Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
6. nóvember 2026

Ný gervigreindarstefna HR samþykkt: Verðmætasköpun, mennska og ábyrg notkun

Ný gervigreindarstefna Háskólans í Reykjavík var samþykkt á fundi framkvæmdaráðs HR í lok september. Stefnan byggir á Stefnu HR til ársins 2030 og útfærir áherslu skólans um að nýta framfarir í tækni og gervigreind á ábyrgan hátt.

Tilgangur gervigreindarstefnu HR er að skólinn nálgist framfarir í gervigreind af sömu heilindum og annað í starfsemi skólans, nýti tækifærin af metnaði, hafi mennskuna í fyrirrúmi og byggi notkun á ábyrgð.

Leiðarvísir inn í framtíðina

Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, aðstoðarrektor náms, nemenda og sjálfbærni í HR var ein af þeim sem vann að því að koma gervigreindarstefnunni á fót. Bryndís Björk segir HR mæta framþróun gervigreindar með framsýni og gagnrýnni hugsun þar sem tæknin styðji fólk en leysi ekki mannlega dómgreind af hólmi.

Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir.

„Ástæðan fyrir því að við gerðum stefnuna er að við sjáum að gervigreind er að breyta mjög hratt nálgun og vinnulagi í kennslu og námi, rannsóknum og nýsköpun og  daglegum störfum fólks og þar af leiðandi þörfum atvinnulífsins. 

Með stefnumótuninni fengum við starfsfólk og nemendur að borðinu til að deila því hvaða tækifæri og áskoranir þau sjá fyrir starfsemi skólans í þessu sambandi og hvaða framtíðarsýn við höfum varðandi notkun gervigreindar.

Stefnan er því leiðarvísir okkar allra inn í framtíðina og í ljósi þess hve framþróun gervigreindar er hröð þá gerum við auðvitað ráð fyrir því að stefnan verði endurskoðuð miðað við reynslu og framþróun tækninnar mjög reglulega.

Næstu skref eru svo að halda áfram að framkvæma og móta ýmis verkefni og aðgerðir sem styðja við stefnuna og að slíkar aðgerðir verði bæði á skólavísu en líka í öllum deildum og starfseiningum skólans,“ segir Bryndís Björk.

Nær til allra nemenda og alls starfsfólks

Gervigreindarstefnan gildir í allri starfsemi HR: í námi og kennslu, rannsóknum og nýsköpun og við stjórnun og rekstur. Hún nær til nemenda og alls starfsfólks í öllum deildum og starfseiningum.

Grundvöllur stefnunnar er þríþættur: verðmætasköpun, mennska og ábyrg notkun.

Grundvöllur gervigreindarstefnu HR.
6. nóvember 2026
Nýjustu fréttirnar