verklegar æfingar. Nemendur sem hafa sýnt góðan árangur í námi og hafa áhuga á að spreyta sig við aðstoðarkennslu eru hvattir til þess að sækja um. Nánari upplýsingar hjá skrifstofu verkfræðideildar vfd@ru.is.
Að námi loknu
Starfssvið vélaverkfræðinga eru meðal annars vélahönnun, hönnun orkuferla, hönnun framleiðsluferla og verkefnastjórnun. Vélaverkfræðingar vinna til að mynda að hönnun farartækja af öllum gerðum, þeir koma að hönnun velflestra rafeindatækja, taka þátt í þróun lækningatækja og koma að hönnun mannvirkja og virkjana.
Breidd greinarinnar veitir fjölbreytt atvinnutækifæri í nútímasamfélagi, til dæmis eru vélaverkfræðingar einnig ákjósanlegir sérfræðingar í rekstur og stjórnun fyrirtækja.
Starfsréttindi
Verkfræðinám samanstendur af 3ja ára (180 einingar) grunnnámi og tveggja ára (120 einingar) MSc námi. Til að öðlast starfsréttindi og leyfi til að nota lögverndaða starfsheitið verkfræðingur þarf að ljúka MSc-gráðu í samræmi við kröfur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Skipulag náms
Í framhaldsnámi afla nemendur sér sérfræðiþekkingar og hagnýtrar tækniþekkingar. Nemendur gera einstaklingsmiðaða námsáætlun allt eftir áhugasviði í samráði við deildina. Námið er rannsóknartengt og getur nemandinn valið að nýta sér það til umtalsverðrar sérhæfingar.
Valnámskeið
Nemendum er gefinn kostur á að afla sér sérhæfingar á áhugasviði sínu með valfögum. Nemandi í MSc vélaverkfræði skal ljúka a.m.k. þrjú af eftirtöldum skilyrtum valnámskeiðum. Önnur valnámskeið geta verið í verkfræði eða tengdum greinum, eða úr öðrum deildum, í samráði við leiðbeinanda og að uppfylltum reglum um meistaranám við verkfræðideild HR.
Athugið: Nemandi skal taka annað hvort Töluleg straum - og varmaflutningsfræði eða Tölvustudd greining með einingaaðferð (hægt er að taka hitt námskeiðið sem val ef áhugi er fyrir því).
Námskeiðslýsingar eru að finna í kennsluskrá.
Ertu með spurningar um námið?
Aðstaða
Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Því er aðstaða til verklegrar kennslu til fyrirmyndar.
Vélsmiðja
Flestir nemendur sem útskrifast frá HR með verkfræðigráðu hafa kynnst vélsmíði að einhverju marki, til að mynda unnið í rennibekk og fræsivél við að útfæra hugmyndir og hönnun sína.

Í vélsmiðjunni eru þrír rennibekkir, tvær fræsivélar, CNC rennibekkur og fræsivél, suðutæki, laser-skurðarvél, ásamt öðrum hefðbundnum verkfærum. Nemendur hafa aðgang að vélsmiðjunni til að leysa skemmtileg og raunveruleg verkfræðileg viðfangsefni.
Í boði eru inngangsnámskeið í vélsmíði, þar sem farið er yfir öryggismál og nemendum kennd viðeigandi handtök.
Orkutæknistofa
Nemendur í námskeiðum á borð við varmafræði, varmaflutningsfræði, straumfræði og tengdum greinum sækja verklegan hluta námsins í þessa stofu og framkvæma tilraunir er tengjast þeim viðfangsefnum.

Orkutæknistofan býður upp á góða aðstöðu fyrir rannsóknarverkefni og lokaverkefni nemenda í grunnnámi og meistaranámi í verkfræði og tæknifræði. RU Racing-lið HR hefur aðsetur í stofunni.

Rafeindatæknistofa
Í stofunni er unnið að verkefnum og tilraunum á sviði rafeindatækni, rafmagnsfræði, raforku, stýringum og sjálfvirkni.

Stofan býður jafnframt upp á aðsetur fyrir nemendur sem vinna að stærri verkefnum eða lokaverkefnum í grunnnámi eða meistaranámi. Þar er fjöldinn allur af tækjum og mælitækjum, á borð við sveiflusjár, örtölvur, AD-breytur, iðnaðarróbóta o.s.frv.
Mikið safn er af íhlutum fyrir rásavinnu og góð aðstaða til að setja saman rásir.
Kennslustofur og lesherbergi
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Sjá frekari upplýsingar um aðstöðuna í HR.
Góð þjónusta
Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.
Kennarar
Nemendur í vélaverkfræði njóta leiðsagnar öflugra vísindamanna á fagsviðinu, tæknimanna og hönnuða innan háskólans, og gestafyrirlesara með sérfræðiþekkingu úr atvinnulífinu. Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur.
Af hverju meistaranám í verkfræði í HR?
- Góður aðgangur að framúrskarandi kennurum og vísindamönnum
- Virk tengsl við atvinnulífið
- Meistaraverkefni oft unnin í samstarfi við fyrirtæki og jafnvel hægt að fá styrki til að vinna þau.
- Öflugt starfsnám sem getur verið allt að 12 ECTS
- Skiptinám í boði
- Háskólinn í Reykjavík er meðal bestu smærri háskóla heims samkvæmt lista Times Higher Education
- Námið er kennt í Háskólanum í Reykjavík