Stjórnarháttayfirlýsing HR
Stjórnarhættir
Stjórnarhættir Háskólans í Reykjavík ehf. (hér eftir nefnt „HR“) taka fyrst og fremst mið af lögum nr. 138/1994 um einkahlutafélög [1], samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. HR leggur áherslu á að viðhafa góða stjórnarhætti og hefur því ákveðið að taka mið af Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu, sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq Iceland og Samtökum atvinnulífsins [2], hvað stjórnarhætti félagsins varðar. HR telur sig fylgja leiðbeiningunum í öllum megindráttum en víkur þó frá nokkrum tilmælum þeirra vegna sérstöðu félagsins. Helstu frávik eru:
- Það eru ekki undirnefndir starfandi á vegum stjórnar þar sem stjórn sinnir þeim verkefnum sem slíkum undirnefndum yrði annars falið að sinna.
- Það er ekki tilnefningarnefnd hjá HR þar sem kosning og val stjórnarmanna er ákveðin í samþykktum skólans og í hluthafasamkomulagi allra hluthafa skólans.
- Upplýsingagjöf til hluthafa um hluthafafundi og stjórnarhætti fer fram í gegnum lokað vefsvæði í stað þess að birta allar upplýsingar á heimasíðu skólans.
- Stjórnarháttayfirlýsing þessi er eingöngu birt á heimasíðu skólans í stað þess að birta hana í ársreikningi eða ársskýrslu.
Stjórn
Stjórn fer með æðsta vald í málefnum HR milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rekstri HR í samráði við háskólaráð í stærri og stefnumarkandi málum. Stjórn félagsins er skipuð fimm einstaklingum sem kosnir eru á aðalfundi til tveggja ára í senn. Hluthafar hafa rétt til að tilnefna stjórnarmenn í samræmi við gildandi hluthafasamkomulag á hverjum tíma. Formaður stjórnar skal tilnefndur sameiginlega af hluthöfum félagsins á aðalfundi. Stjórnin er nú skipuð þremur körlum og tveimur konum, kynjahlutföll eru því 60% karlar og 40% konur. Stjórnarmenn búa yfir víðtækri menntun og fjölbreyttri starfsreynslu.
Stjórn hefur sett sér ítarlegar starfsreglur, í samræmi við ákvæði laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög, samþykktir félagsins og Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, þar sem helstu verkefni og valdsvið stjórnar og rektors eru skilgreind. Gildandi starfsreglur stjórnar voru staðfestar á stjórnarfundi 4. nóvember 2024 og eru að finna á heimasíðu félagsins.
Almennt er miðað við að reglulegir fundir stjórnar séu haldnir á fjögurra til sex vikna fresti en fundarhlé er gert í júlí nema sérstakar aðstæður kalli á fund. Á árinu 2024 voru haldnir 8 stjórnarfundir. Mættu allir stjórnarmenn á meirihluta stjórnarfunda ársins 2024, en í einstaka tilfellum vantaði einn stjórnarmann á fundi.
Stjórn félagsins skipa:
- Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, stjórnarformaður er fædd árið 1951. Hún var fyrst kosin í stjórn HR árið 2022 og í háskólaráð sama ár. Edda er lyfjafræðingur, útskrifuð með kandídatspróf í lyfjafræði frá Danmark‘s Farmaceutiske Højskole, nú Københavns Universitet árið 1976. Edda var faglegur forstöðumaður lyfjaheildsölunnar Farmasía hf. á árunum 1976-1980. Þá gegndi hún t margvíslegum stjórnunarstöðum hjá Actavis og forverum þess frá 1980-2014, þ.m.t. framkvæmdastjóri sölu til þriðja aðila Actavis Group hf. á árunum 2002-2008, aðstoðarforstjóri Actavis Group hf. árin 2008-2010 og forstjóri Actavis á Íslandi árin 2010-2014. Edda er formaður stjórnar Brunns vaxtarsjóðs slhf., Brunns vaxtarsjóðs II slhf., Saga Natura ehf. og Pretium ehf. Hún situr í stjórn Orf Líftækni hf., Bioeffect hf. og Nordic Blue ehf. Edda er jafnframt varaformaður í stjórn Coripharma Holding ehf.
- Björn Brynjúlfur Björnsson er fæddur árið 1988. Hann er með BS-próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MSc-gráðu í fjármálahagfræði frá Oxford háskóla. Hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands og hefur setið í stjórn Háskólans í Reykjavík frá árinu 2024. Áður var Björn stofnandi og framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Moodup ehf., meðstofnandi og framkvæmdastjóri Frama menntunar ehf., hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, ráðgjafi hjá McKinsey & Company og greinandi hjá Credit Suisse. Björn gegnir stjórnarformennsku í Moodup, situr í stjórn Frama og er í fulltrúaráði Verslunarskóla Íslands. Að auki situr hann í stjórnum dótturfélaga Háskólans í Reykjavík.
- Halldór Benjamín Þorbergsson er fæddur árið 1979. Hann var fyrst kosinn í stjórn HR árið 2017. Halldór er með B.Sc. próf í hagfræði frá HÍ og MBA frá Oxford háskóla. Hann er forstjóri Heima ehf. frá 2023. Halldór starfaði sem hagfræðingur og starfandi framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands á árunum 2004 – 2006, sem verkefnastjóri hjá Milestone ehf. frá 2006-2009 og stofnaði ráðgjafafyrirtækið Möttul ehf. árið 2009. Hann starfaði á árunum 2010-2017 hjá Icelandair Group, sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Halldór starfaði sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins frá árinu 2016-2023. Halldór hefur setið í framkvæmdastjórn Hlutdeildar, deildar vinnudeilusjóðs SA, sem og í stjórnum fjárfestingasjóðsins Landsbréf Tourism Investment Fund, Lindarvatni ehf., Stafnaseli slf. Einnig hefur hann setið í framkvæmdastjórn VIRK starfsendurhæfingar. Halldór er formaður stjórnar Sóltún fasteign ehf., FM – hús ehf., Hafnarslóð ehf., Reykir fasteignafélag ehf., Hörðuvellir ehf., Heimar skrifstofusetur ehf. og Almannaróms. Hann situr í stjórn Stafnasel slf., Optio ehf., Smáralind ehf., Kvikmyndahöllin ehf., Knatthöllin ehf., Dvergshöfði 4 ehf., CCI fasteignir ehf., og Heimar atvinnuhúsnæði ehf.
- Sigurður Hannesson er fæddur árið 1980. Sigurður er með D.Phil. gráðu í stærðfræði frá Oxford háskóla, B.Sc. gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í löggiltri verðbréfamiðlun. Hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og hefur setið í stjórn HR frá árinu 2021. Á árunum 2013-2017 starfaði Sigurður sem framkvæmdastjóri á eignastýringarsviði hjá Kviku banka (áður MP banka). Sigurður var árið 2015 varaformaður framkvæmdahóps stjórnvalda um losun fjármagnshafta og árið 2013 formaður sérfræðingahóps um aðgerðir í þágu skuldsettra heimila (Leiðréttingin). Á árunum 2010-2013 starfaði Sigurður sem framkvæmdastjóri Júpíters rekstrarfélags, nú Kvika eignastýring, og á sviði markaðsviðskipta hjá Straumi fjárfestingabanka á árunum 2007-2010. Sigurður er formaður stjórnar Kviku banka hf. og nefndarmaður í áhættunefnd og starfskjaranefnd, formaður stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og formaður stjórnar Grænvangs, í stjórn Krabbameinsfélags Íslands. Sigurður á auk þess sæti í stjórnum dótturfélaga HR.
- Tanya Zharov er fædd árið 1966. Hún hefur setið í stjórn HR frá því í október 2021. Hún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og starfar í dag sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Alvotech SA. Hún starfaði áður sem lögfræðingur og síðar sem aðstoðarforstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu (fyrst frá 1999–2007 og síðar 2016-2020). Tanya var framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Auðar Capital og síðar Virðingar hf. frá 2008-2015. Á árunum 1996-1998 var Tanya meðeigandi hjá PWC. Tanya situr í stjórn Skólavegs ehf. og Talna ehf.
- Guðbjörg Edda Eggertsdóttir og Tanya Zharov eru óháðir stjórnarmenn innan stjórnar HR í skilningi Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja.
Stjórnin skal árlega meta störf sín og félagsins í heild í samræmi við ákvæði starfsreglna stjórnar og Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja. Stjórn hefur ákveðið að formlegt árangursmat verði framkvæmt með aðstoð þriðja aðila annað hvert ár. Formlegt árangursmat var framkvæmt fyrst árið 2016 og síðan árin 2018, 2020, 2022 og 2024.
Framkvæmdaráð
Rektor HR, sem jafnframt er framkvæmdastjóri félagsins, er Ragnhildur Helgadóttir og hefur hún starfað sem rektor háskólans síðan í september 2021. Hún er fædd árið 1972. Hún útskrifaðist með cand.jur. gráðu frá Háskóla Íslands árið 1997, LL.M gráðu frá University of Virginia 1998 og doktorsgráðu frá sama skóla 2004. Hún hefur verið prófessor við HR frá 2006 og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, m.a. verið í stjórn Nordforsk, formaður Vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs í samninganefnd Íslands við ESB og dæmt á öllum dómstigum. Ragnhildur situr í stjórnum dótturfélaga HR og í stjórn Forlagsins ehf.
Rektor kemur fram fyrir hönd háskólans, annast daglegan rekstur og ber ábyrgð á rekstrinum gagnvart stjórn. Rektor ræður sviðsforseta, forseta deilda, framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn háskólans sem heyra beint undir rektor, en hann hefur samráð við stjórn um val þeirra og meginverkefni.
Aðrir starfsmenn HR sem eiga sæti í framkvæmdaráði eru:
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, sviðsforseti samfélagssviðs
- Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, sviðsforseti tæknisviðs
- Jón Haukur Arnarson, framkvæmdastjóri rekstrar
- Ármann Gylfason, forseti verkfræðideildar
- Ásgeir Ásgeirsson, forseti tæknifræðideildar
- Gunnar Þór Pétursson, forseti lagadeildar
- Hafrún Kristjánsdóttir, forseti íþróttafræðideildar
- Henning Arnór Úlfarsson, forseti tölvunarfræðideildar
- Kamilla Rún Jóhannsdóttir, forseti sálfræðideildar
- Stefan Wendt, forseti viðskipta- og hagfræðideildar
- Anna Sigríður Bragadóttir, forstöðumaður frumgreinadeildar
- Ester Gústavsdóttir, forstöðumaður mannauðs
Að auki sitja formaður SFHR og formenn náms- og rannsóknarráða í framkvæmdaráði, en það eru nú Hanna Steinunn Steingrímsdóttir og Sigurður Ingi Erlingsson.
Innra eftirlit og áhættustýring
Stjórn ber ábyrgð á að koma á virku kerfi innra eftirlits og að skilgreina helstu áhættu í starfsemi HR. Þetta mat er unnið ár hvert og yfirfarið og samþykkt af stjórn. Virkni innra eftirlits er reglulega sannreynd af endurskoðendum félagsins og málefni þess síðan rædd á árlegum fundi með stjórn.
Rektor skilgreinir helstu áhættuþætti er varða starfsemi, stefnu og markmið HR þar á meðal eðli þeirra og umfang. Rektor útbýr árlega áætlun fyrir áhættustjórnun sem lögð er síðan fyrir stjórn til samþykktar.
Samfélagsleg ábyrgð og siðferðisviðmið
Starfsfólk HR telur það hlutverk sitt að móta framtíðarleiðtoga sem leggja áherslu á samfélagslega ábyrgð, nýsköpun og þróun sem miðar að aukinni sjálfbærni með gott viðskiptasiðferði að leiðarljósi. Unnið er að því að innleiða PRME-markmiðin þvert á deildir háskólans. PRME (e. Principles for Responsible Management Education) var sett á stofn árið 2007 á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í Genf sem vettvangur til að auka skilning og hæfni nemenda til að takast á við áskoranir í viðskiptalífinu sem framtíðarleiðtogar og stjórnendur. Þá vill HR jafnframt taka þátt í því að minnka áhrif starfseminnar á umhverfið og leggja sitt af mörkum til að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga.
HR er þekkingarsamfélag þar sem nemendur, kennarar og aðrir starfsmenn starfa saman að öflun, sköpun og miðlun þekkingar. Í slíku samfélagi er mikilvægt að allir taki siðferðislega ábyrgð á störfum sínum. Því vinnur háskólinn að því að skapa starfsumhverfi þar sem samskipti og vinnubrögð einkennast af virðingu, heilindum, sanngirni og jafnfrétti. HR hefur sett siðareglur sem hafa það að markmiði að stuðla að því að hegðun þeirra sem starfa innan skólans uppfylli ýtrustu siðferðiskröfur sem gerðar verða innan háskóla. Þá hefur rektor skipað siðanefnd HR sem sett hefur sér starfsreglur.
Hér er hægt að kynna sér nánar samfélagslega ábyrgð HR, siðareglur HR og siðanefnd HR.
Samskipti hluthafa og stjórnar
Sérstaða HR sem einkahlutafélags er nokkur þar sem félagið rekur háskóla líkt og um sjálfseignarstofnun væri að ræða. Hluthafar félagsins eru þrír, en þeir njóta ekki neins fjárhagslegs ávinnings af rekstri félagsins. Allir hluthafar félagsins eiga fulltrúa í stjórn þess. Æðsta vald félagsins er í höndum lögmætra hluthafafunda og fer formleg upplýsingagjöf til hluthafa fram á hluthafafundum.
Samþykkt á fundi stjórnar Háskólans í Reykjavík 10. janúar 2025.
Undirritað með rafrænni undirskrift