Námið
Rannsóknir
HR
Námstími
1 ár
Einingar
90 ECTS
Prófgráða
MSc eða MBM
Lögverndað starfsheiti
.
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei

Hvað læri ég

Nám sem hentar þeim sem vilja sníða meistaranám í viðskiptafræði að eigin áhugasviði. Þetta er gert með vali í náminu og sveigjanleika.

Hægt er að blanda saman fræðasviðum innan viðskiptafræði eða velja námskeið úr öðrum deildum við HR og auka þannig þverfaglega þekkingu.

Að námi loknu eiga nemendur að hafa þekkingu á: 
  • Stefnumörkun og stefnumiðaðri markaðssetningu.
  • Viðskiptarannsóknum og viðskiptagreiningum.
  • Fjármálum.
  • Forystu og breytingastjórnun.
  • Viðskiptasiðferði, ábyrgri stjórnun og sjálfbærni.
  • Grunnatriðum viðskiptafræði, þ.m.t. markaðsfræði, fjármálum, forystu, breytingastjórnun og stefnumörkun.
Val um tvær námsleiðir

Nemendur geta  valið á milli þess að taka 90 ECTS eininga MSc-gráðu eða 90 ECTS eininga viðbótargráðu á meistarastigi. Hægt er að ljúka náminu á þremur önnum miðað við fullt nám á haust-, vor- og sumarönn.

Hvernig læri ég?

Staðarnám
Meistaranám í viðskiptadeild er staðarnám.

Kennt á ensku
Námskeið eru kennd á ensku af íslenskum og erlendum sérfræðingum sem veitir alþjóðlega sýn á námsefnið.

Fyrirkomulag kennslu
Námskeið eru kennd í lotum sem ná yfir tvo til fjóra daga samfleytt eða vikulega. Kennsla getur einnig verið skipulögð seinnipart dags og á laugardögum.

Námsmat
Námsmat í námskeiðum er fjölbreytt, til dæmis í formi einstaklingsverkefna, hópaverkefna og prófa. Nemendur geta átt von á því að verkefnavinna og próf fari fram utan lota. Ávallt er leitast við að hafa lokanámsmat fljótlega eftir hvert námskeið.

Starfsnám
Mögulegt er að taka starfsnám í stað eins eða tveggja valnámskeiða (7.5 - 15 ECTS). Starfsnámið er skipulagt á vegum HR og nemendur starfa undir handleiðslu tengiliðs hjá fyrirtæki. Starfsnám er mikilvægur þáttur fyrir þá sem hafa almennt litla starfsreynslu eða þá sem vilja nýta námið til að skapa sér tækifæri á nýjum vettvangi.

*Sjá nánari upplýsingar í Leiðbeiningum um starfsnám í meistaranámi.

Að námi loknu

Út í atvinnulífið

Þeir sem ljúka meistaranámi í viðskiptafræði hafa tileinkað sér heildstæða þekkingu sem nýtist í mörgum störfum í atvinnulífinu. Námið hentar þeim sem vilja velja námskeið eftir áhugasviði og/eða þeim sem vilja blanda saman fræðasviðum innan viðskiptafræðinnar.

Að náminu loknu eiga nemendur að vera færir um að: 
  • Nota viðeigandi aðferðir og greiningu til að átta sig á hagnýtum viðskiptatengdum vandamálum og leggja til árangursríkar lausnir á grundvelli þessarar greiningar.
  • Eiga frumkvæði að verkefnum, stýra þeim og axla ábyrgð á vinnu einstaklinga og hópa.
  • Nota aðferðir og verklag viðskiptafræði með sérstakri vísan til markaðsfræði, fjármála, stefnumörkunar, forystu og breytingastjórnunar
  • Beita verkfærum og aðferðum bestu starfsvenja í viðskiptafræði innan mismunandi umhverfis.
  • Gera greiningar með gagnaöflun, gagnagreiningu og gagnrýnu mati.
  • Vinna sjálfstætt og skipulega, setja sér markmið og skipuleggja og framkvæma lausnir við margvíslegum vandamálum
  • Leggja gagnrýnið mat á viðskiptahætti með það markmið að leggja til og framkvæma endurbætur.
  • Nota aðferðir og verklag í viðskiptafræði innan mismunandi atvinnugreina, jafnt hér á landi og erlendis. 
  • Beita gagnrýnni hugsun og leggja mat á og leyst mál og aðstæður út frá sjónarmiði siðferðislegrar hegðunar, ábyrgrar stjórnunar og sjálfbærni.
Ertu með spurningar um námið?

Ég vissi að HR leggur mikið upp úr því að vera í góðum tengslum við atvinnulífið og að námið væri verkefnamiðað.

Rakel Lind Hauksdóttir
Aðstoðarmaður framkvæmdastjóra LSR

Skipulag náms

Námstími

Námstími er þrjár annir, 14 mánuðir miðað við fullt nám. Hægt er að ljúka náminu á lengri tíma en hámarks námstími eru sex annir (tvö ár).

Annir 

  • Haustönn: ágúst - desember.
  • Vorönn: janúar - maí.
  • Sumarönn: maí - september.
Val um tvær námsleiðir

Nemendur geta  valið á milli þess að taka 90 ECTS eininga MSc-gráðu eða 90 ECTS eininga viðbótargráðu á meistarastigi, MBM.

MSc-gráða

Til þess að ljúka MSc-gráðu þarf að ljúka 60 ECTS einingum í námskeiðum samkvæmt skipulagi náms og 30 ECTS eininga lokaritgerð.

Viðbótargráða á meistarastigi (MBM)

Til þess að ljúka viðbótargráðu á meistarastigi þarf að ljúka 90 ECTS einingum í námskeiðum samkvæmt skipulagi náms. Möguleiki á starfsnámi að hámarki 15 ECTS í stað valnámskeiða.

Athugið

  • Á haustönn taka nemendur 7.5 ECTS eininga valnámskeið eða V-737-FAFI Fundamentals in Accounting and Finance 7.5 ECTS.
  • V-737-FAFI Fundamentals in Accounting and Finance er skylda fyrir nemendur sem hafa grunngráðu með minna en 30 ECTS einingar í viðskiptafræði.
  • Nánari upplýsingar um námskeið eru í kennsluskrá
Haust
Strategic Management
V-712-STJO / 8 ECTS
Change management and leadership
V-736-CMLE / 8 ECTS
Fundamentals in Accounting and Finance
V-737-FAFI / 8 ECTS
Valnámskeið
V-Val-7 / 7.5
Vor
Innovation Management
V-713-INNM / 8 ECTS
Management control
V-717-CPMA / 8 ECTS
Business Ethics
V-714-BETH / 4 ECTS
Research Proposal
V-898-REPR / N/A
Business Research Methodology I
V-765-REM1 / 4 ECTS
Business Research Methodology II
V-825-REM2 / 4 ECTS
Valnámskeið 3.75 ECTS
V-val / 3.75
Sumar
Meistararitgerð
V-898-THES / 30 ECTS
Námstími
1 ár
Einingar
90 ECTS
Prófgráða
MSc eða MBM
Lögverndað starfsheiti
.
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei

Aðstaða

Þjónusta og góður aðbúnaður
Í háskólabyggingu HR er aðstaða til verklegrar kennslu, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.

Kennslustofur og lesherbergi
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn.

Þjónusta
Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.

Verslanir og kaffihús
Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.

Af hverju meistaranám í viðskiptafræði í HR?

  • Öflugt starfsnám 
  • Byggt á alþjóðlegum kröfum og þróað í samráði við framsækin íslensk fyrirtæki
  • Hægt er að ljúka náminu á 14 mánuðum miðað við fullt nám
  • Valið um viðbótargráðu eða MSc-gráðu
  • Námskeið kennd af íslenskum og erlendum kennurum en þar með fá nemendur alþjóðlega sýn á efnið
  • Kennsla er nánast öll á ensku
Fara efst